Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 52
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R32 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
Níu líf, söngleikur um Bubba Morthens, verður frumsýndur í Borgarleikhúsinu föst udag inn 13. mars. Ólafur Egill
Egilsson er höfundur verksins og
jafnframt leikstjóri. Um tónlistar-
stjórn sér Guðmundur Óskar Guð-
mundsson.
Ólafur Egill er fyrst spurður hvort
Bubbi hafi komið að handritsgerð-
inni eða uppsetningunni. „Þegar
við hittumst fyrst sagði Bubbi mjög
ákveðinn: Ég ætla ekkert að skipta
mér af þessu, en ekki hlífa mér.
Þetta verður að vera alvöru, annars
er enginn tilgangur með sýning-
unni.“
Ólafur Egill og Guðmundur Óskar
völdu lögin sem flutt eru í sýning-
unni úr öllu því ógrynni laga sem
Bubbi hefur samið á sínum langa
ferli: „Við förum í gegnum ævi
Bubba í sýningunni, hans níu líf,
og að heyra lögin í samhengi við
lífshlaup hans held ég að setji þau
í dálítið nýtt ljós. Bubbi er auð-
vitað leynt og ljóst að takast á við
sjálfan sig í sinni tónlist. Hann
syngur gjarna um það sem hann
er að upplifa hverju sinni, en hann
syngur líka um sjálfan sig í lögum
sem hann hefur sjálfur sagt að fjalli
ekki um neitt. Eins og til dæmis
„Fjöllin hafa vakað“ sem Halldóra
Geirharðs syngur í sýningunni
sem „Egó-Bubbi“. Hún kom upp-
tendruð á æfingu einn daginn og
var þá búin að finna lykil að túlkun.
Hér syngur undirmeðvitund Bubba
um falinn sársauka, um það að vera
fjall, vakandi, steinrunnið og þögult
fjall, en geyma samt tár inni í sér
og þrá að opna sína sál. Út frá því
færðum við lagið til og í því sam-
hengi er það stökkpallur inn í Egó
tímabilið, þegar Bubbi verður að
einhvers konar fjalli, lokar allt inni
og keyrir bara áfram á hörkunni,“
segir Ólafur Egill.
Bubbi í nýju ljósi
Ævi Bubba hefur verið viðburðarík
og sannarlega ekki áfallalaus, eins
og endurspeglast í sýningunni.
„Þetta er vægðarlaus og kannski
meira að segja dálítið gróf sýning
en um leið falleg, viðkvæm og til-
finningarík. Þarna eru stórar til-
finningar, mikið drama og mikill
sársauki,“ segir Guðmundur Óskar.
Þeir félagar hafa orð á því að
margir sem hafi séð æfingar segjast
upplifa persónu Bubba í nýju ljósi.
„Fólk hefur kannski ekki alveg áttað
sig á því hvaðan hann kemur, hvað
hann hefur gengið í gegnum og
hvernig hann hefur sem manneskja
tekið á sjálfum sér, til að komast á
þann stað sem hann er á í dag,“ segir
Ólafur Egill.
„Og öll hamskiptin, Bubbi hefur
gengið í gegnum miklar umbreyt-
ingar, bæði sem manneskja og tón-
listarmaður,“ segir Guðmundur
Óskar. „Hann staldrar aldrei við í
einni týpu eða einu þema, einum
stíl. Eins og Utangarðs-Bubbi segir
í sýningunni, og í gömlu viðtali í
Vikunni: „Ég get ekki verið að gera
Ísbjarnarblús endalaust, það væri
eins og að sofa alltaf hjá sömu kon-
unni í trúboðastellingunni.“
Rósir í garðinum
Bubbi hefur komið á æfingar. „Hann
er æðrulaus, brosir og hrósar fólki,
sendir frá sér hlýja og góða strauma
í allar áttir,“ segir Ólafur Egill. „Þetta
er án efa mjög sérstakt, og jafn-
vel erfitt, að sjá ævi sína túlkaða
svona uppi á sviði og einhvern
tíma í miðju ferlinu var ég að hafa
áhyggjur af því að vera of nærgöng-
ull, þetta hlyti að vera óbærilegt. En
þá benti Bubbi mér á að þetta er það
sem hann hefur meðvitað verið að
gera síðustu ár, opna á tilfinningar
sínar, skrifa um þær, syngja um
þær, ganga á hólm við sársaukann
og sjálfan sig og miðla einhverju
úr baráttunni. Það er kannski
það sem sýningin fjallar helst um,
hvernig hægt er að takast á við
hlutina, finna sína leið og lenda á
báðum fótum, uppréttur með sitt
á hreinu. Til dæmis í Kjósinni með
bros á vör og rósir í sínum garði. Ég
held við getum öll tengt við Bubba
og ferðalag hans. Að minnsta kosti
held ég að okkur leikhópnum þyki
eiginlega vænna um þennann marg-
brotna Bubba með hverju laginu
sem við flettum af honum.“
Hamskipti Bubba
Borgarleikhúsið frumsýnir Níu líf, söng-
leik um Bubba Morthens þar sem farið er
í gegnum ævi hans. Í sýningunni eru lög
hans sett í samhengi við lífshlaup hans.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞAÐ ER KANNSKI ÞAÐ
SEM SÝNINGIN
FJALLAR HELST UM, HVERNIG
HÆGT ER AÐ TAKAST Á VIÐ
HLUTINA, FINNA SÍNA LEIÐ OG
LENDA Á BÁÐUM FÓTUM,
UPPRÉTTUR MEÐ SITT Á
HREINU.
Ólafur Egill Egilsson
Ólafur Egill Egilsson leikstýrir og Guðmundur Óskar Guðmundsson sér um tónlistarstjórn. Þeir völdu lögin sem flutt eru í sýninguni.FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Höfundar fimmtán barna- og unglingabóka eru tilnefndir til Barnabókaverðlauna
Reykjavíkurborgar en verðlaunin
eru veitt í þremur f lokkum. Verð-
launin verða svo afhent, hefðinni
samkvæmt, síðasta vetrardag í
Höfða.
Barna- og unglingabækur
frumsamdar á íslensku
n Draumaþjófurinn
Gunnar Helgason
n Kjarval: málarinn sem fór
sínar eigin leiðir.
Margrét Tryggvadóttir
n Nornin
Hildur Knútsdóttir
n Villueyjar
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir:
n Rannsóknin á leyndardómum
eyðihússins
Snæbjörn Arngrímsson
Myndlýsingar í barna-
og unglingabókum
n Ró: fjölskyldubók um
frið og ró
Bergrún Íris Sævarsdóttir
n Sipp, Sippsippanipp og Sipp-
sippanippsippsúrumsipp:
systurnar sem ætluðu sko ekki
að giftast prinsum!
Blær Guðmundsdóttir
n Vargöld 2. bók
Jón Páll Halldórsson
n Egill spámaður
Lani Yamamoto
n Vigdís: bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
Þýddar barna- og
unglingabækur
n Bók um tré
Piotr Socha og
Wojciech Grajkowski
Þýðing: Illugi Jökulsson
n Villinorn: Bækurnar Blóð Viri-
díönu og Hefnd Kímeru
Lene Kaaberbøl
Þýðing: Jón St. Kristjánsson
n Snjósystirin
Maju Lunde
Þýðing: Silja Aðalsteinsdóttir
n Hver vill hugga krílið?
Tove Jansson
Þýðing: Þórarinn Eldjárn
n Múmínálfarnir: Minningar
múmínpabba
Tove Jansson
Þýðing: Þórdís Gísladóttir
Fimmtán eru
tilnefnd til verðlauna
Margrét Tryggvadóttir með bók sína
um Kjarval. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR