Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 37

Læknablaðið - okt. 2018, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2018/104 465 að tryggja þekkingu og skilning á málefn- inu,“ segir Helga sem sjálf stýrði um tíma Lyfjastofnun áður en hún tók við stjórnar- taumum Persónuverndar. Helga segir Persónuvernd búast við mikilli samvinnu læknastéttarinnar og stofnunarinnar enda sé í nýju lögun- um kveðið á um að ef mat á áhrifum á persónuvernd gefi til kynna að vinnsla muni hafa mikla áhættu í för með sér, nema ábyrgðaraðili grípi til ráðstafana til að draga úr henni, skuli hann hafa samráð við Persónuvernd áður en vinnslan hefjist. „Við höfum ákveðnar áhyggjur af því að þessi nýja krafa gæti orðið mikill flöskuháls á starfseminni hér en enn sem komið er hefur það ekki gerst.“ Hún telur að margir hafi undanfarið skólast vel í reglum um persónuvernd og þekki orðið til krafna laganna en útilokar þó ekki að enn hafi menn ekki náð að tileinka sér breytt vinnulag. Fagleg vinnubrögð séu hins vegar forsenda árangurs. „Á sama tíma og tækni getur bjargað lífi fólks verður að vera tryggt að aðgengi að upplýsingum sé takmarkað og öryggis gætt, þannig að slíkar upplýsingar verði ekki aðgengilegar óviðkomandi. Ekki megi hlaupa upp til handa og fóta og nota hverja nýju lausnina á fætur annarri án fullnægjandi prófana,“ segir Helga. Spurð hvort þessi varfærni í nýju lögunum hægi á framþróun á læknasviðinu svarar hún að það þurfi einfaldlega að vinna heimavinnuna sína. „Heimild þarf að vera í lögum fyr- ir hverri vinnslu persónuupplýsinga. Persónuverndarlögin eru öryggisventill fyrir heilbrigt umhverfi og góðan rekstur,“ leggur hún áherslu á, og bendir á að ný skylda um að halda skrá yfir vinnslustarf- semi hjálpi stjórnendum að hafa yfirlit yfir rekstur á hverjum vinnustað. Helga segir að fram að gildistöku nýju laganna hafi ekki verið skylt að tilkynna öryggisbresti til Persónuverndar en nú þurfi að gera það innan 72 klukkustunda frá því að þeir komast upp. „Það eru strax farnar að koma til okkar ábendingar, eins og að hakkarar eru að reyna að brjótast inn í kerfi hér á landi auk þess sem þó nokkrir vinnustaðir eru að lenda í því að persónuupplýsingar berist öðrum en þeim sem þær eiga að fá,“ segir Helga. Hún nefnir þó að heilbrigðisgeirinn búi að því að strangur lagarammi hafi lengi gilt á því sviði. „En reynslan í nágrannalöndum bend- ir hins vegar til þess að margt geti farið úrskeiðis þegar um vinnslu viðkvæmra heilsufarsupplýsinga er að ræða og því þarf ávallt að hafa öryggi í fyrirrúmi.“ Stækkandi stofnun Persónuvernd hefur verið í ólgusjó undan- farin ár. Sérfræðingum fækkaði um tíma vegna skorts á fjármagni og voru þeir á tímabili einungis þrír en 12 starfa þar nú. Hátt í sjö hundruð mál bíða úrlausn- ar nú þegar umsvifin aukast enn vegna lagabreytinganna. Og vegna þeirra hafa stærri einkafyrirtæki, sem nú þurfa til að mynda að hafa persónuverndarfulltrúa innan sinna raða, sóst eftir sérfræðingum stofnunarinnar. Hreyfing hefur einnig verið mikil á toppnum og sátu fjórir í for- stjórastólnum á tveggja ára tímabili áður en Helga tók við fyrir þremur árum. „Starfsmenn hér þurfa að vera um 25 til að sinna vaxandi þunga í persónuverndar- málum,“ segir Helga og sér fram á bætta tíma. Málaflokkurinn hafi ekki aðeins fengið aukið vægi með tilkomu laganna, heldur hafi stofnunin einnig flutt upp um tvær hæðir og í stærra pláss í húsnæði sínu við Rauðarárstíg. Hún er nú í fyrrum plássi Sjúkratrygginga sem fluttu og eru nú við rætur Grafarholts. „Það er mikill stígandi í málum tengd- um persónuvernd í Evrópu og í raun í heiminum öllum og málafjöldinn hefur næstum fjórfaldast hjá okkur frá upphafi. Álagið hefur verið gríðarlegt, það er eig- inlega ekki hægt að nefna það. Fyrst núna í janúar kom fjárveiting sem máli skipti,“ segir hún. „Við erum mönnuð góðu fólki – en þurfum fleiri, þekkingarstigið innan stofunarinnar er hátt og við hlökkum til samvinnunnar við heilbrigðisstéttirnar og að takast á við þau álitamál sem upp koma.“ Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar bendir á að með nú sé óheimilt að fylgjast með gjörðum fólks nema að það viti af því. Nýju persónuverndarlögin séu mun víðtækari en margur geri ráð fyrir.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.