Fréttablaðið - 25.04.2020, Qupperneq 8
Orkan býður lítrann á lægsta
verðinu í öllum landshlutum
— án allra skilyrða.
LÆGSTA
VERÐIÐ
Í ÖLLUM
LANDS-
HLUTUM
Við gætum fyllsta
hreinlætis og fylgjum
ráðleggingum um sóttvarnir
í öllum okkar viðskiptum.
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYR
VESTMANNAEYJUM
SAMFÉLAG „Ég tel að þetta séu
vondar fréttir fyrir þá sem hafa
talað niður íslenska lögfræði og
lögfræðimenntun. Þetta sýnir að
lögfræðingar á Íslandi, sem og fólk
í öllum öðrum starfsgreinum, eigi
fullt erindi í hóp þeirra bestu í heim-
inum. Smæðin á ekki að leiða til þess
að við tölum hvert annað niður hvað
það varðar.,“ segir Kjartan Bjarni
Björgvinsson, héraðsdómari og for-
maður Dómarafélags Íslands, um
kjör Róberts Spanó í embætti for-
seta Mannréttindadómstóls Evrópu.
„Eftir kjör Róberts eru íslenskir
dómarar nú í forsæti tveggja mikil-
vægustu alþjóðadómstólanna sem
Ísland á aðild að,“ segir Kjartan
Bjarni og vísar einnig til Páls
Hreinssonar, forseta EFTA-dóm-
stólsins.
Kjartan segir ljóst að íslenskir sér-
fræðingar eigi fullt erindi á alþjóða-
vettvangi eins og á öðrum sviðum
mannlífsins.
„Hans bíður gríðarlega erfitt
verkefni,“ segir Kjartan aðspurður
um ábyrgðina sem Róbert hefur
tekist á hendur. „Við getum f lest
verið sammála um að bæði lög-
festing Mannréttindasáttmálans
og aukin áhrif hans hér á landi er
ein mesta réttarbót sem hefur átt
sér stað á Íslandi síðustu áratugi.
Þessi sáttmáli stendur ekki einn
og sér. Ástæðan fyrir því að hann
hefur svona mikil áhrif er að það er
stofnun sem hefur eftirlit með fram-
kvæmd hans. Við þurfum síðan
sjálf að vernda mannréttindasátt-
málann og umgjörð hans til að þau
geti verndað okkur.“
Sjálfur sagði Róbert Spanó í viðtali
við Fréttablaðið í gær að kjörið væri
ekki aðeins persónulegur heiður
heldur mikilvæg tímamót fyrir alla
þjóðina sem hafa muni jákvæð áhrif
á ímynd og stöðu Íslands í samfélagi
þjóða sem byggja á lýðræði, réttar-
ríkinu og vernd mannréttinda. – aá
Eigum fullt erindi þrátt fyrir smæðina
Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðs-
dómari er formaður Dómarafélags
Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
GRÆNLAND Bandarísk stjórnvöld
tilkynntu á dögunum að þau muni
veita Grænlandi fjárstyrk að and-
virði 12,1 milljón Bandaríkjadala,
eða um 1,8 milljarða króna. Styrkn-
um er ætlað að nýtast til þróunar í
efnahagsmálum Grænlands.
„Þessar góðu fréttir eru til marks
um að vinna okkar við að efla sam-
band við Bandaríkin sé að bera
ávöxt,“ sagði Kim Kielsen, formað-
ur landsstjórnar Grænlands. Í til-
kynningu frá grænlenskum stjórn-
völdum kemur fram að áhersla verði
lögð á námuiðnað, ferðaþjónustu og
menntamál.
Í fyrra lýsti Donald Trump
Bandaríkjaforseti yfir áhuga á að
kaupa Grænland. Dönsk stjórnvöld
sögðu hugmyndina fráleita og var
utanríkisráðherra Grænlands sama
sinnis en var þó opinn fyrir mögu-
leikanum á samstarfi.
Viðbrögð danskra embættis-
manna við styrknum hafa verið
blendin. Jeppe Kofod, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, fagnaði
styrknum þar sem aukinn áhugi
Bandaríkjanna gæti komið Græn-
landi til góða.
Dagblaðið Financial Times hefur
eftir fjölda danskra þingmanna
að með styrknum séu Bandaríkin
að reyna að valda sundrungu
milli Danmerkur og Grænlands.
„Bandaríkin vinna greinilega að
því að grafa undan danska ríkinu,“
sagði Rasmus Jarlov, þingmaður og
fyrrverandi ráðherra. „Á endanum
verður það kannski ekki til staðar á
Grænlandi ef þau fá sínu framgengt.
Það er með öllu óásættanlegt.“
Bandaríkjamenn hafa þvertekið
fyrir að fjárstyrkurinn sé ætlaður
til að liðka fyrir kaupum þeirra á
Grænlandi síðar meir. Þá sagði Carla
Sands, sendiherra Bandaríkjanna
í Danmörku, styrkinn vera svar
Bandaríkjanna við vaxandi ítökum
Rússa og Kínverja í norðurhafi.
Bandaríkjamenn voru síðast
með ræðismann á Grænlandi
árið 1953 en hyggjast opna ræðis-
mannsskrifstofu á Grænlandi á
nýjan leik síðar á árinu. Þeir eru
fyrir með herstöð í bænum Thule.
arnartomas@frettabladid.is
Bandaríkin seilast til
áhrifa í Grænlandi
Bandarísk stjórnvöld munu veita Grænlandi fjárstyrk að andvirði 1,8 millj-
arðs króna sem er ætlað að styrkja efnahaginn þar í landi. Stjórnvöld á
Grænlandi taka styrknum fagnandi en danskir embættismenn eru uggandi.
Styrkurinn frá Bandaríkjunum verður notaður til að efla námuiðnað, ferðaþjón-
ustu og menntamál. Danir eru uggandi yfir þróun mála. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð