Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Blaðsíða 17

Hugur og hönd - 01.06.1987, Blaðsíða 17
uð, þó að fátt eitt hafi varðveist af kríl- uðum böndum á söfnum. í Islenskum þjóðháttum eftir Jónas Jónasson (1856—1918) segir um kriluð bönd: . .krílað er á 3, 5, 7 og enda 9 þáttum. Kríluð bönd eru flöt, en þykkust í miðjunni. . .“. Jafnframt er sagt að kríluð bönd hafi verið notuð sem tengsli, stroffur, bolreimar o.fl. í Árbók h'ms íslenska fornleifa- félags 1964, skrifar Elsa E. Guðjóns- son grein um skinnsaumaða hempu- borða í Þjóðminjasafni sem taldir eru frá 18. öld. í þá voru m.a. notuð kríluð bönd, einlit svört úr togþræði. Grein- inni fylgir ítarleg lýsing á hvernig kríl- að er á 7 og á hliðstæðan hátt á 3 og 5. Aðferðina lærði Elsa hjá Halldóru Bjarnadóttur (1873—1981) og má telja víst að þetta sé sú aðferð sem notuð hefur verið hér á landi, þó er mjög erfitt ef ekki ógerlegt að kríla á 9 á sama hátt. Orðalag Jónasar Jónas- sonar „og enda 9 þáttum“ gæti bent til meiri vanda eða einhverra frávika. Elsa hefur eftir Halldóru Bjarnadótt- ur að kríluð bönd hafi m.a. verið not- uð sem slitbönd innan á samfellu- falda. Vitað er að sú aðferð við að kríla sem Elsa E. Guðjónsson lýsir í grein sinni hefur verið viðhöfð í mörgum löndum víða um heim og verður hún hér eftir nefnd aðferð I. Hún er í megindráttum þannig að innsta lykkja annarrar handar (lófar snúa upp) er dregin yfir í hina með vísi- fingri þeirrar handar í gegnum eina lykkju, þá sem er á löngutöng sömu handar. Lykkjur eru fluttar til á fingr- unum svo að sá vísifingur sem á að krækja í nýja lykkju verði laus. Lykkjufjöldi er látinn standa á stöku og er því ævinlega einni lykkju færra á þeirri hendi sem næst á að krækja í Iykkju. III Nú skal nánar lýst hvernig krílað er á 5 lykkjum með aðferð I. Raktar eru 5 jafnlangar lykkjur (ekki lengri en 75—100 cm) gjarnan með 2—3 litum. Þær eru bundnar saman í opna end- ann í einn hnút sem festur er í glugga- krók, hurðarhún eða annað fast. (Ágætt er að kappmella litla snæris- lykkju upp fyrir hnútinn og hengja hana á krókinn). Lykkjunum 5 er rað- að á fingurna, t.d. á löngutöng (Lh) og baugfingur (Bh) hægri handar og á vísifingur (Vv), löngutöng (Lv) og baugfingur (Bv) vinstri handar. Lykkjunum er haldið strekktum við fremsta liðinn og snúa lófar upp. Nú er Vh stungið inn í lykkju á Lh (þum- alfingur getur hjálpað til að halda lykkjunni opinni), síðan krækir Vh í lykkju á Bv og dregur hana til sín gegnum Iykkjunaá Lh, 2. mynd 1. Nú sitja 3 lykkjur á hægri hendi en aðeins 2 eftir á þeirri vinstri sem næst á að krækja sér í lykkju. En fyrst er lykkja á Lv flutt á Bv, lykkja á Vv flutt á Lv. Þá er Vv laus og getur krækt í lykkju á Bh sem hann dregur til sín gegnum lykkjuna á Lv á sama hátt og Vh gerði áður í gegnum Lh, 2. mynd 2. Á hægri hendi sitja nú lykkjur á Lh og Vh, þær eru fluttar í réttri röð á Bh og Lh og sitja þá eins og í upphafi lýsingar. A & c o 3. Þannig er krílað áfram. í hvert sinn sem krækt hefur verið í lykkju, er bragðið flutt frá höndunum með því að breiða út faðminn og þarf að gæta þess að herða álltaf jafnt, því að eftir því sem lykkjurnar styttast verður auðveldara að herða bragðið. Ef leggja þarf verkið frá sér áður en því er lokið, verður að ganga þannig frá lykkjunum að hægt sé að taka þær nákvæmlega eins upp aftur, t.d. með því að draga skilband undir og yfir hvern þátt, fram og til baka og binda endana saman. Það er ekki auðvelt að raða lykkjunum rétt á fingurna aftur hafi þeim verið sleppt lausum. Hægt er að krækja á nokkra mis- munandi vegu í lykkjuna sem á að draga yfir á hina höndina, 3. mynd A—D. Ef krækt er með bragði A snýst lykkjan ekki, hægri lykkjuhelmingur verður áfram hægra megin, hvort sem lykkjan er á hægri eða vinstri hendi. Ef krækt er eins og sýnt er með B (eða C sem gefur sama árangur) snýst lykkjan um hálfhring við að flytjast milli handa. Þetta sést vel ef tveir litir eru hafðir í sömu lykkju (hnútur við fingur). Þegar krílað er með aðferð I verður aðeins lítill áferðarmunur á bandinu, hvort krækt er með bragði A eða B (C), og litir raðast einnig eins nema ef tveir litir eru í sömu lykkju. Aftur á móti ef krækt er með bragði D snýst lykkjan um heilan hring og við það breytist áferðin talsvert. Bragð A og B eru vafalaust þau sem mest hefur verið beitt, líklega jöfnum höndum. í lýs- ingu Elsu E. Guðjónsson er bragð B notað, en undirritaðri er tamara að nota A og hefur gert það á sýnishorn- um, nema annað sé tekið fram, (1. mynd). Á sama hátt og krilað er á 5 er kríl- að á 3 og 7. Vísifingur og langatöng notuð fyrir 3 Iykkjur, en fyrir 7 eru all- ir fingur notaðir nema þumalfingur. „Kríluð bönd eru flöt en þykkust í miðjunni“, segir í íslenskum þjóðhátt- um. Þetta á við um bönd kriluð á 5 og 7 með aðferð I, en sé krílað á 3 verður bandið nær því að vera þrístrent, þ.e. ef krækt er með bragði A eða D. Ef notað er B myndast tvö bönd sem hvort um sig er eins og þríflétta. Bönd kríluð á 5 og 7 eru áþekk í út- liti. Á annarri hliðinni, þeirri sem nið- ur snýr þegar krílað er, koma fram tvær samhliða lykkjuraðir. Hliðarnar sem upp snúa eru ekki eins líkar, þó að báðar minni þær á fléttu. Ur sama efni verða þau álíka breið en misþykk. Að kríla á 9, eins og álykta má af orðum Jónasar Jónassonar að hafi 1. Bönd a,b,c, og d eru krfluð á 3,5,7 og 9 með aðferð I, bönd e,f og g eru krfluð á 5,7 og 9 með aðferð II. Efst sést sú hlið sem upp snýr þegar krflað er, að neðan er sú hlið sem niður snýr. HUGUR OG HÖND 17

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.