Fréttablaðið - 25.04.2020, Side 52
Til að birta andláts-, útfarar- eðaþakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Kristinn Daníelsson
vélfræðingur,
lést á heimili sínu föstudaginn
17. apríl. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu
mun útförin fara fram síðar og auglýst
þegar þar að kemur. Hjartans þakkir færum við Heru
heimahjúkrun fyrir einstaka alúð.
Vilhelmína Ólafsdóttir
Helgi Kristinsson Molly Smith
Davíð Freyr Albertsson Tinna Þorvaldsdóttir
Ísabella Ösp, Börkur Elí, Aníta Eik, Birkir Leó
María Albertsdóttir
Berglind, Elísabet Freyja
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þorbjörg Jónasdóttir
lést á líknardeild
Landspítalans þann 20. apríl.
Vegna aðstæðna fer útför fram
í kyrrþey þann 4. maí.
Þökkum hlýhug og auðsýnda samúð.
Þóra Björg Jónasdóttir
Yngvi Halldórsson Linda Jónsdóttir
Halldór Halldórsson Arna Borg
barnabörn og barnabarnabarn.
Okkar ástkæri,
Jóhannes R. Albertsson
fv. vélstjóri hjá Eimskip,
Suðurlandsbraut 58,
lést á Hrafnistu, Reykjavík,
22. apríl síðastliðinn.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jósefína Hafsteinsdóttir
Hafdís Þorgeirsdóttir Sigurður J. Þorbergsson
Bryndís Þorgeirsdóttir Jón K. Sigurfinnsson
Magnús Þorgeirsson Ellý Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín,
amma og langamma,
Erna Kristín Elíasdóttir
lést föstudaginn 17. apríl á
dvalarheimili Hrafnistu.
Í ljósi aðstæðna mun útförin fara fram
í kyrrþey þriðjudaginn 5. maí.
Erna Gréta Garðarsdóttir
Erna Kristín Ernudóttir Björn Bragi Bragason
Garðar Axel Torfason Helena Þórarinsdóttir
Við nemendur Háskóla Íslands tök um hefð-bundin lokapróf venju-lega í skólanum en nú er ég heima og það er ótrú-lega gott,“ segir Arnaldur
Starri Stefánsson sem var í gær að leysa
úr fyrsta lögfræðiprófinu eftir vorönn-
ina í gegnum netið. Það var í faginu Rétt-
arfar II. Hann ætlar að brautskrást með
BA í vor og býst við að útskriftin verði
kringum mánaðamótin júní/júlí.
Hann kveðst hafa átta tíma til að leysa
úr prófinu, í stað þriggja í skólastofunni.
„Það er pínu varasamt því þá er maður
ekki með stressið sem ýtir hlutunum
áfram. En þetta fyrirkomulag varð fyrir
valinu, að minnsta kosti í lagadeild. Mér
þykir það bara nokkuð manneskjulegt.“
En geta nemendur ekki f lett upp í
bókum, hringt í mann og annan og
borið sig saman í prófinu? spyr ég.
„Það er alltaf hætta með heimapróf.
Auðvitað brýna kennarar fyrir okkur
að stranglega bannað sé að vera í ein-
hverjum samskiptum, samt er ekkert
sem kemur í veg fyrir það. Kannski gera
kennarar enn meiri kröfur nú en venju-
lega vegna þess að nú gætum við verið
með gögn með okkur.“
Heimili Arnaldar Starra er á Þóris-
stöðum á Svalbarðsströnd, við austan-
verðan Eyjafjörðinn. Þar reka foreldrar
hans hótel. Skyldi hann hafa setið við að
læra lögfræðina þar líka að undanförnu?
„Ég kom bara heim um síðustu helgi og
hef verið að læra undir próf síðan en
mánuðinn á undan bjó ég einn í íbúð
sem ég hef á Garði við HÍ, bæði af því
að ég var að ljúka lokaritgerð og líka af
því að ég var um tíma smeykur um að ég
væri orðinn veikur, þó einkennin væru
lítil. Komst ekki í neitt smitpróf á þeim
tíma svo ég var ekkert að æða neitt.“
Þó að ýmsir háskólar hafi tileinkað
sér fjarkennslu hefur Háskóli Íslands
verið fastari í fyrirlestraforminu til
þessa, að minnsta kosti í lögfræðinni, að
sögn Arnaldar Starra. „Það er eiginlega
ógerningur að taka áfanga í lagadeild og
vera ekki á staðnum. Ég fór bara í mína
fyrirlestra, enda bjó ég við hliðina á
skólanum svo það var þægilegt. Vonandi
uppgötva ýmsar deildir núna að ekkert
mál er að taka upp fyrirlestra og varpa
þeim. Reynsla frá þessu vori mun því
nýtast í framtíðinni.“
Arnaldur Starri kveðst hafa verið
alla vorönnina að vinna í lokaverkefnu,
tekið rispur þegar tími gafst til. En um
hvað fjallar verkefnið? „Ég þori varla að
segja það, fjölskyldu og vinum finnst
það svo leiðinlegt að þeir trúa því ekki
að það sé áhugamál hjá mér. Ég skrifaði
ritgerð á sviði samningaréttar sem
fjallaði um túlkunarsjónarmið í dómum
Hæstaréttar í gengisbreytingamálum.
Þetta voru dómar sem féllu í kjölfar
hrunsins. Ég hef alltaf haft áhuga á
hruninu og sá tækifæri til að setja mig
inn í þetta mál,“ segir Arnaldur Starri og
röddin lýsir svo miklum spenningi að
það er nánast smitandi.
Þegar hann valdi lögfræðina segir
hann fyrirvarann hafa verið mjög
stutt an. „Ég var staddur í Kambódíu
í heimsreisu og hitti þar hollenskan
lög fræðing og sagði honum að ég væri
óákveðinn í hvað ég ætlaði að læra. Hann
lýsti fyrir mér hvað fælist í starf inu og ég
sá að það hentaði mínum styrk leikum
ágætlega svo ég ákvað að stökkva til og
sótti um. Ég hef alltaf átt auðvelt með
að tjá mig og hef gaman af rökfræði.
Get verið hálf kassalaga sem í sumum
tilfellum er ágætt, en svo kom mér á óvart
að það var heilmikið svigrúm líka fyrir
nýjar hugmyndir.“ Hann kveðst ætla
beint í mastersnám í haust og hafa verið
einn af þeim heppnu sem fékk vinnu
í sumar og heldur henni. „Ég hef alltaf
unnið hér heima hjá foreldrum mínum
á hótelinu en ákvað að leita á önnur mið
núna og réði mig á lögmannsstofu. Byrja
strax eftir próf. Það er engin kreppa þar.
Þegar vel gengur í þjóðfélaginu er nóg að
gera á stofum og þegar gengur illa er enn
meira að gera.“
gun@frettabladid.is
Þori varla að segja um
hvað lokaverkefnið er
Arnaldur Starri Stefánsson, verðandi lögfræðingur, er einn þeirra nemenda Háskóla
Íslands sem stefnir á útskrift úr grunnnámi eftir þessa vorönn. Hann var einmitt að
þreyta fyrsta prófið í gær og sat við tölvuna heima á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd.
„Kannski gera kennarar enn meiri kröfur nú en venjulega vegna þess að nú gætum við verið með gögn með okkur,“ segir
Arnaldur þar sem hann leysir lokapróf í Réttarfari II heima á Svalbarðsströnd. AÐSEND MYND.
Ég var staddur í Kambódíu í
heimsreisu og hitti þar holl
enskan lögfræðing og sagði
honum að ég væri óákveðinn
í hvað ég ætlaði að læra. Hann
lýsti fyrir mér hvað fælist í
starfinu og ég sá að það hentaði
mínum styrkleikum ágætlega
svo ég ákvað að stökkva til og
sótti um.
Merkisatburðir
1719 Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe kemur út.
1859 Framkvæmdir hefjast við Súesskurðinn.
1915 Stórbruni verður í Reykjavík er Hótel Reykjavík
og ellefu önnur hús við Austurstræti, Pósthússtræti og
Hafnarstræti brenna.
1940 Merkið, færeyski fáninn er gerður að opinberum
fána eyjanna.
1989 Motorola MicroTAC, þá minnsti farsími heims,
kemur á markað.
1990 Violeta Chamorro tekur við embætti forseta
Níkaragva, fyrsta konan sem kjörin er til forsetaembættis
í Suður-Ameríku.
2012 Agnes M. Sigurðardóttir er kjörin fyrsti kvenbiskup
íslensku þjóðkirkjunnar.
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT