Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 2
covid.is
Ákveðið hefur verið að setja á samkomubann frá og með aðfararnótt mánudagsins
16. mars. Bannið gildir í órar vikur, til og með mánudagsins 13. apríl (annar í páskum).
Samkomubannið verður í stöðugu endurmati, gæti lengst, sst og breyst eir því sem
aðstæður kalla á.
Hvaða samkomur eru bannaðar?
Bannið nær til skipulagðra viðburða þar sem eiri en 100 manns koma saman. Til dæmis:
Ráðstefnur, málþing, fundir og hliðstæðir viðburðir.
Skemmtanir, s.s. tónleikar, leiksýningar, bíósýningar,
íþróttaviðburðir og einkasamkvæmi.
Kirkjuathafnir hvers konar, s.s. vegna útfara, giinga,
ferminga og annarra trúarsamkoma.
Að auki þurfa aðrir staðir að tryggja að ekki séu á sama tíma eiri en 100 manns inni
í sama rými. Þetta á t.d. við um veitingastaði, mötuneyti, kahús, skemmtistaði,
verslanir, sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, og söfn. Þessi mörk eiga einnig við um
almenningssamgöngur og aðra sambærilegra starfsemi.
Á samkomum, vinnustöðum og í annarri starfsemi þar sem færri en 100 eru
samankomnir skal hafa að minnsta kosti tvo metra á milli einstaklinga.
Hvað fellur ekki undir samkomubann?
Samkomubannið nær ekki til alþjóðaugvalla, alþjóðahafna, ugvéla eða skipa.
Skólahald
Töluverðar takmarkanir eru á skólahaldi á meðan á samkomubanninu stendur.
Framhaldsskólum og háskólum verður lokað og kennsla fer fram í arkennslu
eins og hægt er.
Grunnskólar mega hafa kennslu í skólabyggingum ef þeir tryggja að ekki séu eiri
en 20 nemendur í sömu kennslustofu og að nemendur blandist ekki milli hópa, til
dæmis í mötuneyti eða frímínútum.
Leikskólar mega hafa opið ef þeir tryggja að börn séu í fámennum hópum og
aðskilin eins og kostur er.
Takmarkanirnar gilda einnig um aðrar menntastofnanir, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar
og íþróttastarf.
Samkomubann
Þvoum okkur um hendurnar
Með vatni og sápu. Reglulega – og reglulega vel.
Forðumst óþarfa snertingu
Finnum snertilausar leiðir til að heilsast og
kveðjast. Bros er betra en koss og knús.
Virðum sóttkví
Sóttkví fyrir þau sem mögulega eru smituð og einangrun
þeirra sem greinast er nauðsynleg til að hægja á útbreiðslu.
Hlýtum samkomubanni
Samkomubann tekur gildi aðfararnótt mánudagsins
16. mars. Kynnum okkur vel reglur um bannið og
fylgjumst með fréttum.
Á vefnum www.covid.is nnur þú eiri góð ráð,
traustar upplýsingar og fréttir af stöðu mála.
Við erum öll
almannavarnir
Covid-19 kallar á samstöðu og ábyrgð okkar allra. Til að
auðvelda heilbrigðiskernu að ráða við vandann er mikilvægt
að takmarka útbreiðslu veirunnar eins og hægt er.
Til þess eru ýmis ráð sem við þurfum öll að tileinka okkur.