Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Komin eru tvö ár síðan Guð-ríður Hallgrímsdóttir, eig-andi ÍslandsApóteks, byrjaði
að nota Feel Iceland kollagen sér
til heilsubótar. Árangur og aukin
vellíðan létu ekki sér standa.
„Ég ákvað að prófa þetta frábæra
kollagen því ég er þeirrar gerðar
að þykja óþægilegt að mæla með
vörum í apótekinu sem ég er ekki
viss um hvernig virka. Ég er því
dugleg að prófa bæði vítamín og
fæðubótarefni á eigin skinni því
ég get illa selt vöru ef mér líkar
ekki við hana,“ segir Guðríður sem
mælir heils hugar með Feel Iceland
kollageni fyrir viðskiptavini sína í
ÍslandsApóteki.
„Feel Iceland kollagenið gerir
mest fyrir mig á svo margan hátt.
Ég hef prófað að taka inn kollagen
frá öðrum framleiðendum en Feel
Iceland hefur reynst mér lang-
best. Ég er með sóríasis og fann
fljótt hvernig hann batnaði til
muna, húðin varð teygjanlegri
og nærðari. Ég fann líka mikinn
mun á hári mínu og nöglum. Ég
hef mikið og þykkt hár en að sama
skapi þurrt, en eftir að ég fór að
taka inn kollagen frá Feel Iceland
hefur það orðið viðráðanlegra,
rakinn er meiri og það rafmagnast
síður. Þá vaxa neglurnar hraðar,
eru sterkari og brotna síður,“ upp-
lýsir Guðríður.
Kollagenið frábær viðbót
Guðríður setur kollagenið frá Feel
Iceland út í Bulletproof-kaffi-
drykki, holla þeytinga, skyr og
ýmsa rétti og segir mikinn kost að
kollagenið komi í duftformi.
„Mér finnst gott að geta sett
það út í mat og drykki. Ég reyni
að forðast sætindi og ís alla jafna,
en þegar sykurþörfin gerir vart
við sig útbý ég gjarnan ómót-
stæðilegan og djúsí eftirrétt úr
Örnu-skyri sem ég bæti kollageni
út í ásamt MCT-olíu, sykurlausu
karamellu sírópi, berjum og toppa
með þeyttum, laktósafríum rjóma.
Það er algjört sælgæti en auðvitað
bráðhollt,“ segir Guðríður sem
aðhyllist lágkolvetna mataræði.
„Stundum dett ég auðvitað
af vagninum en mér líður best
þegar ég er á ketó- eða lágkolvetna
mataræði. Ég reyni því að forð-
ast sykur, borða hollt og stunda
heilsurækt af fremsta megni en
finnst kollagenið frábær viðbót
þegar kemur að góðri líðan og
betri heilsu. Ég ráðlegg því fólki á
öllum aldri að taka inn kollagen og
ekki síst þeim sem upplifa verki í
stirðum liðum því kollagen bætir
liðheilsu til muna,“ segir Guðríður.
Hún stundar hjólreiðar og
finnur mikinn mun á skrokknum
eftir að hún fór að taka inn Feel
Iceland kollagen.
„Ég er með ónýtt bak og þarf að
stunda hreyfingu til að halda mér
góðri en þar kemur kollagenið líka
að gagni og ég finn mikinn mun
á liðum og í baki því ef ég ætla að
hreyfa mig mikið þarf ég að taka
inn fæðubót sem hjálpar mér að
byggja upp vöðva, auka efna-
skiptin og viðhalda líkamanum í
góðu standi,“ segir Guðríður.
Finnur mun á meiri raka
og teygjanleika í húð
Guðríður og eiginmaður hennar
Skúli opnuðu ÍslandsApótek á
Laugavegi 46.
„Sem mikil áhugamanneskja
um húð og húðvörur veit ég hversu
mikilvægt er að hugsa um húðina
og taka inn góða næringu. Því
skiptir máli hvað maður lætur á
sig og tekur inn. Um 60 ára aldur
hefur kollagen í líkamanum
minnkað um 50 prósent og því tel
ég mikilvægt að taka inn fæðu-
bót þegar aldurinn færist yfir og
sérstaklega ef maður finnur fyrir
skorti sem getur komið vegna álags
eða lífsstíls. Að ráðleggja fólki
góða húðvöru, og mæla með góðri
fæðuviðbót eins og kollageni, tel
Guðríður mælir heilshugar með kollageni frá Feel Iceland fyrir fólk á öllum aldri, enda hefur hún sannreynt góð og heilsubætandi áhrif þess á eigin líkama. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Dýrindis og djúsí
skyrábætir Gurrýjar
með kollageni
Hálf dós bláberja- eða vanilluskyr
frá Örnu
15 ml MTC-olía
Ein skeið Feel Iceland kollagen
Hrærið öllum hráefnum saman.
Þeytið því næst rjóma og bætið við
skyrblönduna ásamt sykurlausu
karamellusírópi frá Torani, eða þar
til blandan verður „fluffy“. Setjið
í skál og skreytið með þeyttum
rjóma, dropum af hlynsírópi og
berjum að vild. Gott er að frysta í
20 mínútur til að fá ísáferð á eftir-
réttinn.
Guðríði þykir
gott að Feel
Iceland kolla-
genið sé í duft-
formi því þá er
hægt að bæta
því við í hvers
kyns mat og
drykk, eins og
þennan æðis-
lega eftirrétt úr
bláberjaskyri,
rjóma, kollageni
og sykurlausu
karmellusírópi.
Við höfum sent
Feel Iceland kolla-
gen til útlanda, til ferða-
fólks sem keypti það hjá
okkur í heimsókn sinni
til Íslands, prófaði kolla-
genið og vill meira. Það
væri hvorki veruleikinn
ef kollagenið virkaði
ekki, né heldur ef þeir
sem neyta þess fyndu
ekki mun á sér til góðs.
ég vera frábæra blöndu og vona
að fólk finni þann mun sem ég hef
fundið með þessu tvennu saman,“
segir Guðríður.
Eftir að hún bætti Feel Iceland
kollageni við fæðuna hafa fínar
línur í andliti líka minnkað.
„Eftir að ég varð fertug fór ég að
finna mun á húðinni og sjá fínar
línur myndast en með kollageninu
hefur dregið úr þeim og meiri
fylling orðið í húðinni. Því er ekki
ofsögum sagt að kollagen hafi
yngingaráhrif á húð,“ segir Guð-
ríður og hlær.
„Feel Iceland kollagen er al-
íslensk, hrein og skaðlaus nátt-
úruafurð. Kollagen er eitt aðal
byggingarefni líkamans og gerir
okkur ekkert nema gott. Það
byggir upp kroppinn á alla lund
og hefur áhrif á húð, hár, neglur,
slímhúð, liðbönd og bein, enda er
stór hluti beinvefsins úr kollageni,“
segir Guðríður.
Erlendir ferðamenn hrifnir af
hreinu íslensku kollageni
Inn af Laugavegi koma í Íslands-
Apótek jafnt Íslendingar sem
ferðafólk frá öllum heimshornum.
„Þeir sem einu sinni prófa Feel
Iceland kollagen koma til okkar
aftur og aftur, því þeir finna hvað
það hefur góð áhrif á skrokkinn
og útlitið. Við reynum að vera með
besta verðið og gefum að auki 10
prósenta afslátt fyrir eldri borgara
og öryrkja. Hingað koma því
margar eldri konur til að nýta sér
„unglingaafsláttinn“ því þær finna
á sér mikinn mun og það munar
um minna,“ segir Guðríður.
„Erlendir ferðamenn sem koma
í apótekið eru yfirhöfuð mjög
hrifnir af íslenskum heilsu-
vörum og ekki færri útlendingar
en Íslendingar sem kaupa Feel
Iceland kollagen hjá okkur. Við
höfum því sent Feel Iceland
kollagen til útlanda, til ferðafólks
sem keypti það hjá okkur í heim-
sókn sinni til Íslands, prófaði
kollagenið og vill meira. Það væri
hvorki veruleikinn ef kollagenið
virkaði ekki, né heldur ef þeir sem
þess neyta fyndu ekki mun á sér
til góðs.“
Feel Iceland vörurnar fást meðal
annars á eftirtöldum stöðum:
Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyfjum og
heilsu, Fjarðarkaupum, Apótekar-
anum, Fríhöfninni og Jurtaapó-
tekinu. Sjá nánar á feeliceland.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . M A R S 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R