Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 18
verið gert, er afar erfitt með aðferð I,
ef ekki ógerningur. Nota þyrfti alla
fingur og krækja í nýja lykkju með
þumalfingri, sem er mjög umhendis.
Aftur á móti kunna Finnar ráð sem
gerir auðveldara að krfla á 9.
IV
í 25 ára gömlu finnsku heimilisiðn-
aðarblaði, Vár hemslöjd-Kotiteol-
lisuus, 1962/1, er smágrein um kríluð
bönd og lýsing á handbrögðum í texta
(sænsk þýðing) og teikningum. Þar er
m.a. sýnt hvernig krílað er á 5. Einnig
þar er lykkja flutt milli handa með því
að draga hana í gegnum eina aðra, en
það er ekki gert með vísifingri heldur
baugfingri og farin öfug leið við það
sem áður er lýst. Baugfingur krækir í
lykkju á vísifingri í gegnum lykkju á
löngutöng, síðan eru lykkjur færðar
til á fingrunum þannig að baugfingur
verði laus á þeirri hendi sem næst á að
krækja í lykkju, 4. mynd 1. og 2. Þessi
bönd eru alveg eins og þau sem kríluð
eru á 5 með aðferðinni sem áður er
lýst, enda má rekja upp með annarri
aðferðinni það sem krilað hefur verið
með hinni, ef eins er krækt í lykkjuna.
Eini mismunurinn er sá að lykkjuraðirn-
ar tvær snúa í gagnstæðar áttir meðan
krflað er, en sá mismunur verður ekki
greindur á frágengnu bandi.
í finnsku greininni er einnig lýst
hvernig krílað er á 7 og 9. Þá er krækt
í nýja lykkju með litlafingri, en hér er
hún dregin í gegnum tvær næstu
lykkjur 5. mynd 1. og 2. Þegar lykkj-
urnar eru 7 mætti auðvitað einnig
krækja í lykkjuna með vísifingri og
draga í gegnum tvær með sama ár-
angri, 6. mynd.
Að draga nýja lykkju í gegnum eina
er, eins og áður er getið, nefnt hér að-
ferð I og að draga lykkju gegnum tvær
aðrar verður þá aðferð II, hvort sem
krækt er á íslenskan máta með vísi-
fingri eða finnskan með litlafingri
(eða baugfingri).
Eins og áður er nefnt er tiltölulega
auðvelt að krila á 9 á finnskan hátt. Þá
er krækt með litlafingri í lykkju á
þumalfingri og samkvæmt finnsku
fyrirsögninni er hún dregin í gegnum
tvær, þær sem eru á vísifingri og
löngutöng. Eins mætti nota aðferð I
og draga lykkju af þumalfingri aðeins
í gegnum þá á vísifingri.
Lítill munur er á þöndum, hvort
heldur þau eru kríluð með aðferð I eða
II, ef lykkjur eru 7 eða 9. Aðalmis-
munurinn er á þeirri hlið sem upp
snýr, þegar krílað er, 1. mynd c og f, d
og g. E.t.v. gefur aðferð II örlítið
breiðara band miðað við sama efni og
lykkjufjölda. Breytingar eru einnig
óverulegar, hvort heldur notað er
bragð A eða B.
Annað er uppi á teningnum þegar
krílað er á 5. Með aðferð II myndast
allt öðruvísi bönd en með aðferð I. Ef
krækt er í lykkjuna með bragði A eða
D myndast ferhyrnt band (ein hliðin
þó aðeins mjórri en hinar), 1. mynd e,
og 7. mynd a efst. Ef notað er bragð B
verða til tvær fléttur úr 5 þáttum hvor.
Svo er hægt að krækja öðrum megin
með bragði A og hinum megin með B,
myndast þá c-laga band sem flest út í
tvær breiddir, 7. mynd a. Og það kem-
ur einnig í ljós, ef krílað er á 7 og
lykkjan dregin í gegnum 3 á hliðstæð-
an hátt, myndast sams konar bönd, þ.
e. ferhyrnd og c-laga.
Nú hefur verið lýst tveimur grunn-
aðferðum við að krila á 3, 5, 7 og 9
lykkjum með ýmsum tilbrigðum. Þó
er langt frá að allir möguleikar séu
tæmdir. Þótt venjan sé að kríla með
stökum lykkjufjölda, er ekkert því til
fyrirstöðu að kríla á hliðstæðan hátt
með jafnri tölu, 4, 6 eða 8 lykkjum.
Verða þá til skiptis jafnmargar lykkjur
á báðum höndum eða tveimur lykkj-
um fleiri á annarri en hinni, alltaf
þeirri sömu. Með aðferðum I og II og
brögðum A og B fást nokkur mismun-
andi bönd.
Hægt er að kríla á fleiri lykkjum en
9, en þá verða tveir eða fleiri að hjálp-
ast að, krækja þá í lykkjur hver hjá
öðrum til skiptis. Sýnishorn b á 7.
mynd er krílað af tveimur á 11 lykkj-
um. 8. mynd 1.—4. sýnir hvernig það
var gert. Til er heimild frá 1937 um að
í sænsku Dölunum hafi verið kríluð
sérstök bönd úr 15 lykkjum, þar sem
þrjár kríluðu en sú fjórða færði
bragðið að bandinu.
VI
Það má vera ljóst að ekki verður
krílað án hjálpar lengra band en fæst
úr 75—100 cm löngum lykkjum. Eigi
að kríla lengra band þarf aðstoðar-
mann til að færa bragðið frá þeim sem
krílar að bandinu, en þá er heldur
engin fyrirstaða að kríla eins langt
band og húsrýmið leyfir. Kríluðu
böndin í skinnsaumuðu hempuborð-
18
HUGUR OG HÖND