Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 16

Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 16
KRÍLUÐ BÖND Til eru ótrúlega margar aðferðir við að búa til bönd eða linda, brugðin á ýmsan hátt með fingrunum einum án áhalda. Af að- ferðum sem þekkjast frá gamalli tíð á Islandi mætti t.d. nefna að bregða (gjörð), flétta (reipi), ríða starkóng, stima, fingra og kríla. Síðast nefnda aðferðin, að kríla, verður tekin hér til umfjöllunar. Kríluð bönd eru gerð úr mismun- andi mörgum lykkjum sem fingrum beggja handa er smeygt í. Lykkjurnar fléttast saman í band við að flytja þær á sérstakan hátt milli handa. Þó að grunnaðferðir við að kríla bönd séu í megindráttum eins, þ. e. að draga lykkju milli handa í gegnum eina eða fleiri næstu lykkjur á sömu hendi, er hægt að beita við það ýmsum tilbrigð- um sem gefa mismunandi áferð og Iögun. II Um uppruna þessarar bandagerðar er ekki vitað annað en að hún mun vera ævagömul. Ekki er heldur vitað hvenær eða hvernig hún barst til ís- lands, en talið víst að kunnáttan hafi lengi verið til staðar og allmikið not- 16 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.