Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1976, Page 11

Hugur og hönd - 01.06.1976, Page 11
stundavinna sem þessi er að banda- rískri fyrirmynd. Verkfærin, munstr- in og allt, sem til þarf er komið það- an. Sú vinna er allt annað en þjóð- leg. „Cowboy”mynstur og amerískar rósir. — Þegar þú segir þjóðleg. Telur þú þín form og mynstur þjóðleg? — Eg reyni það já. Bæði sæki ég í norræn og keltnesk mynstur. Foi-m ræðst af hagnýti hlutarins. Það er heilmikið mál að hugsa út tösku, ef hún er stór. Eg hef notað gömul form, fléttur til dæmis. Það geri ég vegna þess að það er fallegt, frekar en að ég vilji vera þjóðlegur. Þessi mynstur falla líka vel að því sem ég bý til. Eg þarf bara að komast meir inn í þá skurðhefð sem er til hér á landi. Þeir hlutir sem eru til eru margir stórkost- legir, bæði að formi og gerð. — Þú drapst á það áðan að eigin- lega væri leðursmíði tímaskekkja. Handiðn sem væri verið að vekja upp að nýju. Hvers vegna tekur þú þér það hlutverk? — Þetta er sú vinna sem ég vil helst vinna. Og meðan ég og mínir getum lifað á afrakstrinum þá liggur í augum uppi að enginn kostur er betri. Hér í kringum mig í Aðalstræt- inu er margt handverksmanna. Það veitir vissa öryggiskennd að vita af fólki eins og systkinunum í Grjóta- götu 4. Og þar sér maður líka fyrir sér þann hugsunarhátt sem skilar vandaðasta verkinu, hlut sem er unn- in af ýtrustu vandvirkni án nokkurs asa. Og slíkt dagsverk er gott. P. B. B. HUGUR OG HÖND 11

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.