Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 4
HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
NÝTT GLÆSILEGT ÚTLIT, NÝJAR ÚTFÆRSLUR OG
FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI.
EIGUM TIL FLESTAR GERÐIR TIL AFGREIÐSLU STRAX
BJÓÐUM UPP Á 37” OG 40” BREYTINGAR
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.967.745 KR. ÁN VSK.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK.
RAM 3500
EINGÖNGU RAM FRÁ ÍSBAND ERU MEÐ EVRÓPUÁBYRGÐ FRÁ FRAMLEIÐANDA.
40” BREYTTUR
MEGA CAB
VIÐSKIPTI Velta sjávarútvegs síðustu
tveggja mánaða síðasta árs var ríf-
lega sex prósent meiri en á sama
tímabili árið áður. Þetta kemur fram
á vef Hagstofunnar. Þá var velta í
heild nær fjórtán prósent meiri í
fyrra en árið 2018. Velta í fiskeldi
tvöfaldaðist á árinu frá fyrra ári.
Þá varð sex prósent samdráttur í
veltu í flutningum með flugi á milli
ára. Jafnframt er frá því greint að
hægt hafi á byggingarframkvæmd-
um síðustu tvo mánuði ársins í sam-
anburði við sama tíma árið á undan
og er munurinn þrjú prósent. – jþ
Veltan eykst
í sjávarútvegi
1 COVID-19 flokkaður sem heimsfaraldur Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin segist hafa
áhyggjur af útbreiðslu veirunnar
en víða hefur ekki tekist að hefta
útbreiðsluna. Fólk er þó hvatt til
að halda ró sinni.
2 Lífs björg þegar lög regla kippti konu frá stjórn lausum steypu-
bílnum Konu sem var meðal
gangandi veg far enda á Sæ braut
var bjargað með naumindum frá
því að verða fyrir steypu bílnum
sem lög reglan veitti eftir för.
3 Veru lega veikur á Land spítala vegna CO VID-19 Eldri maður
var lagður inn á Landspítala mikið
veikur af COVID-19.
4 Hundruð hlífðar galla selst hér lendis vegna kóróna-
veirunnar Forsvarsmenn Kemi
hafa selt hundruð hlífðargalla að
undanförnu auk annars hlífðar-
fatnaðar. Hann hefur meðal ann-
ars selst til Íslendinga og Kínverja.
5 Weinstein í 23 ára fangelsi fyrir nauðgun Harvey Wein-
stein var dæmdur í 23 ára fangelsi
fyrir brot gegn tveimur konum.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
C OV I D -19 Mæðr a st y rk snef nd
Reykjavíkur hefur lokað fyrir mat-
arúthlutanir vegna COVID-19.
„Ástæðan fyrir því að við þorðum
ekki öðru en að loka er sú að hér er
mikil nálægð milli fólks og sjálf-
boðaliðar okkar eru f lestallir full-
orðnar konur í áhættuhópi,“ segir
Anna H. Pétursdóttir, formaður
nefndarinnar.
Að sögn Önnu var ákvörðunin
erfið og tekin að vel ígrunduðu máli.
Anna segir mikinn fjölda leita til
Mæðrastyrksnefndar í hvert skipti
sem matarúthlutun fer þar fram og
að skjólstæðingar nefndarinnar
séu ekki í þeirri stöðu að geta birgt
sig upp af matvælum komi til þess
að þeir neyðist til að fara í sóttkví
vegna kórónaveirunnar.
„Þetta er bara svakalega við-
kvæmt mál og þetta fólk er í mikilli
neyð. Við höfum ekki fengið fyrir-
spurnir um hjálp frá fólki sem er í
sóttkví en okkar skjólstæðingar eru
reyndar ekki í hópi þeirra sem fara
í skíðaferðir í Alpana,“ segir Anna.
Víðir Reynisson yfirlögreglu-
þjónn segir hluta af viðbragðs-
áætlun almannavarna snúa að því
að upplýsa almenning um vörur
sem vert sé að eiga komi til þess
að fólk sé sett í sóttkví eða komi til
samkomubanns. „Þar er listi yfir
vörur sem fólk ætti að huga að því
að eiga,“ segir hann.
Spurður um þann hóp sem ekki
hefur tök á að verða sér úti um þá
hluti sem eru á listanum og treystir
á matarúthlutanir hjálparsamtaka
segir Víðir að ekki sé komið inn á
þann hóp í áætluninni.
„Þetta er ekki skrifað beint inn í
áætlunina og við þurfum að skoða
þetta því að þetta hefur ekki komið
inn á borð til mín áður og ég þekki
ekki hvernig þessum málum er
háttað. En þetta er góð ábending
sem ég mun taka upp og skoða
hvernig þessu er háttað,“ segir Víðir.
Fjölskylduhjálp Íslands úthlutar
mat mánaðarlega og segir Ásgerður
Jóna Flosadóttir formaður að ekki
sé ljóst hvort af næstu úthlutun
verði.
„Ég skrifaði landlækni bréf í gær-
morgun [fyrradag] og spurði hvort
það væri í lagi að vera með úthlutun
í næstu viku og ég hef ekki fengið
svar,“ segir hún. Þá segir hún skjól-
stæðinga sína ekki hafa óskað eftir
sérstökum úrræðum við matarút-
hlutanir vegna sóttkvíar og tekur
undir orð Önnu. „Fólkið okkar er
ekki mikið í utanlandsferðum,“
segir hún.
„Það yrði bagalegt að vera ekki
með úthlutun og myndi koma
þessum hópi afar illa. Fjöldi fólks
hefur haft samband og spurst fyrir
um næstu úthlutun, ég svara með
því að ég bíði svars frá Embætti
landlæknis,“ segir Ásgerður.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
hafði Fjölskylduhjálp ekki fengið
svar við fyrirspurn sinni en Kjartan
Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður
landlæknis, segir við Fréttablaðið
að samkomubann sé ekki í gildi í
landinu en að gott væri ef fólk tæki
skynsamlegar ákvarðanir þegar
komi að samkomum.
„Það er ekkert samkomubann
í gildi hér á landi og það sem við
stólum á er að þeir sem eru að skipu-
leggja viðburði af hvaða toga sem er
taki skynsamlega ákvörðun út frá
stöðunni, þeirri þekkingu og þeim
upplýsingum sem við höfum verið
að miðla. Ef fólk ákveður að fresta
viðburði út af þessu þá er það gott
svo lengi sem sú ákvörðun er tekin
að vel ígrunduðu máli,“ segir Kjart-
an. birnadrofn@frettabladid.is
Veiran stöðvar matarúthlutun
Lokað er fyrir matarúthlutanir hjá Mæðrastyrksnefnd vegna COVID-19. Ekki er bann við hvers konar
viðburðum. Í aðgerðaáætlun almannavarna er ekki getið um þá sem ekki hafa efni á að birgja sig upp.
Erfitt að stöðva matarúthlutun, segir Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þetta er góð ábend-
ing sem ég mun
taka upp og skoða hvernig
þessu er háttað.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn
hjá Embætti ríkislögreglustjóra
FERÐAÞJÓNUSTA Framkvæmda-
stjóri fyrirtækis í ferðaþjónustu
segir að útfæra verði fyrirhugaðar
aðgerðir stjórnvalda vegna COVID-
19 með hraði.
„Mér líst ágætlega á þessar til-
lögur svo langt sem þær ná en tel
afar mikilvægt að nánari útfærsla
líti dagsins ljós strax í næstu viku.
Ferðaþjónustufyrirtækin eru mörg
hver að undirbúa uppsagnir vegna
stöðunnar og því má engan tíma
missa,“ segir Ásberg Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Nordic Visitor.
Að hans sögn er brostið á algjört
hrun í bókunum. „Miðað við frá-
sagnir kollega eru fyrirtækin í
þessum bransa að sjá fram á 40 til
70 prósenta samdrátt í bókunum og
mikið um af bókanir,“ segir Ásberg.
Hann telur stærri fyrirtæki
geti aðlagast breyttum veruleika
en hefur meiri áhyggjur af þeim
smærri, einkum litlum fjölskyldu-
fyrirtækjum. „Mörg slík fyrirtæki
urðu fyrir þungu höggi við fall
WOW air.“ Hann efast um að bank-
arnir veiti þeim sem þegar eru með
reksturinn í járnum mikið svigrúm.
„Það sem ég sakna helst er heim-
ild til að lækka starfshlutfall starfs-
manna tímabundið og að þeir fái
atvinnuleysisbætur á móti,“ segir
Ásberg. Það hafi skipt sköpum í
hans rekstri þegar gaus í Eyjafjalla-
jökli. – bþ
Útfærsla aðgerða fyrir ferðaþjónustu þoli enga bið
Ásberg Jónsson,
framkvæmda-
stjóri Nordic
Visitor
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð