Fréttablaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 14
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Birnudalstindur er 1396 m hár tindur í Kálfafellsfjöllum upp af Suðursveit, einn margra í sunnanverðum Vatnajökli. Úr suðri líkist hann helst sökkvandi skipi, eins og skuturinn á Titanic stingist í hvítan sæ Vatnajökuls. Landslagið í kring
minnir á Alpana þar sem skriðjöklar steypast niður
þverhnípta dali og neðst tekur við net jökulfljóta sem
líkjast kransæðum mannshjarta.
Tilkomumestur er Kálfafellsdalur og inn af honum
snarbrött Þverártindsegg (1544 m). Aðeins austar er
ekki síður fallegur dalur, Staðardalur, og inn af honum
Birnudalur. Þar opnast fjallaleikhús sem býður upp á
sýningar af dýrari gerðinni. Best er að leggja til atlögu
við Birnudalstind að vori til eða snemmsumars þegar
snjór hylur brekkur sem annars geta verið lausar
og erfiðar uppgöngu. Flestir gista á Hala eða Gerði í
Suðursveit en þar í sveit fæddist og óx úr grasi rithöf-
undurinn Þórbergur Þórðarson (1888-1974). Mörg hans
frægustu verk, eins og Steinarnir tala, eiga sér einmitt
kveikju í kynngimagnaðri náttúru Suðursveitar.
Frá Hala er ekið að Kálfafellskirkju en þaðan má
með leyfi ábúenda aka jeppaveg að mynni Birnudals.
Haldið er upp stöllóttar hlíðar sunnan Birnudalsár
og áin stikluð eða vaðin ofan við fallega fossa. Smám
saman blasir tignarlegur Birnudalstindur við og langar
snjóbrekkur suður af honum. Þeim er fylgt upp að
klettabelti neðan tindsins en síðan sveigt til vesturs
upp á hrygg sem leiðir að skuti skipsins. Síðasta brekk-
an getur verið varasöm og sérstaklega þarf að gæta að
snjóflóðum. Þarna býðst eitt stórkostlegasta útsýni af
íslensku fjalli, m.a. ofan í Kálfafellsdal en einnig yfir
að Öræfajökli með Sveinstindi og Kaldárnúpi (1406
m) og Kverkfjöllum í norðri. Í suðri blasir síðan við
svört strandlengjan að Vestra-Horni og Hornafirði. Af
tindi Birnudalstinds bjóðast þrjár mis krefjandi leiðir
og er algengast að ganga eða skíða niður sömu leið til
baka, samtals 15 km. Ef veður er gott og ekki hætta á
snjóflóðum er hægt að þræða svokallaða tindaleið. Er
þá fylgt eggjum tindanna milli Kálfafells- og Birnu-
dals í suðvestur. Þetta er 21 km krefjandi ganga þar
sem skynsamlegt er að hafa staðkunnuga með í för og
styðjast við GPS-ferla, ekki síst til að finna rétta leið
niður að Kálfafellskirkju.
Þriðja leiðin hentar vel fjallaskíðafólki og er þá
skíðað af toppnum niður eftir Skálafellsjökli
að skálanum Jöklaseli. Þaðan liggur 16 km
krappur jeppavegur niður að Smyrlabjarga-
virkjun. Á leiðinni til Reykjavíkur er
síðan tilvalið að skoða Þórbergssetur á
Hala og kynnast betur meistara Þór-
bergi og hvernig mögnuð náttúra
Suðursveitar mótaði hann sem
rithöfund.
Titanic
Suðursveitar
Úr suðri líkist
Birnudalstindur
sökkvandi
skipi. Hér nálg-
ast fjallaskíða-
hópur „skutinn“
af svokallaðri
Skálafells-
jökulsleið.
MYNDIR: ÓMB
Birnudalstindur séður úr Birnudal. Snjófannir undir hlíðum hans eru með bestu fjallaskíðabrekkum landsins.
Umhverfi Birnudalstinds, sem sést í baksýn til hægri, er tindaveisla fyrir allan peninginn.
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð