Fréttablaðið - 25.04.2020, Side 46

Fréttablaðið - 25.04.2020, Side 46
Það er æskilegt að skoða vel merki- miða þegar plantan er keypt. Hver vill fá tann- kremsbragð af palest- ínska lambinu? Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Sértu að íhuga það að setja niður minturunna í garð-inum er algerlega þess virði að hugsa sig tvisvar um hvers konar mintu á að setja niður og í hvað á að nota hana. Þessu greinir vefmiðillinn mentalfloss frá. Á að marinera hana í frískandi kokteilum í sumar eða hlýja sér á köldum sumarnóttum með fun- heitt mintute? Til eru nefnilega nokkur af brigði af mintu og þau vin- sælustu nefnast piparminta, og svo „spearmint“. Piparmintan er blendingur af spearmint og vatna- mintu. En hver er hinn eiginlegi munur? Einhverjir kveikja kannski á per- unni þegar kemur að því að velja sér tyggigúmmí. Piparmintan er nefnilega oftast í bláum umbúðum og spearmint í grænum umbúðum. Piparminta og spearminta eru með tennt lauf blöð, framleiða bleik og lillablá blóm, fjölga sér eins og innihalda mentol, sem er efnið sem gefur hið fríska mintu- bragð. Hins vegar er mikill munur á magni mentols í hvorri tegund- inni fyrir sig. Spearmint laufin eru með um 0,5% af mentoli og sætt og milt mintubragð en piparmintan er sterkari með alls 40% mentol. Spearmint laufin innihalda að auki efnið „carvone“ sem gefur plöntunni hið milda og sæta auka- bragð. Ef ætlunin er að nota mintu í kokteila og matargerð þá er yfirleitt mælt með að nota spearmint gerðina þar sem hún er mildari og sætari. Piparmintan er frekar notuð í sælgætisgerð eins og í piparmintubrjóstsykur, í te og mintusúkkulaði. Því er æskilegt að skoða vel merkimiða þegar plantan er keypt. Hver vill fá tannkremsbragð af palestínska lambinu? Skiptir máli minta eða séra minta Minta er vinsælt krydd fyrir botni Miðjarðarhafsins. Einnig gefur mintan ferskan keim í hanastél að ógleymdum jólastöfunum, tannkreminu og þar sem frískandi mentolbragð fær að njóta sín. Hvort tveggja piparmynta og spearminta eru með tennt laufblöð, framleiða bleik og lillablá blóm, fjölga sér á sama hátt og innihalda mentol, sem er efnið sem gefur hið ljúfa og frískandi mintubragð í munn. MYND/GETTY IMAGES Nú er tími fyrir pottinn! trefjar.is Skoðaðu úrval heitra potta og aukahluta á Frí heimsending um land allt ef verslað er í vefverslun 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.