Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Síða 33

Hugur og hönd - 01.06.1987, Síða 33
Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Norð- urlandi. Bændur hafa af því hlunnindi að hlú að æðarfuglinum og varpi hans og hirða dúninn sem hann fellir um varptímann. Til skamms tíma var dúnninn einnig hreinsaður heima á bæjunum og frásögnin, sem hér fer á eftir, er höfð eftir konu sem þekkir vinnubrögðin af eigin raun, Sigríði Guðmundsdóttur frá Syðra-Lóni á Langanesi, en þar var og er enn allgott æðarvarp. „Það var byrjað að hugsa fyrir verkun dúnsins þegar varpið var geng- ið. Þegar fuglinn fór að reyta sig og verpa var farið að taka dún úr hreiðr- inu strax og hægt var, en þess auðvitað gætt að skilja nóg eftir til að halda hita á eggjunum. Þetta var besti dúnn- inn, því þegar skriðið var úr eggjunum varð dúnninn, sem þá var eftir, klesst- ur og óhreinn. Þegar heim var komið með dúninn var hann þurrkaður í sól eins og mögulegt var. Þegar hann var orðinn þurr mátti geyma hann þannig þar til tími vannst til að verka hann til fulls. Þá var líka hægt að hrista úr honum stórgerðasta ruslið. Næsta verk var að breyskja dúninn sem kallað var, þ.e. hita hann þannig að strá, skurn og annað rusl sem í hon- um var varð stökkt. Meðan búið var við hlóðaeldhús heima, var dúnninn breysktur á hlóðunum, ýmist i potti eða á þunnri grjóthellu. Þetta var sein- legt, því ekki var hægt að breyskja nema litla dúnvisk í einu, og allan vara þurfti að hafa á að ekki kviknaði í dúninum, sérstaklega ef breyskt var í potti. Hellan hitnaði ekki eins skarpt, hélt hitanum betur og jafnar, og því var minni hætta á íkveikju. Síðar voru smíðaðir sérstakir ofnar til að breyskja í, skúffur hver upp af ann- arri, sem hitaðar voru á olíuvél. Þá var hægt að vera við þetta annars staðar en í eldhúsinu, en íkveikjuhættan var alltaf fyrir hendi. Því betur sem breyskt var, þeim mun auðveldara var að brjóta í dúninum, það var næsti liður í hreinsuninni. Þá var tekin visk, haldið þéttingsfast um hana og núið fast eftir dúngrindinni til að brjóta í henni, mylja ruslið sem í henni var. Siðan var takið losað og viskinni nuddað allmiklu lausar eftir grindinni til að hrista úr henni rusl og ryk. Það var kallað að raspa dún að hreinsa á handgrind. Dúngrindin var rammi, smíðaður HUGUR OG HÖND úr þykkum, sterkum plönkum. Ann- ars vegar í rammann voru boruð göt fyrir strengina, en hins vegar var þver- spýta fest með boltum og róm, og í hana boruð göt til að þræða strengina í á móti. Þetta var gert til þess að hægt væri að strekkja á strengjunum, því nauðsynlegt var að þeir væru vel 2. strekktir. Undir strengina, á endun- um, þar sem þeir nudduðust við tréð, voru oft settir litlir tréfleygar eða kubbar til að grindin entist betur. Tréð eyddist smám saman upp undan strengjunum, og vitanlega var auð- veldara að skipta um fleyga en að smíða nýja grind. í strengina var best að nota fiskilínu. Þetta var handgrind. Hún getur hafa verið u.þ.b. 60 X 80 cm að stærð. Þá voru einnig til svokallað- ar hrælgrindur, þær voru miklu stærri. Þá var farið þannig að þegar búið var að brjóta í, að dúnviskin var lögð á grindina, síðan var hrælnum, trépriki, strokið þvert á strengina, að sér. Þannig hristist vel úr dúninum. Hrælgrindin lék á ás, þannig að hægt var að snúa henni við þegar dúntugg- an var komin í gegn, og halda áfram að hrista úr dúninum. Dúnninn loddi við strengina. Þegar þessu var lokið, var kallað að búið væri að hreinsa. En þá var eftir annað verk og ekki fljótlegra, að tína dúninn. Þá var enn á ný farið höndum um allan dúninn, tíndar úr honum fjaðrir og fis, hrist úr honum ryk og hann lífgaður upp. Þá var hann loks fullhreinsaður. Það þótti gott dags- verk konu að hreinsa þrjú pund á dag, en talið að karlmaður gæti hreinsað fjögur pund með góðu móti. Við krakkarnir tókum til hendinni við dúntínsluna eftir því sem við gátum, síðan tók amma eða einhver annar fullorðinn við og fulltíndi dúninn. Ef amma átti í hlut, kom hún sér oftast vel fyrir sitjandi uppi í rúmi, tíndi dúninn og var óspör á sögurnar við okkur krakkana á meðan hún vann“ Þar sem dúnhreinsun er erfið iðja, kom að því á vélaöldinni að reynt var að smíða vélar til að létta starfið. Það var þó ekki fyrr en árið 1954 sem Bald- vin Jónsson í Sylgju fann upp vél sem gat gegnt þessu hlutverki. Hann smíð- aði nokkrar dúnhreinsunarvélar sem enn eru notaðar og þær sem síðar hafa verið smíðaðar eru lítt breyttar frá fyrirmynd Baldvins. Samband ís- lenskra samvinnufélaga setti upp dún- hreinsunarstöð á Akureyri árið 1950 og flutti hana til Reykjavíkur um 1970. Þar starfar hún enn og þar er nú orðið hreinsaður dúnn frá flestum æðarbændum á landinu, um 300 tals- ins. Aðeins stærstu búin hafa sínar eigin vélar til að hreinsa framleiðslu sína. En nú sem fyrr er það manns- höndin sem rekur smiðshöggið á verk- ið — fjaðurtínir dúninn. Gréta Þ. Pálsdóttir HEIMILDIR: 1. Jónas Jónasson frá Hrafnagili: Islenskir þjóðhættir, ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík 1961. 2. Lúðvík Kristjánsson: íslenskir sjávarhœttir V, Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík 1986. 3. Hlynur, rit Landssambands ísl. sam- vinnustarfsmanna, 1987/1, Reykjavík. 1. Æðarfuglshreiður. Ljósmynd: Hjálmar R. Bárðarson. 2. Dúnn hreinsaður á dúngrind að Árnesi í Trékyllisvík 1975. Ljósmynd: Þór Magnússon.

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.