Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1976, Side 29

Hugur og hönd - 01.06.1976, Side 29
og fengu þarna nýtt hlutverk. Ullar- kambar voru kallaðir körrur og mun það vera vestfirzka. Hrosshárið var lyppað úr kembunni og síðan spunnið úr lopanum. Ur spunnu hrosshári var síðan unnið með ýmsu móti: Fléttuð reipi, brugðnar gjarðir og höfuðleður á beizli og gerðar mottur bæði brugðn- ar og ofnar. Tátiljur prjónaðar lir hrosshári þóttu mesta þing í vetrar- ferðum í frosti vegna þess hve hlýjar þær voru, þær voru hafðar innan undir ullarsokkum. Prjónaðar hross- hársþvögur voru hafðar til að þvo með potta og önnur ílát. Hrosshár (taglhár) var líka haft i sópa og bursta, en þá auðvitað óunnið. Þeir entust í áratugi. Ég vissi um biindan mann, sem vann hrosshár. Hann gerði sópa og hann spann í reiptögl og fléttaði þau. Jóhanna Kristjánsdóttir, Kirkjubóli. Jóhanna kom í Hafnarstrætið og sýndi okkur, hvernig spunnið er á hrosshárssnældu, sem einnig mun hafa verið nefnd vitlausa snælda eða vitlausa vingla. Venja var að aðeins einn ynni verkið sveiflaði snældunni í vinstri hendi en teygði lopann með þeirri hægri. Jóhanna notaði sína eig- in aðferð, hún hafði hjálparmann, sem sneri snældunni á meðan hann gekk aftur á bak frá henni eftir því sem þráðurinn lengdist. Þá var hægt að nota báðar hendur til að teygja hrosshárið jafnara og fínna, auk þess hægt að spinna lengri þráð milli þess sem undið var á snælduna. HUGUR OG HÖND 29

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.