Fréttablaðið - 25.04.2020, Qupperneq 60
LÁGSTEMMD, ANNAR-
LEG, ÓHUGNANLEG
TÓNLISTIN FULLKOMNAR
ANDRÚMSLOFTIÐ, UNDIRALDAN
GRÍPUR ÁHORFANDANN UM
LEIÐ.
Gátur hafa verið vin-sælar á Facebook undanfarið, og hér er ein: Hvaða fyrirbæri er með átta fætur og greindarvísitöluna
60? Svarið er fjórir menn að drekka
bjór og horfa á fótbolta.
Víman virðist þó ekki hafa
truflað rithöfundinn Stephen King
þegar hann skrifaði sumar af sínum
þekktustu bókum. Hann er óvirkur
alkóhólisti í dag, en var allsvakaleg-
ur á sínum yngri árum. Neyslan var
sérstaklega slæm er hann vann að
Cujo, um stóran hund með hunda-
æði. Hann man eiginlega ekki eftir
að hafa skrifað hana. Það þykir
honum afar leitt, því að hans mati
er bókin fín!
King fjallar stundum beinlínis
um alkóhólisma í bókum sínum,
þar á meðal í The Shining, um fjöl-
skyldu í yfirgefnu hóteli um vetur.
Stanley Kubrick leikstýrði mynd-
inni sem síðar var gerð, og Jack Nic-
holson var meðal annars í aðalhlut-
verki.
Tónlistin, alkóhólisminn og hryllingurinn
Jónas Sen skrifar um pólska tónskáldið Krzysztof Penderecki sem lést nýlega. David Lynch sagði að
þar væri genginn einn mesti tónhöfundur allra tíma. Verk hans hljóma meðal annars í The Shining.
Krzysztof Penderecki. Honum lá auðheyrilega mikið á hjarta, segir Jónas Sen í umfjöllun sinni. MYND/EPA
Í hinni mögnuðu The Shining
hljómar verk eftir Penderecki.
Eitt mesta tónskáld sögunnar
Tónlistin á stóran þátt að í skapa
andrúmsloft hryllings í myndinni,
en hún var þó ekki upphaf lega
samin fyrir hana. Kubrick hafði
mikla þekkingu á tónlist, ekki
síst þeirri sem var sköpuð í sam-
tímanum, og hann sérvaldi hana í
myndir sínar. Í The Shining hljómar
m.a. verk eftir pólska tónskáldið
Krzysztof Penderecki (borið fram
Penderetskí), en hann lést um síð-
ustu mánaðamót. Kvikmyndaleik-
stjórinn David Lynch minntist hans
á Twitter fyrir nokkrum dögum,
og sagði að þar væri genginn einn
mesti tónhöfundur allra tíma.
Skelfileg tónlist
Tónlist Pendereckis er sömuleiðis
að finna í Wild at Heart eftir Lynch,
enn fremur einum þættinum í
nýlegri Twin Peaks röðinni sem
Lynch leikstýrði, og, síðast en ekki
síst, The Exorcist, um særingamann
og andsetna stúlku. Penderecki
samdi öll þessi verk ungur að árum
og framúrstefnulegt markmið hans
var að „frelsa hljóðið undan form-
inu“. Ein frægasta tónsmíð hans er
samin í minningu um fórnarlömb
kjarnorkuárásarinnar á Hiros-
hima, og hlaut hún tónlistarverð-
laun UNESCO árið 1961. Tónmálið
er afar áleitið, svo ekki sé meira
sagt. Byrjunin er ofsafengin, eins og
öskur ótal mannvera, en síðan deyr
tónlistin út í einhvers konar sírenu-
væl. Drunur og barsmíðar taka við,
en ópin eru þó aldrei langt undan.
Babýlónskur djöfull
Svona tónlist er auðvitað ekki eitt-
hvað sem maður hefur á fóninum
við kvöldmatinn. Hins vegar stend-
ur í Biblíunni að allt hafi sinn tíma
– og einhvers staðar verða vondir að
vera. Þegar The Exorcist var frum-
sýnd hélt einn gagnrýnandi fram
að loksins væri músík Pendereckis
komin þangað sem hún ætti heima.
Tónlistin heyrist í byrjun mynd-
arinnar, en þá er særingamaðurinn,
sem er leikinn af Max von Sydow,
við fornleifauppgröft í Írak. Þar
finnur hann styttu af babýlónska
djöf linum Pazuzu, sem er illur
fyrirboði, því hann hefur barist við
hann áður. Lágstemmd, annarleg,
óhugnanleg tónlistin fullkomnar
andrúmsloftið, undiraldan grípur
áhorfandann um leið.
Sneri baki við
eyðingarmættinum
Tónlist Pendereckis breyttist eftir
því sem hann eltist. Hann missti
þá áhugann á framúrstefnunni og
fannst eyðingarmátturinn í æsku-
verkum sínum niðurrífandi. Í stað-
inn fór hann að semja formfastari
tónlist, en útkoman var samt
ekkert síður mögnuð. Á Spotify
er upptaka með fiðluleikaranum
Anne-Sophie Mutter þar sem hún
leikur La Follia eftir hann, nokkur
tilbrigði við stef. Tónlistin byggist á
tiltölulega einföldum hendingum,
afstrakt vissulega, ómstríð og
dökk, en samt svo full af skálda-
vímu og innblæstri að maður verð-
ur alveg dáleiddur. Sannast enn og
aftur að tónlist þarf ekki alltaf að
vera „falleg“ en hún verður að vera
sönn. Penderecki lá auðheyrilega
mikið á hjarta og hans verður sárt
saknað.
Jónas Sen
Innritun nýrra nemenda fyrir
skólaárið 2020-2021 stendur nú yfir
Innritaðir eru:
- Nemendur í Forskóla I, fæddir 2014
- Nemendur í Forskóla II, fæddir 2013
- Nemendur í Fiðlu- og Sellóforskóla, 4-6 ára börn
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skólans
www.tonmenntaskoli.is
Skólastjóri
BAKARÍIÐ
FRÁ KLUKKAN 09:00 - 12:00
Eva Laufey og Svavar Örn
opna Bakaríið alla laugardagsmorgna.
2 5 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING