Fréttablaðið - 25.04.2020, Side 56
Listaverkið
Þær heita Steinunn Lára Ingvars-
dóttir og Hekla Dögg Ingvarsdóttir
og virðast í f ljótu bragði alveg eins.
Steinunn er í grárri peysu og Hekla í
svartri þegar þær mæta í viðtalið og
það einfaldar málið aðeins.
Inntar eftir aldri svara þær í kór: ell-
efu – að verða tólf.
Segið þið oft sömu orðin samtím-
is? Steinunn: Það kemur alveg fyrir.
Eruð þið alltaf vinkonur? Hekla:
Já. Oftast, bætir Steinunn við.
Deilið þið sama herbergi? Hekla:
Nei, ekki lengur en við gerðum það.
Er eitthvað ólíkt með ykkur?
Hekla: Steinunn er mikið fyrir dýr
en ég er frekar hrædd við þau.
Hver eru eftirlætisfögin í skól-
anum? Steinunn: Stærðfræði hjá
okkur báðum.
Farið þið þá stundum í keppni við
að leysa dæmin? Hekla: Nei, við
hjálpumst frekar að.
Hvernig hefur skólagöngunni
verið háttað síðustu vikur? Stein-
unn: Við mætum saman annan
hvern dag. Hekla: Og svo lærum
við heima hinn daginn.
Hvernig hefur ykkur líkað það?
Steinunn: Æ, það er hálf skrítið að
þurfa að læra svona mikið heima.
Eruð þið þá inni í herbergjum?
Hekla: Nei, alltaf báðar í stofunni.
Steinunn: Við lesum samt hvor í
sínu herbergi, til að fá meiri frið.
Hver eru áhugamálin? Hekla: Fót-
bolti hjá okkur báðum númer eitt,
tvö og þrjú. Steinunn: Við æfum
með Þrótti.
Hvaða stöður spilið þið? Stein-
unn: Ég er miðja og vörn. Hekla: Og
ég frammi. Við erum góðar!
Hafið þið sama fatastíl? Steinunn:
Minn er íþróttaföt.
Hekla: Minn er eiginlega eins nema
ég er stundum í peysum sem eru
ekki íþróttapeysur.
Hvort eru f leiri kostir eða gallar
við að vera tvíburar og svona
líkar? Steinunn: Kostir. Við erum
alltaf saman og stöndum saman.
Hekla: Okkur leiðist aldrei.
Eigið þið sömu vini? Steinunn: Já,
þeir spyrja eftir okkur báðum og er
alveg sama hvor okkar er.
Ruglast fólk á ykkur? Steinunn:
Alltaf, nema besta vinkona okkar.
Hekla: Einu sinni í skólanum fór ég
í tímann sem Steinunn átti að fara
í og hún í minn tíma af því okkur
langaði það. Það tók enginn eftir
því.
Hvað á að gera í sumar? Steinunn:
Æfa fótboltann. Hekla: Það eiga
að vera einhver mót en ekki með
neinum áhorfendum. Steinunn: Það
verður rosalega skrítið.
Er stöðugt
ruglað saman
VIÐ MÆTUM SAMAN
ANNAN HVERN DAG.
Steinunn
OG SVO LÆRUM VIÐ HEIMA
HINN DAGINN.
Hekla
Hvor er hvor? Jú, Steinunn Lára mætti í grárri peysu en Hekla Dögg í svartri
þegar þær mættu í viðtalið. Það var eins gott. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
401
„Jæja þá, tvær nýjar sudoku
gátur,“ sagði Kata glottandi.
„Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku gátur að við
skulum koma í kapp um hver
verður fyrstur til að leysa
þær,“ bætti hún við. „Allt í
lagi,“ sagði Konráð. „Til er ég.“
Lísaloppa var líka góð í að
leysa sudoku gátur svo hún
var alveg til í keppni. „Við
glímum öll við þær báðar
og þá kemur í ljós hversu
klár þú ert orðin,“ sagði hún.
„En ég vara ykkur við, ég er
orðin mjög klár,“ sagði Kata
montin. „Við getum byrjað
á þessari léttari,“ sagði
Lísaloppa. „Þeirri léttari
fyrst,“ sagði Kata hneyksluð.
„Ekki ég, ég byrja á þeirri
erðari fyrst,“ sagði hún og
glotti. „Ég yrði jótari en þið
bæði til samans þótt þær
væru báðar þungar.“ Kata var
orðin ansi klár. En skyldi hún
vera svona klár?
Heldur
þú
að þú g
etir ley
st
þessar
sudoku
gátur h
raðar e
n
Kata?
?
?
?
Hér eru það norn og leðurblaka sem ráða ríkjum. Sendandi
myndarinnar er Baldur Gísli Sigurjónsson sex ára.
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR