Fréttablaðið - 14.03.2020, Page 36
Sjúkraliði
Við leitum að sjúkraliða í 80 – 100% starfshlutfall á
hjúkrunardeild okkar. Unnið er á þrískiptum vöktum og
þriðju og fjórðu hvoru helgi er unnið á 12 tíma vöktum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf sem fyrst.
Á Reykjalundi er unnið í þverfaglegri teymisvinnu þar
sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun
og heildræna sýn. Krafist er frumkvæðis, sjálfstæðis
í vinnubrögðum, skipulagshæfileika og góðrar hæfni í
mannlegum samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sjúkraliða-
félags Íslands og fjármálaráðherra auk stofnanasamn-
ings Sjúkraliðafélags Íslands og Reykjalundar.
Upplýsingar um störfin veita Ingibjörg Óskarsdóttir
hjúkrunarstjóri í síma 585-2150/585-2151, netfang;
ingibjorgo@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir
mannauðsstjóri, netfang; gudbjorg@reykjalundur.is
Umsóknarfrestur er til 29. mars 2020.
Umsóknarform má finna á heimasíðu Reykjalundar
www.reykjalundur.is
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri. Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs
og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr upplýsingum um þá málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um land allt og eru höfuðstöðvar á Akureyri.
Stofnunin annast stjórnsýslu á sviði sjávarútvegs og lax- og silungsveiði ásamt því að safna og vinna úr upplýsingum um þá
málaflokka. Nánari upplýsingar um Fiskistofu má finna á www.fiskistofa.is.
Vilt þú hjálpa okkur að gæta hagsmuna þjóðarinnar?
Fiskistofa óskar eftir að ráða metnaðarfulla og jákvæða starfsmenn í veiðieftirlit í Stykkishólmi og á Höfn í Hornafirði. Ef
ekki tekst að ráða í störfin á fyrrgreindum starfsstöðvum, miðað við hæfniskröfur þá verður unnið úr umsóknum um störf á
starfsstöð í Hafnarfirði og á Akureyri.
Veiðieftirlit er einn mikilvægasti þáttur í starfsemi Fiskistofu og er eftirlitið í stöðugri þróun.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sævar Guðmundsson, deildarstjóri í veiðieftirliti eða Hildur Ösp Gylfadóttir
sviðsstjóri mannauðs og fjármála í síma 5697900.
Ferilskrá á íslensku sem hefur m.a. að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf og umsagnaraðila sem og
kynningarbréf þar sem hæfni viðkomandi umsækjanda í starfið er rökstudd sendist í gegnum heimasíðu fiskistofu, www.
fiskistofa.is Í kynningarbréfi skal koma skýrt fram við hvaða starfsstöð umsækjandi óskar eftir að starfa við .
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2020.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við Sameyki.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr.
2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í
2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Helstu verkefni:
• Eftirlit á sjó, en í því felst m.a. lengdarmæling á fiski og
tillögugerð um lokanir veiðisvæða, eftirlit með afla-
samsetningu, veiðarfærum, hlutfalli smáfisks í afla og
brottkasti afla. Þá fylgjast veiðieftirlitsmenn einnig með
því að afladagbækur séu rétt útfylltar og séu í samræmi
við veiðar og afla um borð.
• Eftirlit í landi, en það felur m.a. í sér eftirlit með löndun,
vigtun og skráningu afla, eftirlit með veiðarfærum og
aflasamsetningu, lengdarmælingar á afla og eftirlit með
færslu afladagbóka. Eftirlit með löndunum erlendra skipa
og úttektir á afurðum vinnsluskipa, eftirlit með lax- og
silungsveiði ásamt skrifstofustörfum s.s. skýrslugerð
þegar vettvangsstörfum lýkur, að fylgjast með löndunum
og skráningum í aflaskráningarkerfi Fiskistofu og öflun
gagna vegna brotamála sem upp koma.
Mögulegt er að semja um hlutfall sjósóknar í starfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Haldgóð reynsla af störfum í sjávarútvegi.
• Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta er áskilin.
• Gott heilsufar sbr. heilsufarskröfur Fiskistofu
• Sjálfstæði, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum.
• Sanngirni og háttvísi.
• Mjög góð hæfni í samskiptum nauðsynleg.
• Menntun sem nýtist í starfi s.s. skipstjórnarréttindi,
stúdentspróf eða iðnmenntun æskileg.
Mannauður Fiskistofu er grunnstoðin í starfsemi hennar
og er lögð mikil áhersla á starfsþróun, teymisvinnu og
þekkingarmiðlun.
Starfandi veiðieftirlitsmenn eru nær eingöngu karlar og
er því athygli kvenna sérstaklega vakin á starfinu í þeim
tilgangi að jafna kynjahlutföll í starfsgreininni, sbr. 3.
mgr. 26. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla.
Deildarstjóri
í barnavernd
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir
laust til umsóknar starf deildarstjóra í
barnavernd.
Umsóknarfrestur til 20.03.2020
Sjá nánar á Job
Fullt starf Félagsráðgjafi
Þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaðiEykt ehf. / Stórhöfða 34–40 / 110 Reykjavík / Sími 595 4400 / eykt.is
Eykt óskar eftir að ráða byggingatæknifræðing, bygginga
verkfræðing eða byggingafræðing í starf verkefnisstjóra við
framkvæmdir hjá fyrirtækinu.
Tekið er við umsóknum með upplýsingum um menntun
og starfsreynslu á skrifstofu Eyktar á Stórhöfða 34–40
eða með tölvupósti á palld@eykt.is. Upplýsingar um
starfið gefur Páll Daníel Sigurðsson á skrifstofu Eyktar.
Verkefnisstjóri/
tæknimaður óskast
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
capacent.is
Við finnum rétta
einstaklinginn í starfið