Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 35
3.
Hinn rammi safi rennur frjáls í gegn
um rót er stóð í sinni moldu kyr,
en öðrum finnst sig vanta vaxtarmegn
þótt vorið fljúgi í lofti hraðan byr.“
Hulda Jósefsdóttir
Steinunn Marteinsdóttir er fædd í Reykja-
vík árið 1936. Hún lauk prófi úr Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið 1957,
stundaði framhaldsnám í Vestur-Berlín
1957—1960. Hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga heirna og erlendis frá 1960. Einnig
haldið margar einkasýningar.
Steinunn er ein af stofnendum Leirlista-
félagsins. Verk eftir hana eru í eigu Lista-
safns Háskólans, . Listasafns Kópavogs,
Listasafns Borgarness, Verslunarbanka ís-
lands, Pósts og síma, Ármúla, og Krabba-
meinsfélags fslands.
tækari merkingu. Farið að huga meira
að öllum greinum hennar. “
— Er auðveldara að Ufa af faginu í
dag en það var þegar þú byrjaðir?
„Já, vegna þess að í dag er ég þekkt-
ari. Annars hefur þjóðfélag okkar
breyst mjög á þessum árum, það er
orðið grimmt samkeppnisþjóðfélag.
Ég öfunda ekki unga fólkið í dag sem
þarf að brjótast í gegnum samkeppn-
ismúrinn sem stöðugt hækkar. Mig
grunar að skólarnir hafi lagt of mikla
áherslu á málverkið á kostnað listiðn-
aðargreinanna. Handverkið er undir-
staða allra greina myndlista. Við verð-
um að kenna nemendum miskunnar-
lausan sjálfsaga og vönduð vinnu-
brögð, tæknilegar hliðar fagsins og
möguleika efnisins og verkfæranna.
Einnig þurfum við að rækta tengsl við
eigið umhverfi, bæði að fornu og
nýju, gæta þess að týna ekki sjálfum
okkur í erlendum tískustefnum á
hverjum tíma. Minnumst orða Jóns
Helgasonar:
1. Steinunn Marteinsdóttir á vinnustofu
sinni 1984.
Ljósmynd: Kristján Ingi Sigurðsson.
2. Skúlptúrvasi, 1980.
Steinleir.
3. Líkn og líf 1986. Postulín, 200x114
cm. Eigandi Krabbameinsfélag Islands.
4. Jökulstef 1974. Steinleir.
Ljósmyndir: Kristján Pétur Guðnason
nr 2, 3 og 4.
35