Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 45

Hugur og hönd - 01.06.1987, Page 45
sýndir hattar, skór ýmiss konar og leikföng. Með munsturprjóninu er norski heimilisiðnaðurinn að hefja framleiðslu á nýrri gerð af heimilisiðn- aðarvörum. Farin var sú leið að eitt af norsku heimilisiðnaðarfélögunum hafði samband við textílhönnuð. Hann sótti hugmyndir sínar að munst- urprjóninu í gamlar fyrirmyndir og hannaði nýtísku fatnað. Með þessu móti hefur heimilisiðnaðarfólk fengið nýjar fyrirmyndir að vinna eftir. Tréskálarnar eru unnar með hefð- bundinni aðferð, en formin hafa breyst og eru orðin mjög nýtískuleg. Danir sýndu muni úr horni, beini og mýrareik. Einnig útsaum, Hedebo- saum, sem kenndur er við Hedebohér- að. Þar var unninn mjög vandaður út- saumur um 1750 til 1870. Efnið, sem venjulega var notað, var heimaunninn hör. Danska heimilisiðnaðarsam- bandið hefur kennt þennan útsaum á námskeiðum og aðlagað að nútíman- um. I Danmörku hafa horn og bein verið notuð öldum saman í ýmsa hluti, m.a. fiskiöngla, drykkjarhorn og skó- horn. Heimilisiðnaður úr horni varð mjög vinsæll um 1950, en hvarf að mestu um tíma þangað til nú á síðustu árum að aftur er farið að vinna úr horni og beini. Á sýningunni mátti sjá marga nýja fallega gerða muni úr þess- um efnum. Færeyjar sýndu kríluð og brugðin bönd svo og tólf þátta bönd, sem eiga það öll sameiginlegt að vera búin til án áhalda. Notagildi bandanna er marg- breytilegt. Brugðnu böndin eru aðal- lega notuð sem belti, hálsbindi eða sokkabönd. Tólfþátta böndin eru ein- göngu notuð til að festa skeiðarhnif- ana við beltið. Kríluðu böndin eru notuð til að styrkja og prýða brúnir á fatnaði. í Færeyjum er hefð að hringprjóna peysur. Ef peysan á að vera hneppt, þarf að klippa upp úr henni að fram- an. Síðan eru kríluð bönd saumuð við brúnirnar til að styrkja þær. 1. Veggteppi eftir Elísabetu Þorsteinsdóttur ofið úr handspunnu hrosshári. 2. Sænskir sýningarmunir. 3. Færeyskir sýningarmunir. 4. Danskir sýningarmunir. 5. Norskir sýningarmunir. HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.