Fréttablaðið - 25.04.2020, Síða 22
ÞETTA HEFUR ÞVÍ VERIÐ
LÖNG OG STRÖNG VEGFERÐ
EN SEM BETUR FER BÝR
ÖLL FJÖLSKYLDAN YFIR
EINSTAKRI AÐLÖGUNAR-
HÆFNI.
Við höfum alla okkar búskapartíð verið í suðurhlíðum Kópa-vog s og höfðu m lengi leitað að húsi sem passaði fyrir
stóru fjölskylduna okkar,“ segir
Ragnhildur en eitt og hálft ár er
síðan fjölskyldan flutti inn. „Þá var
ekkert tilbúið, ekki einu sinni her-
bergjaskipan.“
Eins og fyrr segir er fjölskyldan
í stærri kantinum en með þeim
Ragnhildi og eiginmanni hennar
Inga Sturlusyni búa börnin þeirra
fjögur, tengdasonur og tvær kisur.
„Það sem heillaði okkur var því
fyrst og fremst staðsetningin, en
síðan voru það óendanlegu mögu-
leikarnir sem húsið bauð upp á. Við
vildum stórt samverurými því bæði
er fjölskyldan mjög samhent og svo
erum við öll svo óskaplega félags-
lynd að það er alltaf einhver með
vini í heimsókn. Við vildum því að
það væri auðvelt að bæta fjórum til
fimm manns við matarborðið.“
Húsið var byggt árið 1969 og
flest allt er upprunalegt en að sögn
Ragnhildar því miður of illa farið
til að nýta. „Við hjónin höfum
tvisvar áður gert upp húsnæði og
þá reyndum við að halda aðeins í
söguna. Ég reyndi mitt besta til að
passa hitt og þetta, sem síðan þurfti
á endanum að fara.“
Herbergjaskipan hússins var ekki
í samræmi við þarfir fjölskyldunnar
og því var ráðist í að breyta henni.
„Í raun var allt hreinsað út, gólfefni,
veggir, rafmagn og pípulagnir. Eld-
húsið var fært því við vildum fanga
morgunsólina í opnu rými og bað-
herbergi voru stækkuð.
Við hefðum aldrei haft efni á að
ráðast í svona framkvæmdir, nema
af því að Ingi er lærður smiður þó að
hann starfi ekki við það í dag. Við
erum því búin að gera næstum allt
sjálf með góðri hjálp frá stórfjöl-
skyldunni og einstökum vinum.
Það er ómetanlegt.“
Tvíburasynirnir í fataherbergi
Framkvæmdir standa enn yfir og
segir Ragnhildur ráðist í þær eftir
þörfum. „Fyrst þurfti að komast
inn, síðan að tryggja herbergi en
tvíburasynir okkar voru til dæmis
í fataherbergi okkar hjóna fyrstu
fjóra mánuðina, og svo koll af kolli.
Þetta hefur því verið löng og ströng
vegferð en sem betur fer býr öll
fjölskyldan yfir einstakri aðlög-
unarhæfni og þegar hlutirnir ganga
hægt, er glaðst yfir minnstu hlutum,
til að mynda innstungu sem virkar
eða hurð á baðherbergið.“
Borðum alltaf saman
Aðspurð um sinn uppáhaldsstað í
húsinu á Ragnhildur erfitt með að
gera upp á milli eldhúss og stofu.
„Við erum mikið matfólk, borðum
alltaf saman öll kvöld og á því eru
engar undantekningar. Þegar ég
innréttaði eldhúsið lagði ég ríka
Samhent fjölskylda
í framkvæmdum
Ragnhildur Bjarkadóttir, sálfræðingur hjá Auðnast, býr ásamt
stórri fjölskyldu sinni í fallegu húsi frá sjöunda áratugnum í suður-
hlíðum Kópavogs en húsið gerðu þau upp að mestu leyti sjálf.
Hér má sjá
hlaðna vegginn
vísa út í stofuna
og arininn sem
er mikið not
aður. Fremst
má einnig sjá
nýjasta fjöl
skyldumeð
liminn, Fjólu
sem var fyrir 3
mánuðum 900
grömm en er nú
að nálgast þrjú
kíló.
Nóg af borð
plássi og gott
rými var það
sem skipti
Ragnhildi
miklu. Eldhúsið
var teiknað
upp enda er
þar eldað fyrir
sjö hvert kvöld
vikunnar og
pláss þarf einn
ig að vera fyrir
sjö að ganga frá.
Baðherbergið var stækkað og veggurinn þykktur til að
koma fyrir innbyggðri hillu. „Inga datt í hug eitt kvöldið
að setja innbyggð ljós í hilluna og var hann ekki lengi að
fræsa og koma fyrir ljósborðum og útkoman er flott.“
Hér má sjá
stigaopið með
risastórum
glugga sem
áður var falinn.
„Við tókum
niður stóran
vegg sem lokaði
stigaopinu
og settum
ljósgráar hillur
úr IKEA sem líta
vel út að aftan
þegar þú gengur
upp stigann. Í
þessum glugga
náum við
kvöldsólinni
inn í eldhúsið.“
Hjónin Ragnhildur og Ingi hafa gert upp nokkrar íbúðir í þá rúmu tvo ára
tugi sem þau hafa búið saman og eru sérlega samhent og röggsöm. Það er
því ólíklegt að þetta sé síðasta húsið sem þau gera upp . FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Framhald á síðu 24
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð