Fréttablaðið - 14.03.2020, Blaðsíða 70
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
395
„Jæja þá, tvær nýjar sudoku
gátur,“ sagði Kata glottandi.
„Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku gátur að við
skulum koma í kapp um hver
verður fyrstur til að leysa
þær,“ bætti hún við. „Allt í
lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“
Lísaloppa var líka góð í að
leysa sudoku gátur svo hún
var alveg til í keppni. „Við
glímum öll við þær báðar
og þá kemur í ljós hversu
klár þú ert orðin,“ sagði hún.
„En ég vara ykkur við, ég er
orðin mjög klár,“ sagði Kata
montin. „Við getum byrjað
á þessari léttari,“ sagði
Lísaloppa. „Þeirri léttari
fyrst,“ sagði Kata hneyksluð.
„Ekki ég, ég byrja á þeirri
erðari fyrst,“ sagði hún og
glotti. „Ég yrði jótari en þið
bæði til samans þótt þær
væru báðar þungar.“ Kata var
orðin ansi klár. En skildi hún
vera svona klár?
Heldur
þú
að þú g
etir ley
st
þessar
sudoku
gátur h
raðar e
n
Kata?
?
?
?
8
4 6 8 7
5 6 2 1 7
6 7
3 4 2
2 7 9 5 3 1
1 4 3 8 9 2
6 3 8
9 7 1
5 3 8
1 9 4
7 9 4 6 8
6 1 9 7
8 7 4 3
4 6 3
1 9
9 6 8 1 4
5 8
Þorlákur Flóki verður að bursta tennurnar, fara í föt og greiða sér, til að muna
að hann sé ekki sófadýr þegar hann er í sóttkví. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þorlákur Flóki Níelsson, níu ára,
er einn þeirra Íslendinga sem eru
í sóttkví þessa dagana. Hann var í
sinni fyrstu skíðaferð, í héraðinu
Garmisch-Partenkirchen í Þýska-
landi, í síðustu viku en fjölskyldan
var öll við hestaheilsu síðasta
fimmtudagskvöld.
Hvernig líður þér að vera svona
innilokaður, Þorlákur Flóki? Bæði
illa og vel. Við erum ekkert að hósta
eða svoleiðis. En ég var eina viku í
burtu og saknaði vina minna ótrú-
lega mikið, ég gat ekki hitt þá neitt,
bara talað við þá í gegnum On-line
tölvuleik, og núna þegar ég er í
sóttkví í tvær vikur sakna ég þeirra
rosalega.
Ertu á náttfötunum allan daginn?
Nei, við verðum að bursta tennurn-
ar, fara í fín föt og greiða okkur til
að muna að við séum ekki sófadýr.
Hvað gerið þið svo á daginn? Ég
er í heimaskóla með litla bróður
mínum. Pabbi og mamma eru bæði
að kenna okkur. Alltaf í heima-
skólanum þá vinnum við í tuttugu
mínútur og svo er frjáls tími í tutt-
ugu mínútur.
Hvað varstu að læra í dag? Ég var
að reikna á klukku. Svo vorum við
líka að lesa.
Ertu duglegur að lesa? Já, ég klár-
aði að lesa 217 blaðsíður á þremur
dögum. Það var dagbók Kidda
klaufa - Randver kjaftar frá. Hún er
rosaskemmtileg.
Eigið þið nóg af mat að borða?
Við fáum stóra bróður minn eða
nágrannana til að færa okkur mat.
Bróðir minn var ekki með okkur á
skíðunum.
Ætlarðu að gera eitthvað sérstakt
í sóttkvínni fyrir utan að vera
í heimaskóla? Ég ætla að horfa á
eitthvað á Netflix, til dæmis How
to train your dragon og Race to the
egg.
Máttu fara út? Ég má fara út í garð
en það má enginn nema fjölskyld-
an koma nær mér en tvo metra.
Kannski förum við út í sveit, í
bústaðinn hans afa.
Hvernig var á skíðunum? Það var
rosagaman. Ég fékk einkakennara
með bróður mínum í einn dag,
svo fór pabbi að kenna okkur. Við
fórum niður risabrekkur og pabbi
kenndi mér að sveigja, þá klessir
maður ekki og dettur ekki. Svo fór
ég sikksakk í plóg, þá snúa odd-
arnir á skíðunum saman. Pabbi og
kennarinn kölluðu það pitsu, því
það er eins og pitsusneið í laginu
Af hverju heitir þú Þorlákur
Flóki? Ég átti bara að heita Flóki
en af því ég fæddist á Þorláksmessu
þá kallaði afi minn í móðurætt mig
svo mikið Þorlák og þess vegna var
nafninu mínu breytt í Þorlák Flóka.
Líður bæði
illa og vel
ALLTAF Í HEIMASKÓL-
ANUM ÞÁ VINNUM VIÐ
Í TUTTUGU MÍNÚTUR OG SVO ER
FRJÁLS TÍMI Í TUTTUGU
MÍNÚTUR.
Hvað er það sem lengist og
styttist í senn?
Hvað er það sem sekkur í sæ
en blotnar ekki?
Hvað er samsett úr mörgum
götum en getur þó haldið
vatni?
Hvaða hestur hefur aldrei
verið folald?
Gátur Fugl vikunnar: Auðnutittlingur
Auðnutittlingurinn er einn þeirra
fugla sem dvelja á Íslandi yfir
veturinn, er sem sagt stað-
fugl. Hann er einn af minnstu
fuglum landsins, stélið er stutt
og goggurinn líka. Það er auðvelt
að þekkja hann því hann er með
rautt enni. Að öðru leyti er hann
grábrúnn með dökkar rákir á
hliðunum.
Auðnutittlingurinn er fimur
flugfugl. Utan varptímans fer
hann oft í hópum frá einum stað
til annars og syngur skærri röddu
Di-djídd di- djídd di - djídd. Hann
er spakur,heldur sig í skógum
landsins og trjágörðum og
fræ eru hans uppáhaldsfæða.
Hreiðrið er strákarfa og í það
verpir kvenfuglinn fjórum til sjö
litlum eggjum og liggur á þeim
þar til ungarnir koma eftir tíu til
tólf daga, karlfuglinn færir henni
mat á meðan. Foreldrarnir mata
ungana á skordýrum en eftir tíu
til fjórtán daga fljúga ungarnir
úr hreiðrinu og fara að bjarga sér
sjálfir.
Heimildir: Fuglar í náttúru
Íslands og Íslenskur fuglavísir
Auðnutittlingurinn kann vel að meta matargjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Svör: Ævin, sólin, svampur,
rugguhestur
1 4 . M A R S 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR