Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 30
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Byggingafyrirtæki, rétt eins og öll önnur fyrirtæki, þurfa að búa sig undir hugsanleg áhrif
COVID-19 faraldursins á rekstur-
inn. Það borgar sig að hafa einhvers
konar áætlun um hvernig á að
bregðast við ef kórónaveiran kemst
inn á byggingasvæði og byrjar að
hafa áhrif á framkvæmdir.
Ian Atkinson og Michelle Essen
starfa hjá bresk-bandarísku lög-
fræðistofunni Womble Bond Dick-
inson og þau tóku saman nokkur
atriði sem byggingafyrirtæki þurfa
að hafa í huga vegna faraldursins
til að takmarka seinkanir og hættu
fyrir starfsfólk.
n Skipulag
Fyrir hvaða lykilhluta rekstursins
þarf að gera ráðstafanir ef hlutir
fara illa? Ef efniviður kemur til
dæmis frá landi sem verður illa
úti vegna veirunnar gæti þurft
að finna einhvern annan efnivið.
Það er mikilvægt að hafa birgða
keðjuna á hreinu og bregðast við
ef fyrirtækið er háð svæði þar sem
veiran nær mikilli útbreiðslu.
Spurningar sem veiran vekur
Kórónafaraldurinn getur haft mikil áhrif á atvinnurekstur, þar á meðal byggingarstarfsemi.
Því ættu byggingafyrirtæki að huga að ýmsum atriðum til að verjast áhrifum á reksturinn.
Þessir verka-
menn á Srí
Lanka ganga
með grímur í
vinnunni til að
verjast smiti af
kórónaveirunni.
MYND/GETTY
Ef til þess kemur að
loka þurfi bygg-
ingarsvæðinu, er þá hægt
að gera það á fljótlegan
og öruggan hátt?
Mögulega þurfa einhver fyrirtæki í byggingageiranum að sjá starfsfólki
sínu fyrir handþvottaaðstöðu eða sótthreinsandi efnum. MYND/GETTY
Við hjá Front-X sérhæfum okkur
í bílskúrs- og iðnaðarhurðum
Sendu okkur verðfyrirspurn af vefsíðunni okkar
www.frontx.is eða sendu okkur póst á frontx@frontx.is
www.frontx.is
Það gæti haft
slæm áhrif á
byggingafram-
kvæmdir ef
veiran færi að
smitast á vinnu-
svæðum.
MYND/ERNIR
n Öryggis- og heilbrigðismál
Það er gott að vita hvaða skyldum
fyrirtækið hefur að gegna gagnvart
starfsfólki sínu varðandi heil
brigðismál, sérstaklega ef það er
að vinna á byggingarsvæði. Þarf að
sjá því fyrir sérstakri handþvotta
aðstöðu eða einhvers konar
búnaði eða þjálfun?
n Hugsanleg lokun
Hvað gerist ef hluti starfsfólks
eða allir starfsmenn smitast af
COVID19? Ef til þess kemur að
loka þurfi byggingarsvæðinu, er þá
hægt að gera það á fljótlegan og
öruggan hátt?
n Tryggingamál
Hugsanlega eru einhverjar trygg
ingar til staðar sem geta komið
að gagni og minnkað fjárhagslegt
tap og mögulega gera samningar
ráð fyrir að það sé haft samband
og samráð við tryggingafyrirtæki
vegna skipulagsbreytinga sem
faraldurinn gæti valdið.
n Opin umræða
Það gæti verið best að ræða bara
við þann aðila sem fyrirtækið er
að vinna fyrir fyrir fram, svo það
sé hægt að semja um leiðir til að
mæta óvæntum uppákomum á
einhvern hátt sem hentar öllum.
Þá er mögulega hægt að koma í veg
fyrir ágreining.
n Samningsatriði
Það þarf að hafa það á hreinu hvort
notkun á ákveðnum efnivið eða
birgjum sé bundið í samninga. Það
þarf líka að athuga hvernig orðalag
er í samningum þegar kemur að
svokölluðu „force majeure“, þegar
utanaðkomandi óviðráðanlegar
aðstæður koma í veg fyrir að hægt
sé að sinna vinnu.
Það er líka mögulegt að faraldurinn
geti veitt sumum verktökum rétt
á að óska eftir lengri fresti til að
klára verkefni eða hærri greiðslum.
Einnig þarf að athuga hvað gerist ef
til seinkana skyldi koma og hvaða
forsendur þurfa að vera til staðar
til að samningi sé sagt upp.
n Aðrir samningar
Seinkun á verkefnum getur haft
áhrif á aðra samninga sem fyrir
tækið hefur gert, eins og leigu
samninga og fleira. Að þessu þarf
að huga svo að þetta komi engum í
opna skjöldu.
n Gott að hafa varann á
Það er enn ekki ljóst hversu
alvarleg áhrif COVID19 hefur á
atvinnulífið, en það er skynsam
legt fyrir fyrirtæki að hugsa fram í
tímann og hafa einhver úrræði til
staðar ef allt fer á versta veg og at
huga hvort eitthvað í samningum
segi til um hvernig eigi að bregðast
við óvæntum aðstæðum.
MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
Hafðu samband
info@husavidgerdir.is
Sími 565-7070
Finndu okkur á
ALHLIÐA MÚRVERK
ÞAKVIÐGERÐIR
GLUGGASKIPTI
4 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RVERK OG VIT