Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 36
Sjúkraliði Við leitum að sjúkraliða í 80 – 100% starfshlutfall á hjúkrunardeild okkar. Unnið er á þrískiptum vöktum og þriðju og fjórðu hvoru helgi er unnið á 12 tíma vöktum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf sem fyrst. Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegri teymisvinnu þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Krafist er frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum, skipulagshæfileika og góðrar hæfni í mannlegum samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sjúkraliða- félags Íslands og fjármálaráðherra auk stofnanasamn- ings Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjalundar. Upplýsingar um störfin veita Ingibjörg Óskarsdóttir hjúkrunarstjóri í síma 585-2150/585-2151, netfang; ingibjorgo@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri, netfang; gudbjorg@reykjalundur.is Umsóknarfrestur er til 29. mars 2020. Umsóknarform má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri. Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr upplýsingum um þá málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri. Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr upplýsingum um þá málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is. Vilt þú hjálpa okkur að gæta hagsmuna þjóðarinnar? Fiskistofa óskar eftir að ráða metnaðarfulla og jákvæða starfsmenn í veiðieftirlit í Stykkishólmi og á Höfn í Hornafirði. Ef ekki tekst að ráða í störfin á fyrrgreindum starfsstöðvum, miðað við hæfniskröfur þá verður unnið úr umsóknum um störf á starfsstöð í Hafnarfirði og á Akureyri. Veiðieftirlit er einn mikilvægasti þáttur í starfsemi Fiskistofu og er eftirlitið í stöðugri þróun. Nánari upplýsingar um störfin veitir Sævar Guðmundsson, deildarstjóri í veiðieftirliti eða Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri mannauðs og fjármála í síma 5697900. Ferilskrá á íslensku sem hefur m.a. að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila sem og kynningarbréf þar sem hæfni viðkomandi umsækjanda í starfið er rökstudd sendist í gegnum heimasíðu fiskistofu, www. fiskistofa.is Í kynningarbréfi skal koma skýrt fram við hvaða starfsstöð umsækjandi óskar eftir að starfa við . Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2020. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við Sameyki. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Helstu verkefni: • Eftirlit á sjó, en í því felst m.a. lengdarmæling á fiski og tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með afla- samsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi við veiðar og afla um borð. • Eftirlit í landi, en það felur m.a. í sér eftirlit með löndun, vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með færslu afladagbóka. Eftirlit með löndunum erlendra skipa og úttektir á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og silungsveiði ásamt skrifstofustörfum s.s. skýrslugerð þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun gagna vegna brotamála sem upp koma. Mögulegt er að semja um hlutfall sjósóknar í starfinu. Menntunar- og hæfniskröfur: • Haldgóð reynsla af störfum í sjávarútvegi. • Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta er áskilin. • Gott heilsufar sbr. heilsufarskröfur Fiskistofu • Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum. • Sanngirni og háttvísi. • Mjög góð hæfni í samskiptum nauðsynleg. • Menntun sem nýtist í starfi s.s. skipstjórnarréttindi, stúdentspróf eða iðnmenntun æskileg. Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og þekkingarmiðlun. Starfandi veiðieftirlitsmenn eru nær eingöngu karlar og er því athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim tilgangi að jafna kynjahlutföll í starfsgreininni, sbr. 3. mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Deildarstjóri í barnavernd Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra í barnavernd. Umsóknarfrestur til 20.03.2020 Sjá nánar á Job Fullt starf Félagsráðgjafi Þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaðiEykt ehf. / Stórhöfða 34–40 / 110 Reykjavík / Sími 595 4400 / eykt.is Eykt óskar eftir að ráða byggingatæknifræðing, bygginga­ verkfræðing eða byggingafræðing í starf verkefnisstjóra við framkvæmdir hjá fyrirtækinu. Tekið er við umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu á skrifstofu Eyktar á Stórhöfða 34–40 eða með tölvupósti á palld@eykt.is. Upplýsingar um starfið gefur Páll Daníel Sigurðsson á skrifstofu Eyktar. Verkefnisstjóri/ tæknimaður óskast Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. capacent.is Við finnum rétta einstaklinginn í starfið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.