Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Blaðsíða 13

Hugur og hönd - 01.06.1987, Blaðsíða 13
Framstykki: Fitjaðar eru upp 108 lykkj- ur fremur fast með bláa litnum (nr 42) og prjónaðar 7 umferðir, 4 garðar á réttu. Bláa bandið slitið frá. Byrjað er á lita- munstrinu þannig (rétta): 25 lykkjur mosagrænar, 28 bláar, 2 ljósmórauðar, 28 mórauðar og 25 bláar. Næsta umferð (ranga) er prjónuð alveg eins, þ.e. allar lykkjur prjónaðar með eigin lit (hið sama gildir um allar umferðir frá röngu) og nú *er byrjað að krækja litum saman þar sem þeir mætast eins og sýnt er á teikningu B, sjá einnig d) í leiðbeiningum. í 3. umferð koma 24 lykkjur mosa- grænar, 28 bláar, 4 ljósmórauðar, 28 mórauðar og 24 bláar. Skilhankir hanga röngu megin og þar er þeim krækt saman eins og teikning A sýnir. Skálínurnar í munstrinu eru þannig fengnar með því að færa litfletina um eina lykkju til hægri eða vinstri í hverri umferð frá réttu. 28 lykkjur eru í rákunum þar sem þær eru breiðastar og verður lykkjufjöldinn hvergi meiri í lit. Fyrstu (neðstu) litfletir á framstykki breytast því þannig að mosagrænn og blár í hliðum hverfa eftir 50 umferðir, 28 lykkjur haldast í bláa og mórauða þar til þeir ná út í jaðra, þá minnkar lykkjufjöldinn og hverfur að lokum. Ljósmórauði hlutinn sem byrjar með tveimur lykkjum í 1. umferð bætir við sig einni lykkju hvorum megin, þar til þær eru orðnar 28, þá eru komnir 14 garðar (28 umferðir) í litamunstrinu. I 29. um- ferð bætast tveir litir við milli þess bláa og ljósmórauða þannig: 11 lykkjur mosa- grænar, 28 bláar, 1 ljósmórauð, 1 mosa- græn, 28 ljósmórauðar, 28 mórauðar og 11 bláar, sjá á teikningu af framstykki hvernig litir færast til og mætast. Eftir 28 garða er 57. umferð þannig: 25 lykkjur bláar, 15 ljósmórauðar, 15 mosagrænar, 27 ljósmórauðar, 1 dökk- blá og 25 mórauðar. Dökkblái liturinn mætir þeim ljósmórauða í lóðréttri línu og tekur smátt og smátt við af honum í rákinni. Eftir 42 garða eru ljósmórauðu og mosagrænu lykkjurnar orðnar 28. Kem- ur þá í 85. umferð dökkblár litur á milli þeirra: 11 lykkjur bláar, 28 ljósmórauð- ar, 2 dökkbláar, 28 mosagrænar, 13 ljós- mórauðar, 15 dökkbláar og 11 mórauðar. Nýi dökkblái flöturinn breikkar til beggja handa, þar til lykkjurnar eru orðnar 28, komnir 56 garðar. Þá bætast mosagrænn og blár við í 113. umferð: 25 lykkjur ljósmórauðar, 28 dökkbláar, 1 mosagræn, 1 blá, 28 mosagrænar og 25 dökkbláar. hægri ermi Eftir 84 garða eru komnar 28 mosa- grænar og bláar lykkjur, bætist þá ljós- mórauður flötur við milli þeirra í 169. vinstri ermi umferð: 25 lykkjur dökkbláar, 28 mosa- grænar, 2 ljósmórauðar, 28 bláar og 25 mosagrænar. Eftir 14 garða í viðbót (alls 98) bætist mórautt við í 197. umferð: 11 lykkjur dökkbláar, 28 mosagrænar, 2 mórauðar, 28 ljósmórauðar, 28 bláar og 11 mosagrænar. Þegar mórauðu lykkjurnar eru orðnar 28 er tekið úr fyrir hálsmáli og hvor öxl prjónuð fyrir sig. Hálsmálið kemur nið- ur í odda fyrir miðju og myndast við að ein lykkja er tekin úr í 2. hverri umferð. A vinstri öxl eru síðustu 2 mórauðu lykkjurnar í umferð frá réttu prjónaðar saman, á hægri öxl eru fyrstu 2 ljósmó- rauðu lykkjurnar í umferð frá réttu prjónaðar saman (steypt yfir). Þannig er haldið áfram þar til eftir eru 28 mórauð- ar (ljósmórauðar) lykkjur og 3 mosa- grænar (bláar). Síðan er fellt af. Bak. Fitjaðar upp og prjónaðar jafn- margar lykkjur og umferðir með bláu og á framstykki. 1. umferð (rétta) með lit- HUGUR OG HÖND 13

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.