Fréttablaðið - 12.03.2020, Qupperneq 46
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær systir okkar,
Kristín Björk Friðbertsdóttir
sem lést fimmtudaginn 5. mars,
verður jarðsungin frá Neskirkju
föstudaginn 13. mars kl. 13.00
Friðbert Friðbertsson
Njáll Trausti Friðbertsson
Jóhann Grímur Friðbertsson
og fjölskyldur.
Elskuleg frænka okkar,
Adda Geirsdóttir
lést þann 20. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Adda María Jóhannsdóttir
Helga Björnsdóttir
Geir Björnsson
Halldóra Björnsdóttir
og fjölskyldur.
Faðir minn, tengdafaðir,
afi og langafi,
Haukur Sveinbjörnsson
frá Snorrastöðum,
lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð
þann 8. mars sl.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu
verður jarðarförin auglýst síðar.
Branddís Margrét Hauksdóttir Kristján Ágúst Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskaða
Lilja Bernódusdóttir
frá Skagaströnd,
sem lést að heimili sínu þann
9. febrúar, verður jarðsungin frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd
laugardaginn 14. mars kl. 13.
Halla Björg Bernódusdóttir Ari Hermann Einarsson
Þórunn Bernódusdóttir Guðmundur Jón Björnsson
Ólafur Halldór Bernódusson Guðrún Pálsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Ólafsson
(Gunnar í Odda)
Bessahrauni 10, Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í
Vestmannaeyjum sunnudaginn 8. mars.
Útförin fer fram frá Landakirkju, föstudaginn 27. mars,
klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir.
Erla Kristín Sigurðardóttir
Hlynur Bergvin Gunnarsson Gunnlaug Hannesdóttir
Þröstur Árni Gunnarsson Sigrún Jónbjarnardóttir
Gunnar Björn, Berglind Ósk, Birkir Már, Kristinn Már
og Daníel Karl
Það er bylur norður á Strönd-um og Ragnar Bragason, bóndi á Heydalsá, er eigin-lega veðurtepptur heima hjá sér, þegar ég næ í hann í síma. Annars væri hann að
sinna rúningi á öðrum bæjum. Hann
bindur ekki á sig skíðin þennan dag-
inn en vann það afrek 1. mars að ganga
Vasagönguna í Svíþjóð, milli Sälen
og Mora, 90 kílómetra leið. Það gerðu
líka fimm aðrir úr Skíðafélagi Stranda-
manna, þar af fjórir bændur, eins og
bb.is greindi frá.
Ragnar fór brautina á 6,25 tímum,
var rúmum tveimur tímum á eftir sig-
urvegaranum, að eigin sögn. „Ég var í
góðu sæti í röðinni og það dugði mér
til að verða fyrstur í mark af Íslend-
ingunum sem voru um 40 sem luku
göngunni.“ Hann segir það með fæsta
móti, oft hafi þeir verið 60-70, kjarni
sem fari nánast á hverju ári. „Það er
gríðarleg stemning að taka þátt. Eftir
því sem maður fer oftar togar gangan
meira í mann. Umhverfið er f lott þarna
í skógunum, góð stemning í brautinni
og einstök upplifun að klára. Sérstak-
lega er sigur að komast í mark í erfiðum
aðstæðum.“
Allt í einu fór að snjóa
Þar sem snjólétt hefur verið í Norður-
Evrópu í vetur segir Ragnar búið að
af lýsa mörgum skíðagöngum í World-
Loppet mótaröðinni. Svíar lögðu mikla
vinnu, og á annað hundrað milljónir, í
að framleiða snjó og keyra hann í þessa
90 kílómetra braut. „Það höfðu verið
hlýindi í nokkrar vikur fyrir Vasa-
gönguna en á keppnisdaginn fór allt
í einu að snjóa og sentimetra jafnfall-
inn snjór bættist í brautina svo gangan
varð hæg og erfið og sporið hvarf fyrir
þá öftustu.“
Eftir að Ragnar kom í mark kveðst
hann hafa farið í sturtu, í hlý föt og
fengið sér að borða. Síðan hafi hann
komið sér fyrir við markið, með syni
sínum Stefáni sem gat ekki tekið þátt
vegna lasleika. „Við fylgdumst með
fólki ljúka göngunni og eftir því sem á
leið urðu bros þess breiðari og gleðin
meiri við að ná settu marki.“
Sextán þúsund keppendur voru
skráðir í Vasagönguna þetta árið, að
sögn Stefáns, þar af voru fjórtán þús-
und sem störtuðu. „Margir hættu við
því þeir höfðu ekki getað æft sig vegna
snjóleysis. Af þátttakendum voru um
tvö þúsund sem náðu ekki tímamörk-
um, enda er þetta eins og að ganga 130-
140 kílómetra við góðar aðstæður. Svo
brýtur fólk stafi og skíði en það eru
brautarverðir á ferðinni sem koma fólki
til aðstoðar. Svo eru drykkjastöðvar
með tíu til fimmtán kílómetra millibili
og þar eru læknar líka. Allt skipulag er
til fyrirmyndar hjá Svíunum.“
Þetta var í fjórða skipti sem Ragnar
tekur þátt í Vasagöngunni. Fór fyrst
2009 með tveimur félögum af Ströndum
og árið 2012 með konunni og tveimur
krökkum. „Krakkarnir tóku þátt í Ung-
dóms-Vasa og konan í Hálf-Vasa en ég í
90 kílómetra göngunni. Svo kom hlé hjá
mér þar til í fyrra, þá fórum við sjö af
Ströndum. Aðstæður voru enn erfiðari
en núna, mikil snjókoma, mótvindur
og skafrenningur á köf lum. Þá var líka
sögulega lélegur tími hjá sigurverar-
anum. Tveir í okkar hópi veiktust fyrir
gönguna en tóku samt þátt og fengu
lungnabólgu í kjölfarið, annar varð
að hætta á miðri leið vegna veikinda.
Hann fór aftur í ár og gekk vel.“
Fjölskyldusport á Ströndum
Skíðafélag Strandamanna er rúmlega
tvítugt. Ragnar er einn af stofnendum
þess og hefur tekið virkan þátt í starf-
inu alla tíð. „Við höfum byggt upp
aðstöðu í Selárdal í Steingrímsfirði,
meðal annars skíðaskála, og fáum
þangað fólk úr Reykhólasveitinni sem
er öf lugt í þessu sporti. Margir félag-
arnir eru úr bændastétt og það sem
tengir okkur líka saman er að börnin
okkar hafa verið að æfa skíðagöngu, þá
koma foreldrarnir með. Þetta verður
fjölskyldusport.“
Ragnar segir óvenjugóðar aðstæður
til skíðagöngu á Ströndum í vetur,
þær bestu í mörg ár. „Þetta hefur verið
alvöruvetur og við höfum getað æft
vel, þegar veður leyfir. Í Selárdal er
mesti snjór síðan 1995. Við tókum upp
á þeirri nýjung í vetur að bjóða upp á
skíðagöngunámskeið, fengum gott fólk
frá höfuðborgarsvæðinu til að kenna
okkur. Þannig að starfið er metnaðar-
fullt.“ gun@frettabladid.is
Sigur að komast í mark
í erfiðum aðstæðum
Ragnar Bragason, bóndi á Heydalsá í Steingrímsfirði, var fyrstur 40 Íslendinga í mark í
Vasagöngunni í Svíþjóð 1. mars. Gangan er 90 kílómetra löng, frá Sälen til Mora. Skil-
yrðin voru slæm vegna snjókomu en gleðin því meiri hjá þeim sem komust alla leið.
Félagarnir af Ströndum og úr Reykhólasveit, þeir Jón Eðvald Halldórsson, Ágúst Helgi Sigurðsson, Hjalti Helgason, Ragnar
Bragason, Rósmundur Númason og Vilberg Þráinsson í Sälen árla að morgni keppnisdags. MYND/STEFÁN SNÆR RAGNARSSON
Það er gríðarleg stemning að
taka þátt. Eftir því sem maður
fer oftar togar gangan meira í
mann. Umhverfið er flott þarna
í skógunum, góð stemning í
brautinni og einstök upplifun
að klára.
1 2 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT