Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 20
Með því að byrja að vinna með þessi gildi hjá ungum börnum og foreldrum þeirra má koma í veg fyrir að óæskileg samskiptamynstur þróist meðal nemenda. Árangur atvinnutengingar hefur farið stigvaxandi, verkefnið hefur farið vel af stað og móttökur fyrirtækja verið góðar. Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa starfað að rétt-indum og velferð barna á Íslandi og erlendis í rúmlega 30 ár. Samtökin eru aðili að Save the Children International sem eru stærstu frjálsu félagasamtökin í heiminum sem vinna eingöngu í þágu barna. Helsta áherslumál samtakanna í gegnum tíðina er að vernda börn gegn of beldi. Í þeirri baráttu spila forvarnir og fræðsla stórt hlutverk. Barnaheill halda úti öflugum forvarnaverkefnum gegn of beldi á börnum. Þau stærstu eru Ábendingalína Barnaheilla, Vernd- arar barna og Vinátta. Ábendingalínu Barnaheilla má finna á www.barnaheill.is. Þar er hægt að tilkynna ólöglegt eða óviðeigandi efni á neti. Ábend- ingalínan er aldursskipt og barn- væn. Inni á Ábendingalínunni er að finna stuðning við þá sem til- kynna og leiðbeiningar um hvert skuli leitað ef hætta er á ferðum eða viðkomandi er í neyð. Sér hnappur er fyrir aldursf lokkinn 14 ára og yngri, annar fyrir börn 15-17 ára og sá þriðji fyrir 18 ára og eldri. Vernd- arar barna er forvarnarverkefni gegn kynferðisof beldi á börnum. Verkefnið kemur upphaf lega frá samtökunum Blátt áfram sem sam- einuðust Barnaheillum á síðasta ári. Um er að ræða ítarlegt fræðsluefni fyrir foreldra og fagfólk sem vinnur með börnum um hvernig hægt er að koma í veg fyrir, greina og bregðast við þegar grunur er um að barn hafi orðið fyrir kynferðisof beldi. Vinátta er forvarnaverkefni gegn einelti ætlað 0-9 ára börnum, for- eldrum þeirra og fagfólki í leik- og grunnskólum. Námsefnið byggir á ák veðinni hug my ndaf ræði sem endurspeglast í eftirfarandi gildum; umburðarlyndi, virðingu, umhyggju og hugrekki. Með því að byrja að vinna með þessi gildi hjá ungum börnum og foreldrum þeirra má koma í veg fyrir að óæski- leg samskiptamynstur þróist meðal nemenda. Nú stendur yfir hið árlega fjáröfl- unarátak Barnaheilla, Út að borða fyrir börnin, en ágóðinn af átakinu rennur í verkefni Barnaheilla sem snúa að forvörnum gegn of beldi. Tuttugu og sjö veitingastaðir taka þátt í átakinu með því að hluti af verði valinna rétta rennur í verk- efnin. Á barnaheill.is má sjá hvaða staði er um að ræða. Ég vil hvetja landsmenn til að fara út að borða á einhvern þeirra staða sem í boði eru og styðja þannig við verndun barna gegn of beldi. Að byrgja brunninn Rúmlega 2.600 einstaklingar voru í starfsendurhæfingar-þjónustu um allt land á vegum VIRK Starfsendurhæfingar- sjóðs um áramótin síðustu, 6% fleiri en fyrir ári. Alls komu 2.062 nýir einstakling- ar inn í þjónustu hjá VIRK á árinu 2019 og hafa ekki áður svo margir hafið starfsendurhæfingu á einu ári. Um 5% aukningu á milli ára er að ræða sem er þó hlutfallslega minni aukning en undanfarin tvö ár. 1.420 einstaklingar útskrifuðust frá VIRK árið 2019 sem er einnig met. 17.500 einstaklingar hafa alls hafið starfsendurhæfingu á vegum VIRK frá því að fyrsti einstakling- urinn kom inn í þjónustu haustið 2009. Aftur til vinnu VIRK Starfsendurhæfingarsjóður er sjálfseignarstofnun stofnuð árið 2008 af helstu samtökum stéttar- félaga og atvinnurekenda á vinnu- markaði. VIRK vinnur að starfs- endurhæfingu samkvæmt lögum 60/2012 í samstarfi við stéttarfélög, atvinnurekendur, lífeyrissjóði, þjónustuaðila í starfsendurhæf- ingu og stofnanir velferðarkerfis- ins. Starfsemin er fjármögnuð af atvinnurekendum, lífeyrissjóðum og ríkisvaldinu. Hlutverk VIRK er að efla starfs- getu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. Rétt á þjónustu VIRK eiga þeir einstaklingar sem ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnu- markaði vegna hindrana af völdum heilsubrests. Einstaklingar þurfa einnig að vera með beiðni eða vott- orð frá lækni og hafa það að mark- miði að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði eða að auka þátttöku sína á vinnumarkaði. VIRK hefur byggt upp þverfag- legan starfsendurhæfingarferil, persónulega ráðgjöf og þjónustu sem hefur það markmið að koma einstaklingum aftur til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklings- miðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi ein- staklings og er honum að mestu að kostnaðarlausu. Á vegum VIRK starfa rúmlega 50 sérhæfðir starfsendurhæfingarráð- gjafar staðsettir hjá stéttarfélögum víða um land sem fylgja notendum þjónustunnar allan starfsendur- hæf ingarferilinn og hvetja þá áfram. Auk þessa þá á VIRK í miklu og góðu samstarfi við fagfólk um allt land, leggur áherslu á að nýta þjónustuaðila á hverju svæði fyrir sig og þróa úrræði sem henta þeim fjölbreytta hópi sem nýtir sér þjón- ustu VIRK. Á undanförnum þremur árum hefur ný markviss þjónusta verið þróuð – VIRK Atvinnutenging - sem miðar að aukinni atvinnutengingu í starfsendurhæfingu og ráðnir hafa verið inn sérhæfðir atvinnulífs- tenglar sem aðstoða einstaklinga við að finna störf við hæfi í lok starfsendurhæfingarferils. Hér er um að ræða sérhæfða aðstoð fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu. Árangur atvinnutengingar hefur farið stigvaxandi, verkefnið hefur farið vel af stað og móttökur fyrir- tækja verið góðar. Sem dæmi um það þá hafa yfir 300 fyrirtæki og stofnanir skrifað undir sérstakan samstarfssamning við VIRK og fundin hafa verið nokkur hundruð störf fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu á undanförnum tveimur árum. Árangur og ávinningur Árangur og ávinningur af starfsemi VIRK - fjárhagslegur og samfélags- legur - er mjög mikill þar sem starf- semin hefur á undanförnum ára- tug skilað þúsundum einstaklinga í virka þátttöku á vinnumarkaði. 77% þeirra rúmlega 10.000 ein- staklinga sem útskrifast hafa frá VIRK eru virkir á vinnumarkaði við útskrift; þ.e. í vinnu, í atvinnu- leit eða lánshæfu námi. Þennan árangur hafa utanað- komandi aðilar staðfest, niður- stöður Talnakönnunar sýna t.d. að ávinningurinn af starfsemi VIRK á árinu 2018 nam um 17,2 milljörðum og að reiknaður meðalsparnaður samfélagsins á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK nam 12,7 millj- ónum það ár. Þá sýna þjónustukannanir VIRK að þátttakendur eru undantekn- ingalítið mjög ánægðir með þjón- ustuna og telja hana auka verulega bæði lífsgæði sín og vinnugetu. VIRK virkar! Vigdís Jónsdóttir framkvæmda- stjóri VIRK Erna Reynisdóttir framkvæmda- stjóri Barna- heilla – Save the Children á ÍslandiAÐALFUNDUR Klappa grænna lausna hf. Aðalfundur Klappa grænna lausna hf. verður haldinn á Café Atlanta, Hlíðarsmára 3 (gengið inn frá Hæðasmára), fimmtudaginn 2. apríl 2019, og hefst hann kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Önnur mál sem eru löglega borin fram. Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar um breytingu á grein 2.01.5 samþykkta félagsins um heimild til stjórnar um að auka hlutafé félagsins um allt að 50. m.kr. með útgáfu nýrra hluta í B-flokki hlutabréfa. Miðað er við að núverandi hluthafar falli frá forgangsrétti. Markmið með útboðinu er að styðja við dreifingu á hugbúnaði félagsins á alþjóðlegum mörkuðum og fjölga notendum. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, munu verða hluthö- fum til sýnis á skrifstofu félagsins, Austurstræti 17, 5. hæð, tveimur vikum fyrir aðalfund. Öll gögn verða lögð fram fyrir hluthafa á síðunni www.klappir.com/fjarfestar Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað frá kl. 15.45. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði með hverri einni krónu í A-flokki hlutabréfa. Atkvæðaréttur fylgir ekki með B-hlutabréfum. Vegna COVID-19 og þeirrar óvissu sem um það ríkir þá er verið að skoða möguleikann á að fundurinn færi fram í gegnum fjarskiptabúnað eða á annan sambærilegann hátt. Verði það niðurstaðan verður hluthöfum tilkynnt um það með tölvupósti. Vinsamlega athugið að aðalfundurinn var áður auglýstur 9. apríl og hefur sú dagsetning tekið breytingum eins og fram kemur hér að ofan. Stjórn Klappa grænna lausna hf. 1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.