Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1976, Blaðsíða 16

Hugur og hönd - 01.06.1976, Blaðsíða 16
Hnýttar töskur Töskurnar eru hnýttar úr grófu hampgarni, nema sú litla kringlótta, hún er hnýtt úr hvítu snæri. Þær eru ýmist fóðraðar með gráum segldúk (Tarpaulin-dúk) eða að þær eru saumaðar úr segldúknum og síðan skreyttar með hnýtingum og tréperlum. Þessi efni fara mjög vel saman, og það er hægt að fá skemmtilegt handavinnu- efni í veiðafæraverzlunum. Litla ferkantaða taskan er saumuð úr dúknum og aðeins hliðar og lok er hnýtt. Hana má hengja í mittisbeltið, en kringlótta taskan er borin um hálsinn. Stóra taskan er gerð úr 4 hlutum sem allir eru eftir sama sniði, 2 úr segldúk og 2 hnýttir. Segldúks- hlutarnir eru saumaðir saman og stungið niður í hnýttu hlutana sem einnig hafa verið saumaðir saman. Hankarnir eru fléttaðir í svokallaða færeyzka snúru. Hún er gerð úr 8 þráðum og eru 4 þræðir hafðir í hvorri hendi. Aftasti þráðurinn í hægri hendi er færður á bak við þræðina í þeirri hendi og tvo þræði í vinstri hendi, þ. e. hann er færður upp á milli 2. og 3. þráðar í vinstri hendi, og síðan til baka til þráðanna í hægri hendi og verður þá fremsti þráðurinn þar. Þá er aftasti þráðurinn í vinstri hendi færður aftur fyrir þræðina, upp á milli 2. og 3. þráðar í hægri hendi, og svo til baka til vinstri handar. Það eru alltaf 4 þræðir í hvorri hendi eftir hverja til- færzlu. Þetta er endurtekið þar til snúran er hæfilega löng. Snúran verður ferköntuð og er sterk og falleg. Það er hægðarleikur að ruglast í ríminu í þessari fléttu og ef maður þarf að fara frá í miðju verki, er vissara að hnýta saman með lausum hnút þá 4 þræði hvorrar handar, svo auðvelt verði að sjá hvar taka skal til við fléttuna á ný. Helga Egilsson. 16 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.