Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Síða 44

Hugur og hönd - 01.06.1987, Síða 44
HEIMILISIÐNAÐAR- SÝNING Farandsýning norrænu heimilis- iðnaðarsamtakanna var sett upp í Listasafni ASÍ í Reykja- vík og stóð frá23.—31. maí og í Amts- bókasafninu á Akureyri 6.—15. júní 1987. Sýningin var hluti sýninga sem Norðurlöndin settu upp í sambandi við norrænt heimilisiðnaðarþing sem var haldið í Kuopio í Finnlandi 1.—3. júlí 1986. Farandsýningin fór um öll Norðurlöndin og lauk hér á íslandi. Sýning Finnlands í Kuopio var lang- stærst, en það er venjan að það land sem heldur þingið hverju sinni setji upp allstóra yfirlitssýningu á sínum heimilisiðnaði. Finnar eru þekktir fyrir góða hönnun í iðnaði og eru óhræddir við að koma fram með og reyna nýjar leiðir í heimilisiðnaði. Það sem vakti óskipta athygli að þessu sinni voru grófar gólfmottur. Finnar álíta að það sé vaxandi áhugi fyrir gólfmottum ofnum úr grófu garni. Til þess að koma til móts við þá sem vefa eða leiðbeina í vefnaði, voru fengnir 8 ungir textílhönnuðir til að koma með nýjar hugmyndir. Samtímis var fram- leitt garn sem hentar sérstaklega vel fyrir þessa gerð af mottum („hár- garn“, unnið úr ull og dýrahári). Árangurinn af þessu samstarfi mátti sjá í sýningardeild þeirra, teikn- ingar, prufur og mottur. Einnig var þar bók með myndum og uppskriftum af öllum mottunum sem hópurinn gerði. Finnar hafa endurvakið gamla þjóðlega vefnaðargerð, einskonar hálfdregil. Á sýningunni voru vinnu- teikningar og prufur þar sem gefnar voru hugmyndir um hvernig er hægt að nota þessa vefnaðargerð fyrir nú- tíma heimili, t.d. í áklæði, púða og rúmteppi. Einnig voru veggteppi með þessum vefnaði. Margt fleira áhugavert var í finnsku deildinni, t.d. munir úr skinnum, flóka og steinum. „Nýr fatnaður byggður á gamalli hefð“ var yfirskriftin á aðalverkefni sænska sambandsins. Sænska heimil- isiðnaðarsambandið S.H.R., hefur unnið að þessu verkefni í samvinnu við tvo textílhönnuði. Hugmyndirnar eru fengnar frá gömlum prjónuðum, ofnum og útsaumuðum fatnaði. Not- uð eru efni sem eru fáanleg í verslun- um S.H.R. Fatnaðinn er hægt að kaupa tilbúinn, en fyrir þá sem vilja reyna sjálfir er einnig hægt að fá efni og leiðbeiningar. Þetta verkefni hefur vakið mikla athygli fjölmiðla, vegna þess að þarna er höfð samvinna við þekkta textílhönnuði. Noregur sýndi flókagerð, munstrað vélprjón, hnífa og tréskálar. Reynt var að sýna ólíkar aðferðir við að nota gamlan heimilisiðnað og menningu til nýsköpunar. í flókagerðinni voru 44 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.