Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1967, Qupperneq 12

Hugur og hönd - 01.06.1967, Qupperneq 12
„TEYG3AST LÉT ÉG LOPANN MINN" ÞÓRÐUR TÓMASSON MARGT hefur verið skráð um íslenzka tóvinnu en þó að- eins lítið ágrip mikillar sögu. Fjölmargar ókannaðar tó- vinnuheimildir eru í Þjóðminjasafninu og byggðasöfn- unum, margt tómuna er í fórum einstakra manna, og mörg drög til tóvinnusögu eru óskráð í minni manna, sem smátt og smátt eru að hverfa inn í þögnina. Byggðasafnið í Skógum undir Eyjafjöllum á marga á- gæta hluti úr ull er draga að sér athygli safngesta. Hekluð herðasjöl úr togi, unnin af konum í Vestur-Skaftafells- sýslu og Rangárvallasýslu, fá þó líklega flest hrósyrði og hafa vel til þeirra unnið. Ekki er hér um gamla hluti að ræða, herðasjölin eru öll frá þessari öld, en ekki eru þau ómerkari fyrir það, list er óháð tíma. Togsjölin eiga líka gildi sitt í því að gefa efni, sem var að verða úrelt, nýtt hlutverk. Mér kom þetta í hug í vetur, 28. apríl, þegar fræg tóskaparkona í Fljótshlíð, Helga Pálsdóttir á Grjótá, varð 90 ára og hafði þá nýlokið við heklaða toghyrnu með listahandbragði, er ungar konur væru vel sæmdar af. íslenzk togvinna að fornu hefur naumast náð annars staðar hærra en í togflosinu, sem margir gripir eru enn til vitnis um. Víða í sveitum munu söðulsessur flosaðar tog- fosi hafa verið gerðar fram um 1870. í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu hélt Helga Jónsdóttir á Hnausum nokkurskonar hannyrðaskóla á þeim tíma. Ragnhildur Gísladóttir frá Rauðabergi í Fljótshverfi, systurdóttir Þórunnar Gísladóttur grasakonu, flosaði söðulsessu í flos- lár hjá Helgu á Hnausum á áttunda tug aldarinnar. Ragn- hildur og systir hennar unnu fínan togþráð í bekki í milli- pils, er þær komu sér upp til spari, heima í föðurgarði, eins og þá var algegnt. Flosaðir togborðar voru unnir í öllum sveitum fram á 19. öld, á reiðhempur kvenna, svo að dæmi sé nefnt. Tog- þráður var unninn í uppistöðu í vefi (spjaldvefur, fótvef- ur t. d.). Hversdagshlutir úr togi á íslenzkum sveitaheimilum á síðustu öld voru t. d. skyrsíur, ostapokar, fótofnir flauta- þyrlar, togsokkar og höföld. Allur saumþráður var unninn úr togi, svo fínn stundum, að hægt var að nota hann í tvinnastað í saumavélar. Lengst var togþráður notaður sem skóþráður og skinnfataþráður. Þótti það löngum vinargjöf að gefa þráðarlegg með fallega undnum tog- þræði. Þráðarleggur með vissri vindingu nefndist „læstur leggur“, eins og alþekkt er. Sumar konur kunnu að vinda rósamunstur á þráðarleggi, er vel var vandað til. Togþráður í síur, ostapoka og flautaþyrla var einatt ljósborinn sem snöggvast eða sviðinn við glóð, svo hlut- irnir bæru ekki hár í matinn. Hafaldaþráður var undinn á tólgarmola. Hnyklarnir voru dregnir upp á þráð, sem bundinn var í eyrun á vatnspotti yfir eldi. Voru hnyklar- nir svo soðnir, þar til bandprjónn gekk greiðlega gegnum þá. Togsokkar voru víða engjasokkar karla og kvenna, stundum aðeins leggjabolir. Þóttu þeir miklum mun hetri en þelsokkar í vosverkum á engjum. Togþráður í vefi var venjulega unninn úr toginu „upp með öllu saman,“ er þá var kembt í venjulegum þelkömb- um, en allur vandaður togþráður í saumþráð og listmuni var unninn úr verkuðu togi, sem kallað var (togakembd- ur). Togið var þá vandlega kembt í togkömhum, sem allt fram á 18. öld munu hafa verið einu ullarkambar þjóðar- innar. Byrjað var á því að setja togið í annan kamhinn. Kembikonan tók væna togvisk í hægri hönd en hélt á 12 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.