Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Blaðsíða 15

Hugur og hönd - 01.06.1987, Blaðsíða 15
HEIMILISIÐNAÐAR- SKÓLINN Veturinn 1986—1987 var Heim- ilisiðnaðarskólinn starf- ræktur að venju frá sept- emberbyrjun til maíloka. Haldin voru samtals 30 námskeið og var nemenda- fjöldi um 230. Við skólann störfuðu 14 kennarar auk skólastjóra. Bryddað var upp á þeirri nýjung að stofna til sérstakra námskeiða fyrir þá sem leiðbeina öldruðum í handíðum á hinum ýmsu heimilum og stofnunum aldraðra. Þetta urðu tvö fullsetin nám- skeið, á öðru var kennd körfugerð, á hinu leðursmíði. Kennt var fyrir hádegi í tvær vikur. Um þessi námskeið var haft sam- ráð við Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Síðastliðin tvö ár hafa verið allerfið í skauti, vegna þess hve dregið hefur úr aðsókn að skólanum. Hvað veldur er ekki fullljóst, en sjálfsagt eru hér að verki margir samverkandi þættir sem erfitt er að vinna gegn. Minnkandi að- sókn veldur lélegri afkomu skólans sem kemur niður á léttum sjóðum félagsins. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á húsnæði skólans í sumar. Kennslustofa á neðstu hæð hefur verið stækkuð með því að fjarlægja veggi. Verður því væntan- lega hægt að nýta hana betur en verið hefur, m.a. fyrir námskeið í fatasaumi. Námskeiðum fyrir leiðbeinendur aldraðra verður haldið áfram á skólaár- inu 1987—1988. Fyrirhuguð eru tvö slík námskeið, annað í október, hitt í febr,— mars. Með tilliti til þess að leiðbeinend- ur utan af landi eigi auðveldara með þátt- töku, standa þau yfir aðeins í eina viku, en kennt allan daginn kl. 9—16.30. A hvoru námskeiði verða teknar fyrir tvær greinar, körfugerð og bandvefnaður á því fyrra og tréskurður og tauþrykk á því síðara. Að öðru leyti skal vísað á lista yfir námskeið vetrarins hér að neðan. í skólanefnd eru nú Þórir Sigurðsson formaður, Elsa E. Guðjónsson, Hildur M. Sigurðardóttir, Ingibjörg Þorvalds- dóttir og Ragnheiður Thorarensen. Sigríður Halldórsdóttir Ljósmynd: Sigríður Halldórsdóttir. HUGUR OG HÖND NAMSKEIÐ HEIMILISIÐNAÐAR- SKÓLANS VETURINN 1987-1988 Vefnaður, alm. 7. sept. Leðursmíði 11. jan. Utskurður 16. sept. Tuskubrúðugerð 12. jan. Prjóntækni 23. sept. Bótasaumur 12. jan. Leðursmíði 26. sept. Dúkaprjón 13. jan. Þjóðbúningasaumur 2. okt. Þjóðbúningasaumur 15. jan. Þjóðbúningasaumur 3. okt. Fatasaumur 16. jan. Tauþrykk 6. okt. Vefnaður, alm. 18. jan. Fatasaumur 12. okt. Myndvefnaður 28. jan. Bótasaumur 13. okt. Knipl 30. jan. Tuskubrúðugerð 13. okt. Tóvinna 1. febr. Knipl 14. okt. Tauþrykk 2. febr. Spjaldvefnaður 22. okt. Útskurður 3. febr. Námskeið fyrir Tuskubrúðugerð 9. febr. leiðbein. aldraðra 26. okt. Saumagínugerð 12. febr. Vefnaður, uppsetning 2. nóv. Prjóntækni 24. febr. Myndvefnaður 5. nóv. Námskeið fyrir Baldýring 9. nóv. leiðbein. aldraðra 29. febr. Tuskubrúðugerð 10. nóv. Jurtalitun 29. febr. Útskurður 11. nóv. Vefnaður, alm. 14. mars Saumagínugerð 20. nóv. Útskurður 6. apr. Vefnaður, glit o.fl. 30. nóv. Körfugerð 12. apr.

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.