Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 36
Víkurhvarfi 2 • 203 Kópavogur • Sími: 555 1413
www.glerverk.is • info@glerverk.is
NÝTUM PLÁSSIÐ MEÐ ÓTAKMARKAÐ ÚTSÝNI
Glerskála frá TS-Aluminium.
Svalalokanir og handrið frá Seeglass.
Svalalokanir með einföldu eða tvöföldu gleri. Hækkanlega skjólhandrið og almenn svalahandrið.
Fyrirtækið Glerverk býður upp á vandaða glerskála frá þýska framleiðandanum
TS-Aluminium sem eru að sögn
Þórs Marshall, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, stærstu
framleiðendur glerskála í Evrópu,
eða sólstofa eins landsmenn kalla
skálana gjarnan. „Allir skálarnir
eru smíðaðar úr viðhaldsfríu áli
í öllum litum og er álið það allra
flottasta sem völ er á í dag. Hér
áður fyrr voru skálar mest smíð-
aðar úr plasti, pvc eða timbri, en á
síðustu árum hefur tækninni farið
svo mikið fram að álið er alveg
búið að taka við.“ Hann segir gler-
skála úr áli endast lengur en plast-
og timburskála. „Slíkir skálar eru
sterkari og með bestu einangrun-
ina, sannarlega fullkomnir fyrir
íslenskar aðstæður. Þeir eru allir
settir saman á verkstæðinu okkar
í Víkurhvarfi og því 100% íslensk
framleiðsla.“
Algjör draumur
Það er sannarlega draumur að geta
setið úti á palli með fjölskyldunni,
á öllum tímum ársins, í landi þar
sem allra veðra er von. „Þannig
er hægt að eiga notalegar stundir
undir berum himni, hvort sem það
er að lesa bók á kvöldin eða borða
morgunmat með krökkunum um
helgar. Þá þarf ekki lengur að bíða
eftir góðu veðri til þess að sitja
úti á palli. Það er líka auðvelt að
opna allar hliðar skálans þegar
veður leyfir og hlaupa út í garð. Í
raun myndast nýtt og skemmtilegt
rými sem nýtist í svo ótal margt.
Glerskálinn er því hin fullkomna
tenging fyrir húsið við garðinn.“
Svalir allt árið
Glerverk er einnig umboðsaðili
fyrir Seeglass™ á Íslandi, sem hafa
framleitt og þróað svalalokanir í
20 ár. „Það skiptir miklu máli að
velja rétt svalalokunarkerfi, því
ekki eru öll kerfin eins og gæðin
eru mjög misjöfn. Helsti kostur
svalalokunar er að með henni er
hægt að nota svalirnar allt árið.
Svalalokanir hækka líka verðmat
íbúðarinnar og hlífa gluggum og
hurðum fyrir veðrinu, auk þess að
prýða húsið að utan.“
Útsýni án hindrunar
Sama fyrirtæki framleiðir einnig
póstalaust glerhandrið sem Þór
segir án efa vera flottustu lausnina
ef húseigendur vilja njóta útsýnis-
ins af svölum án hindrunar.
„Glerið er í álskúffu sem tengist
við svalalokunina sem gerir það
að verkum að skjólið á svölunum
verður eins lítið áberandi og völ
er á. Svo erum við einnig að bjóða
upp á glerhandrið með póstum og
gler annað hvort framan á svalir
eða inni á svölum í ýmiss konar
útfærslu.“
Fleiri spennandi vörur
Glerverk býður upp á fleira spenn-
andi segir Þór. „Við bjóðum t.d.
upp á hækkanleg skjólhandrið
sem er mjög skemmtileg lausn
fyrir veitingahús og líka heimili.
Glerverk er eina fyrirtækið hér-
lendis sem býður upp á svalalok-
unarkerfi með tvöföldu gleri þar
sem ramminn í kringum glerið er
líka einangraður ásamt braut-
unum. Að lokum má nefna Pergola
rimlaþakið sem er mjög vinsælt en
það má opna og loka með fjarstýr-
ingu og um leið er sama fjarstýring
notuð til að hækka og lækka í tón-
listinni. Allt þetta og meira til er
hægt að skoða í sýningarsal okkar
í Víkurhvarfi 2, Kópavogi.“
Nánari upplýsingar á www.gler-
verk.is og á Facebook.
Heimilið stækkað með Glerverk
Svalalokun frá Seeglassmax.
Glerskáli með flötu þaki. Nýtt frá TS-Aluminium.
Þór Marshall, framkvæmdastjóri
Glerverk (t.v.) og Roland Drechsel
frá TS-Aluminium. MYND/VALLI
Nú þarf ekki
lengur að bíða
eftir góðu veðri
því glerskálarnir
frá Glerverk gera
fjölskyldunni
kleift að njóta
pallsins eða
svalanna allt árið
um kring.
10 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RVERK OG VIT