Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 46
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær systir okkar, Kristín Björk Friðbertsdóttir sem lést fimmtudaginn 5. mars, verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 13. mars kl. 13.00 Friðbert Friðbertsson Njáll Trausti Friðbertsson Jóhann Grímur Friðbertsson og fjölskyldur. Elskuleg frænka okkar, Adda Geirsdóttir lést þann 20. febrúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Adda María Jóhannsdóttir Helga Björnsdóttir Geir Björnsson Halldóra Björnsdóttir og fjölskyldur. Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, Haukur Sveinbjörnsson frá Snorrastöðum, lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð þann 8. mars sl. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður jarðarförin auglýst síðar. Branddís Margrét Hauksdóttir Kristján Ágúst Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Okkar elskaða Lilja Bernódusdóttir frá Skagaströnd, sem lést að heimili sínu þann 9. febrúar, verður jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 14. mars kl. 13. Halla Björg Bernódusdóttir Ari Hermann Einarsson Þórunn Bernódusdóttir Guðmundur Jón Björnsson Ólafur Halldór Bernódusson Guðrún Pálsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Gunnar Ólafsson (Gunnar í Odda) Bessahrauni 10, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum sunnudaginn 8. mars. Útförin fer fram frá Landakirkju, föstudaginn 27. mars, klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir. Erla Kristín Sigurðardóttir Hlynur Bergvin Gunnarsson Gunnlaug Hannesdóttir Þröstur Árni Gunnarsson Sigrún Jónbjarnardóttir Gunnar Björn, Berglind Ósk, Birkir Már, Kristinn Már og Daníel Karl Það er bylur norður á Strönd-um og Ragnar Bragason, bóndi á Heydalsá, er eigin-lega veðurtepptur heima hjá sér, þegar ég næ í hann í síma. Annars væri hann að sinna rúningi á öðrum bæjum. Hann bindur ekki á sig skíðin þennan dag- inn en vann það afrek 1. mars að ganga Vasagönguna í Svíþjóð, milli Sälen og Mora, 90 kílómetra leið. Það gerðu líka fimm aðrir úr Skíðafélagi Stranda- manna, þar af fjórir bændur, eins og bb.is greindi frá. Ragnar fór brautina á 6,25 tímum, var rúmum tveimur tímum á eftir sig- urvegaranum, að eigin sögn. „Ég var í góðu sæti í röðinni og það dugði mér til að verða fyrstur í mark af Íslend- ingunum sem voru um 40 sem luku göngunni.“ Hann segir það með fæsta móti, oft hafi þeir verið 60-70, kjarni sem fari nánast á hverju ári. „Það er gríðarleg stemning að taka þátt. Eftir því sem maður fer oftar togar gangan meira í mann. Umhverfið er f lott þarna í skógunum, góð stemning í brautinni og einstök upplifun að klára. Sérstak- lega er sigur að komast í mark í erfiðum aðstæðum.“ Allt í einu fór að snjóa Þar sem snjólétt hefur verið í Norður- Evrópu í vetur segir Ragnar búið að af lýsa mörgum skíðagöngum í World- Loppet mótaröðinni. Svíar lögðu mikla vinnu, og á annað hundrað milljónir, í að framleiða snjó og keyra hann í þessa 90 kílómetra braut. „Það höfðu verið hlýindi í nokkrar vikur fyrir Vasa- gönguna en á keppnisdaginn fór allt í einu að snjóa og sentimetra jafnfall- inn snjór bættist í brautina svo gangan varð hæg og erfið og sporið hvarf fyrir þá öftustu.“ Eftir að Ragnar kom í mark kveðst hann hafa farið í sturtu, í hlý föt og fengið sér að borða. Síðan hafi hann komið sér fyrir við markið, með syni sínum Stefáni sem gat ekki tekið þátt vegna lasleika. „Við fylgdumst með fólki ljúka göngunni og eftir því sem á leið urðu bros þess breiðari og gleðin meiri við að ná settu marki.“ Sextán þúsund keppendur voru skráðir í Vasagönguna þetta árið, að sögn Stefáns, þar af voru fjórtán þús- und sem störtuðu. „Margir hættu við því þeir höfðu ekki getað æft sig vegna snjóleysis. Af þátttakendum voru um tvö þúsund sem náðu ekki tímamörk- um, enda er þetta eins og að ganga 130- 140 kílómetra við góðar aðstæður. Svo brýtur fólk stafi og skíði en það eru brautarverðir á ferðinni sem koma fólki til aðstoðar. Svo eru drykkjastöðvar með tíu til fimmtán kílómetra millibili og þar eru læknar líka. Allt skipulag er til fyrirmyndar hjá Svíunum.“ Þetta var í fjórða skipti sem Ragnar tekur þátt í Vasagöngunni. Fór fyrst 2009 með tveimur félögum af Ströndum og árið 2012 með konunni og tveimur krökkum. „Krakkarnir tóku þátt í Ung- dóms-Vasa og konan í Hálf-Vasa en ég í 90 kílómetra göngunni. Svo kom hlé hjá mér þar til í fyrra, þá fórum við sjö af Ströndum. Aðstæður voru enn erfiðari en núna, mikil snjókoma, mótvindur og skafrenningur á köf lum. Þá var líka sögulega lélegur tími hjá sigurverar- anum. Tveir í okkar hópi veiktust fyrir gönguna en tóku samt þátt og fengu lungnabólgu í kjölfarið, annar varð að hætta á miðri leið vegna veikinda. Hann fór aftur í ár og gekk vel.“ Fjölskyldusport á Ströndum Skíðafélag Strandamanna er rúmlega tvítugt. Ragnar er einn af stofnendum þess og hefur tekið virkan þátt í starf- inu alla tíð. „Við höfum byggt upp aðstöðu í Selárdal í Steingrímsfirði, meðal annars skíðaskála, og fáum þangað fólk úr Reykhólasveitinni sem er öf lugt í þessu sporti. Margir félag- arnir eru úr bændastétt og það sem tengir okkur líka saman er að börnin okkar hafa verið að æfa skíðagöngu, þá koma foreldrarnir með. Þetta verður fjölskyldusport.“ Ragnar segir óvenjugóðar aðstæður til skíðagöngu á Ströndum í vetur, þær bestu í mörg ár. „Þetta hefur verið alvöruvetur og við höfum getað æft vel, þegar veður leyfir. Í Selárdal er mesti snjór síðan 1995. Við tókum upp á þeirri nýjung í vetur að bjóða upp á skíðagöngunámskeið, fengum gott fólk frá höfuðborgarsvæðinu til að kenna okkur. Þannig að starfið er metnaðar- fullt.“ gun@frettabladid.is Sigur að komast í mark í erfiðum aðstæðum Ragnar Bragason, bóndi á Heydalsá í Steingrímsfirði, var fyrstur 40 Íslendinga í mark í Vasagöngunni í Svíþjóð 1. mars. Gangan er 90 kílómetra löng, frá Sälen til Mora. Skil- yrðin voru slæm vegna snjókomu en gleðin því meiri hjá þeim sem komust alla leið. Félagarnir af Ströndum og úr Reykhólasveit, þeir Jón Eðvald Halldórsson, Ágúst Helgi Sigurðsson, Hjalti Helgason, Ragnar Bragason, Rósmundur Númason og Vilberg Þráinsson í Sälen árla að morgni keppnisdags. MYND/STEFÁN SNÆR RAGNARSSON Það er gríðarleg stemning að taka þátt. Eftir því sem maður fer oftar togar gangan meira í mann. Umhverfið er flott þarna í skógunum, góð stemning í brautinni og einstök upplifun að klára. 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.