Hugur og hönd - 01.06.1987, Qupperneq 42
PYNGJA ÚR LEÐRI
Framhlið og bakhlið úr 2—3
mm nautshúð. Á innra borði er
fóðurskinn. Innan á bakhlið er
hólf úr sauðskinni. Saumað er saman
með svörtum hörþræði og tveimur
nálum. Límt með Jötungripi eða öðru
snertilími. Snúran er úr svörtu kamb-
garni. Munstrið er fléttusaumað með
kambgarni í tveimur litum í stramma.
Grófleiki strammans er 5 spor á cm.
Ráðlegast er að byrja á að sauma
munstrið til þess að sjá nákvæma
stærð þess.
Báðar hliðar eru sniðnar úr leðrinu
eftir teikningunni. Átthyrnt gat skorið
á framhlið. Fóðurskinn sniðið eins og
hliðar, en án gatsins. Leður og fóður-
skinn er litað svart með sprittlit. Þegar
liturinn er þurr er nuddað yfir með
gæruskinnsbút til að festa litinn og ná
fram gljáa. Útsaumurinn er limdur
innan á gatið, síðan er fóðurskinnið
límt innan á báðar hliðar. Saumað er
í kringum átthyrninginn og í brúnir
framhliðar frá A til B, sjá ör við A.
Sauðskinnið i hólfið eða sjálfa pyngj-
una er sniðið eftir teikningu (punkta-
línu) og Iitað á sama hátt. Brot að ofan
límt niður, síðan er hólfið límt við
brúnir bakhliðar frá A að B og teknar
um leið smá fellingar eða rykkingar að
neðan ef þurfa þykir. Hólfið er síðan
saumað við bakhlið. Tveir Ieðurbútar,
2,5 X 7,5 cm að stærð, límdir saman og
síðan efst milli fram- og bakhliðar. Þá
er saumað í beinu framhaldi af saum
á framhlið frá B að A gegnum fjórfalt
leðrið. Tvö göt höggvin með höggpípu
í gegnum leðrið efst, sjá teikningu. Nú
eru kantar litaðir með fínum pensli
þar sem með þarf. Band snúið eða
krílað, um 130 cm langt, er kappmell-
að í annað gatið og bundið í hitt.
Hildur Sigurðardóttir
Pyngja þessi er hönnuð og unnin af
Hildi Sigurðardóttur á námskeiði í
leðursmíði í Heimilisiðnaðarskólan-
um.
Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason.
42
HUGUR OG HÖND