Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 29
„Haustar að“, pappírsverk eftir Hólmfríði
Árnadóttur. Eigandi: Savaria Muzeum,
Ungverjalandi. Ljósmynd: Guðmundur
Jóhannesson. Studio Mats.
HEIMSOKN I VINNUSTOFU
Hólmfríðar Ámadóttur
Fyrir skömmu gekk ég við hjá
Hólmfríði Árnadóttur i vinnu-
stofu hennar við Klapparstíg í
Reykjavík. Ég hafði boðað komu
mína og Hólmfríður lofaði að sýna
mér hvað hún væri að fást við þessa
dagana.
í vinnustofunni var margt að sjá,
fullunnin pappírsverk og textílverk
voru á öllum veggjum, svo og hug-
myndir að verkum sem nú eru í gerj-
un.
Myndverk gerð í pappír vöktu sér-
staka athygli mína, en það efni hefur
fangað huga Hólmfríðar meira en
önnur nú í áraraðir og á þessu sviði
hefur hún ef til vill náð hvað lengst í
listsköpun sinni. Pappírsverk hennar
hafa verið sýnd á fjölmörgum sýning-
um hæði hérlendis og erlendis. Hólm-
fríður hefur efnt til tveggja einkasýn-
inga hér á landi á pappírsverkum sín-
um, sú fyrri var fyrsta sýning sinnar
tegundar hér á landi. Hólmfriður hef-
ur fyrir löngu skapað sinn persónu-
lega stíl, óháðan því efni sem hún
vinnur með hverju sinni. Ég fékk góð-
fúslega leyfi til að birta í Hug og hönd
eitt verka hennar. Það nefnist „Haust-
ar að“ og er gott dæmi um tjáningu og
verklag Hólmfríðar í þetta efni.
Myndin er gerð úr handlituðum og
handunnum pappir með ívafi úr gull-
þræði. Textíll síðustu ára hefur m.a.
teygt vaxtarsprota sína frá hefð-
bundnu vefjarefni yfir í að tjá slík
hugverk í pappír, enda vefjarefni og
pappír skyld efni þar sem uppistaða í
báðum efnunum er náttúrutrefjar.
Um leið og varðveisla menningar-
arfsins er henni þýðingarmikil leitar
hún sífellt nýrra leiða og tækni í tján-
ingu sinni. Sum verk Hólmfríðar
mætti kenna við framúrstefnuverk þar
sem hún losar sig frá hinu hefðbundna
í vali efna og tækni, en missir þó aldrei
sjónar á sígildum grundvallaratriðum
við útfærslu hugmynda sinna í efnið.
Þó hér hafi enn aðeins verið fjallað
um textíl- og pappírsverk Hólmfríðar
hefur aðalvettvangur hennar verið á
sviði kennslu. Frá þvi að hún útskrif-
aðist frá Handíða- og myndlistarskóla
íslands vorið 1951 hefur hún kennt á
öllum stigum skólakerfisins, fyrst við
grunnskóla og framhaldsskóla
Reykjavíkur en síðan við Kennarahá-
skóla Islands þar sem hún er nú lektor
í list- og verkgreinaskor.
Hólmfríður hefur frá því fyrsta ver-
ið ötull brautryðjandi margs konar
nýjunga á mörgum sviðum kennslu,
þá ekki síst hvað varðar notkun ís-
lensku ullarinnar í skapandi starfi
nemenda sinna. Henni hefur alltaf
tekist að nálgast hugi nemenda sinna
og efla áhuga þeirra til úrvinnslu eigin
hugmynda með því að sækja sér fyrir-
myndir forms og lita í sitt nánasta
umhverfi sem ekki var venja áður fyrr.
Áhrif Hólmfríðar á handlista-
kennslu í íslenskum skólum eru óum-
deilanleg. Ég hef kynnst störfum
hennar í stefnumarkandi nefndum og
starfi innan Menntamálaráðuneytis-
ins allt frá 1971 til þessa dags. Koma
þar sterklega fram þau sjónarmið sem
hún hefur ætíð sett á oddinn og hér
hefur verið lýst að nokkru. Hólmfríð-
ur hefur staðið fyrir og kennt á fjöl-
mörgum kennaranámskeiðum og
þannig haft veruleg bein áhrif á stefnu
og strauma í mynd- og handmenntar-
kennslu um langt skeið og enn er eng-
an bilbug á henni að finna.
Þórir Sigurðsson
HUGUR OG HÖND
29