Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 4
Það er fullt af starfandi lögmönn- um hér á landi sem selja sína þjónustu, margir hverjir sérfróðir á sínu sviði. Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 AÐEINS TVEIR BÍLAR Í BOÐI TILBOÐSVERÐ FRÁ: 6.850.000 KR. JEEP® COMPASS LIMITED ALVÖRU JEEPI MEÐ ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF • Leðurinnrétting með rafdrifnum sætum • Leðurklætt aðgerðarstýri • Rafdrifin opnun á afturhlera • Hiti í stýri og framsætum • Íslenskt leiðsögukerfi • 8,4” upplýsinga- og snertiskjár • Alpine hljómflutningstæki með bassaboxi • Sjálfvirk tveggja svæða miðstöð með loftkælingu • Aðfellanlegir og upphitaðir hliðarspeglar • 140 hö. diesel, 9 gíra sjálfskipting • Select-Terrain fjórhjóladrif með 4 drifstillingum • Bluetooth til að streyma tónlist og síma • Bakkmyndavél • Fjarlægðarskynjarar að framan og aftan • Árekstrarvari • LED dagljós og LED afturljós • 18” álfelgur • Blindhorns- og akreinavari • Fjarlægðarstilltur hraðastillir • Leggur sjálfur í stæði • Svart þak S TJ Ó R N S Ý S L A Dóm smá la r áð - herra og formenn Lögmannafélags Íslands og Dómarafélags Íslands gera ekki athugasemd við að Davíð Þór Björg vinsson, varaforseti Landsréttar, hafi fengið greiddar hátt í þrjátíu milljónir króna fyrir störf í gerðardómi þar sem hann hafi fengið undanþágu frá nefnd um dómarastörf. Davíð Þór fékk greiddar hátt í þrjátíu milljónir fyrir að starfa sem gerðarmaður í þremur málum sem varða sölu eignaumsýslufélagsins ALMC á hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail á árunum 2016 til 2020, að hluta til samhliða störfum sínum fyrir Landsrétt. Viðmælendur Fréttablaðsins segja að það þekk- ist ekki að slík aukastörf séu það umfangsmikil og tímafrek að þau kosti tugi milljóna. Almennt er óheimilt að dómarar sinni öðrum störfum en dómara- störfum, en nefnd um dómarastörf getur veitt undanþágu.  Hjördís Björk Hákonardóttir, formaður nefndarinnar, sagði í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins, að Davíð Þór hafi verið heimilt að ljúka gerðarmálunum þar sem hann hafi verið skipaður sem hlutlaus aðili. Almennt séð er það afstaða Lögmannafélagsins að það sé óeðlilegt að dómarar taki að sér aukastörf gegn gjaldi. „Lögmannafélagið hefur sett fram gagnrýni á að dómarar séu að taka að sér aukastörf gegn gjaldi og höfum við komið þeirri athuga- semd á framfæri við hlutaðeigandi aðila,“ segir Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands. „Við höfum verið að sjá aukin merki þess að dómarar séu að taka að sér sérfræðiálit fyrir löggjafar- og framkvæmdarvaldið. Það er mat Lögmannafélagsins að þessi þróun sé varhugaverð í ljósi sjálfstæðis dómstóla og dómara og mögulegra hagsmunaárekstra, endi ágreinings- mál sem lögfræðiálitin taka til fyrir dómstólum,“ segir Berglind. „Ég ætla ekki að halda því fram að neitt slíkt hafi verið gert án samþykkis nefndar um dómarastörf en burtséð frá því má alveg velta fyrir sér hvort það sé eðlilegt að stjórnvöld séu að falast eftir því við dómara að vinna lögfræðiálit og greiða þeim fyrir.“ Eðlilegra væri að leita til starf- andi lögmanna í slíkum tilfellum en til dómara. „Það er fullt af starf- andi lögmönnum hér á landi sem selja sína þjónustu, margir hverjir sérfróðir á sínu sviði. Ég teldi að það væri eðlilegra að leita til þeirra lög- manna.“ Lögmannafélagið kom athuga- semdum á framfæri við dómsmála- ráðuneyti í fyrra eftir að tveir dóm- arar unnu lögfræðiálit um þriðja orkupakkann að beiðni stjórn- valda. „Við komum einnig á fram- færi athugasemdum við Dómara- félagið og dómstólasýsluna.“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að hún tjái sig ekki um þetta einstaka mál nema að því leyti að hún taki það til greina að Davíð Þór hafi leitað til nefndar um dómarastörf og fengið tilskildar heimildir. Bendir hún á að unnið sé að frumvarpi í ráðu- neytinu um hagsmunaskráningu dómara. Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður Dómarafélags Íslands, vísar á nefnd um störf dómara sem hafi ekki gert athugasemdir við mál Davíðs Þórs. Hann bendir á að reglur um aukastörf dómara sem nefndin starfi eftir séu mun strangari hér á landi en til dæmis í Danmörku og Noregi. Í Danmörku mega tekjur dómara af aukastörfum ekki fara yfir 50 prósent af embættislaunum dóm- ara á tímabilum sem miðuð eru við þrjú almanaksár. Launaþakið fyrir aukastörf tekur ekki til launa fyrir ritstörf og setu dómara í sérdóm- stólum. Í Noregi er ekkert launaþak á aukastörf en krafa er um að leita samþykkis nefndar um dómara- störf. Reglurnar séu þó almennt strangari hér á landi en þar, til dæmis þurfa dómarar ekki að skrá eign sína í félögum þegar verðmætið er undir 200 þúsund norskum krónum, eða 2,7 milljón- um íslenskra króna, eða ef eignar- hluturinn er undir 10 prósentum. arib@frettabladid.is Gera ekki athugasemdir vegna undanþágu frá nefnd Hvorki dómsmálaráðherra, Lögmannafélagið né Dómarafélagið gera athugasemd við tugmilljóna greiðslur til varaforseta Landsréttar vegna aukastarfa þar sem dómarinn var með undanþágu frá nefnd um dómarastörf. Lögmannafélagið gerir almennar athugasemdir við að dómarar sinni aukastörfum. Kostnaður vegna aukastarfa Davíðs Þórs Björgvinssonar, dómara í gerðar- dómi nam rúmlega þrjátíu milljónum króna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI TÖLUR VIKUNNAR 19.04.2020 TIL 25.04.2020 30 milljónir var kostnaðurinn af gerðardómsstörfum Davíðs Þórs Björgvinssonar Landsréttardómara. 0 kórónaveirusmit voru greind í gær. 1.454 konur leituðu til Landspítalans árin 2005 til 2014 vegna of- beldis sem þær höfðu orðir fyrir af hálfu maka. 6 vöruhúsum Amazon í Frakklandi hefur verið lokað þar sem um tíu þúsund manns starfa. 270 Hafnfirðingar hafa skrifað undir mótmæli við byggingu þriggja tvíbýlishúsa. Ragnheiður Maísól Sturludóttir forsprakki hópsins Súrdeigið á Facebook segir að um 2.300 manns hafi bæst við hópinn síðan 15. mars og segir að taka megi undir að súrdeigsæði sé á Íslandi. Hún segir að  súrdeig sé ákveðin viðspyrna við hröðu samfélagi. Hægt sé að baka gerbrauð á klukkutíma en að baka gott súr- deigsbrauð taki í raun 48 tíma. Steinunn Gestsdóttir aðstoðarrektor kennslumála og þróunar Háskóla Íslands segir að háskólinn hafi haldið fimm námskeið í gegnum edX, alþjóðlegt samstarfsnet háskóla um opin námskeið. Alls hafi 17.900 nemendur tekið þátt frá 140 löndum. Sá yngsti sé 12 ára og sá elsti 92. Námskeiðin séu á öllum fræðasviðum og mörg tengd viðskiptum og atvinnulífinu. Róbert Spanó nýkjörinn forseti Mannréttinda- dómstóls Evrópu segir að fram undan sé erfitt tímabil fyrir mannréttindi í Evr- ópu. Farsóttin muni hafa mikil áhrif og þar séu mannréttindi borgaranna ekki undanskilin. Hætta sé á að þeir sem fara með opinbert vald gangi of langt, einkum þegar lýðræðislegar undirstöður í samfélaginu eru ekki sterkar fyrir. Þrjú í fréttum Súrdeig, edX og mannréttindi 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.