Fréttablaðið - 25.04.2020, Page 17
FÓTBOLTI Borgarstjóri Liverpool-
borgar, Steve Rotherham, hefur
farið fram á að rannsakað verði
hvort leikur Liverpool og Atletico
Madrid í 16 liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu hafi átt stóran þátt
í útbreiðslu kórónaveirunnar um
borgina. Uppselt var á leikinn og
voru 52 þúsund stuðningsmenn
á Anfield þetta kvöld, þar af þrjú
þúsund frá höfuðborg Spánar.
Rotherham sagði við BBC Sport
að ef það kæmi í ljós að fjöldi fólks í
Liverpool hefði fengið veiruna vegna
leiksins væri það ekkert minna en
hneyksli.
„Ef fólk hefur fengið vírusinn
vegna leiks, sem okkur finnst að
hefði ekki átt að fara fram, er það
hneyksli. Það setti ekki aðeins
áhorfendur og fjölskyldur þeirra í
hættu heldur starfsfólk heilbrigðis-
kerfisins,“ sagði borgarstjórinn og
var alls ekki skemmt.
Alls hafa 246 látist vegna kóróna-
vírussins í borginni en líkt og
annars staðar eru það aðeins þeir
sem látast á sjúkrahúsi sem eru
taldir með. Það gætu því verið fleiri
látnir. Madríd er sögð hafa farið
einna verst út úr vírusnum í Evrópu.
Rotherham bendir á að á sama
tíma og íbúum Madrídar hafi verið
bannað að hittast í heima landinu
hafi þrjú þúsund stuðn ings mönn-
um liðsins verið hleypt inn í Liver-
pool. Borgarstjóri Madrídar hefur
þegar sagt að það hafi verið mistök
að láta leikinn fara fram og það sama
sagði Matthew Ashton yfirmaður
heilbrigðismála í Liver pool.
Bent er á í frétt BBC að Boris Joh-
ns on mætti á landsleik Englands
og Wales í rúgbý. Angela McLean,
ráð gjafi bresku ríkisstjórnarinnar
í kórónaveirumálefnum, sagði
að það væri áhugaverð kenning
að leikurinn hefði margfaldað
útbreiðsluna. – bb
Vill að rannsókn fari fram á leik Liverpool og Atletico Madrid
Liverpool datt út gegn Atletico svo
að eftir var tekið. MYND/GETTY
Titilvörn Liverpool
endaði í sextán liða úrslit-
unum gegn Atletico Madrid.
EFNAHAGSREIKNINGUR (í þús.kr.): 31.12.2019 31.12.2018
Eignarhlutir í félögum og sjóðum 78.309.017 59.516.697
Skuldabréf 100.751.236 98.067.722
Innlán og bankainnstæður 1.088.812 714.153
Kröfur 956.365 959.398
Aðrar eignir og rekstrarfjármunir 179.818 186.113
181.285.248 159.444.083
Skuldir -35.424 -36.669
Séreignarsjóður, Söfnunarleið I og II 2.957.993 2.657.487
Samtals 184.207.817 162.064.901
YFIRLIT UM BREYTINGAR Á HREINNI EIGN TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS:
Iðgjöld 5.276.972 5.003.574
Lífeyrir og endurhæfingarsjóður -5.121.594 -4.717.270
Fjárfestingartekjur 22.378.550 8.844.575
Rekstrarkostnaður -391.012 -382.121
Hækkun á hreinni eign á tímabilinu 22.142.916 8.748.758
Hrein eign frá fyrra ári 162.064.901 153.316.143
Samtals 184.207.817 162.064.901
LÍFEYRISSKULDBINDINGAR: 31.12.2019 31.12.2018
Eignir umfram áfallnar skuldbindingar 238.317 -2.719.579
Í hlutfalli af áföllnum skuldbindingum 0,1% -1,7%
Eignir umfram heildarskuldbindingar -1.645.174 -2.798.716
Í hlutfalli af heildarskuldbindingum -0,7% -1,3%
Sjóðurinn hefur aldrei skert áunnin réttindi sjóðfélaga.
KENNITÖLUR: 31.12.2019 31.12.2018
Nafnávöxtun 13,7% 5,5%
Hrein raunávöxtun 10,7% 2,2%
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 4,9% 4,1%
Hrein raunávöxtun 10 ára meðaltal 5,1% 4,4%
Hrein raunávöxtun 20 ára meðaltal 4,4% 4,2%
Fjöldi virkra sjóðfélaga 6.377 6.564
Fjöldi sjóðfélaga 143.420 141.518
Fjöldi lífeyrisþega 16.364 15.576
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,2% 0,2%
Eignir í íslenskum krónum 67,0% 71,7%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum 33,0% 28,3%
ÁVÖXTUN SÉREIGNARDEILDAR 2019:
Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I sem er innlánsreikningur ásamt stuttum
tryggum skuldabréfum var 4,5% eða 1,8% hrein raunávöxtun.
Nafnávöxtun Söfnunarleiðar II sem inniheldur ýmis verðbréf nam 10,8% eða
7,9% hrein raunávöxtun. Er þetta sú ávöxtun sem rétthafar njóta.
Heildareignir séreignardeildarinnar eru 2.958 milljónir króna í árslok 2019.
SJÓÐFÉLAGAR:
Sjóðurinn er ætlaður öllum launþegum og sjálfstætt starfandi mönnum sem
eiga ekki kjarasamningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Hann getur
því verið góður kostur fyrir ýmsa aðila sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð.
Sjóðurinn byggir á samtryggingu og séreign.
Yfirlit um afkomu 2019
ÁRSFUNDUR
2020
Ársfundur sjóðsins verður
auglýstur sérstaklega
Í stjórn sjóðsins eru:
Guðmundur Árnason, formaður
Hrafn Magnússon, varaformaður
Aðalbjörg Lúthersdóttir
Einar Sveinbjörnsson
Reynir Þorsteinsson
Svana Helen Björnsdóttir
Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir
Framkvæmdastjóri er:
Sigurbjörn Sigurbjörnsson
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17L A U G A R D A G U R 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0
FÓTBOLTI Svo gæti farið að leik-
mönnum í þýsku Bundesligunni
verði bannað að fagna mörkum
samherja sinna og þeir látnir spila
með grímu en stefnt er á að deildin
hefjist á ný 9. maí. Í samantekt BBC
um þýska boltann kemur fram að
f lestir leikmenn séu komnir aftur
til æfinga og æfi nú í litlum hópum.
Þar kemur fram að leikmenn
og dómarar gætu spilað með
sérhannaðar grímur sem eiga að
minnka smithættu. Ef leikmaður
missir grímuna af sér þarf að stöðva
leikinn. Þá verður gert hlé á leiknum
í 15 mínútur til að leikmaðurinn geti
fengið nýja grímu. Á skiptisvæðinu
þarf að halda fjarlægð. Þá er bent á
að leikmenn eigi að forðast óþarfa
snertingar, og er það sérstaklega
tekið fram um að fagna ekki
mörkum með faðmlagi. Dómarar
geti refsað þeim fyrir faðmlagið. – bb
Látnir spila
með grímu
Erling Haaland gæti þurft að spila
með grímu. MYND/GETTY
FÓTBOLTI Gabriel Jesus, sóknar-
maður brasilíska landsliðsins og
Manchester City, tilkynnti í beinni
útsendingu á Youtube að hann
hefði komið íbúum fátækrahverfa
í Brasilíu til aðstoðar með rausnar-
legri matargjöf.
Jesus gaf nefnilega þrjú tonn af
mat til íbúa í fátækrahverfum í
landinu en hann ólst sjálfur upp í
fátækrahverfi í Sao Paulo í heima-
landinu. Landi hans, söngvarinn
Belo, kom ýmsum frægum brasil-
ískum stjörnum saman og hrinti
af stað mikilli söfnun fyrir þá
sem eiga hvað erfiðast í faraldr-
inum. Jesus var þó ekki einn af
þeim heldur hringdi inn í þátt-
inn til að fá óskalag og lét vita um
leið af góðverki sínu. Hann tók
svo undir þegar Belo tók lagið.
Jesus hefur áður látið gott af sér
leiða í faraldrinum og gaf hundruð
matarkarfa til fjölskyldna í hverfinu
þar sem hann ólst upp.
Fyrr í vikunni staðfesti talsmaður
brasilíska landsliðsins að leikmenn
liðsins hefðu safnað 850 þúsund
evrum til að gefa bágstöddum.
Helmingurinn kom frá leikmönn-
um en hinn helmingurinn frá knatt-
spyrnusambandinu og á upphæðin
að koma 32 þúsund fjölskyldum til
góða. – bb
Jesús gaf þrjú
tonn af mat