Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 1

Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 0 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 . M A Í 2 0 2 0 Njóttu hækkandi sólar á rúntinum. Uppáhaldsbíllinn þinn bíður! HEKLA · Skoðaðu úrvalið á www.hekla.is/vefverslun LÖ G R E G LUM ÁL Íslending urinn Sean Aloysius Marius Bradley, 63 ára fyrrverandi fiðluleikari hjá Sin­ fóníuhljómsveit Íslands til margra ára, hefur verið saknað í meira en eitt og hálft ár. Lögreglan á Suður­ landi lýsti eftir Sean 23. mars síðast­ liðinn bæði hérlendis og hjá Inter­ pol en ekkert hefur spurst til hans. Fjölskylda Seans er búsett í Bret­ landi en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru það vinir hans á Íslandi sem hvöttu fjölskylduna til að láta lýsa eftir honum. Hann hafði verið í samskiptum við vini sína hérlendis á samfélags­ miðlum og sagt þeim að hann hefði farið til Spánar með íslenskri vin­ konu sinni. Þá sem þekktu hann hérlendis fór hins vegar að gruna að einhver annar væri að eiga sam­ skipti við þá undir hans nafni. Oddur Árnason, yfirlögreglu­ þjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir lögregluna ekki geta staðfest að Sean hafi farið til Spánar. Hann átti bókað f lug í tiltekna vél til Spánar og f lugsætið var notað en lögreglan vill ekki staðfesta að það hafi verið hann sem notaði sætið. Þá hefur ekkert sést til hans á Spáni. Fréttablaðið hefur verið í sam­ skiptum við fjölmarga vini Seans en að þeirra sögn var hann mjög flug­ hræddur. Aðpurður hvort það teljist ekki skrýtið að flughræddur maður fari skyndilega með flugi úr landi, segir Oddur málið í heild sinni vera skrýtið. „Hann hafði verið í sambandi við einstaklinga hér heima og þetta virðist hafa verið mikil skyndiákvörðun að fara, ef hann hefur farið. Mér finnst málið bara allt skrýtið. Ekkert þetta eitthvað umfram annað,“ segir Oddur. – mhj / sjá síðu 6 Dularfullt hvarf fiðluleikara Sinfóníuhjómsveitar Íslands Lögreglan á Suðurlandi vinnur að rannsókn á hvarfi Seans Bradley, en ekkert hefur til hans spurst frá miðju árinu 2018. Sean er Íslendingur og lék í nærri tvo áratugi með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi og stjórnandi rannsóknarinnar, segir hvarfið sérkennilegt. Sean Bradley. COVID-19 Til laga fjögurra ráð herra þess efnis að ríkið sé til búið að eiga sam tal um mögu lega veitingu lána línu eða á byrgð á lánum til Icelandair var sam þykkt á ríkis­ stjórnar fundi í gær. Full trúum stjórn valda hefur verið haldið upp­ lýstum um stöðu fé lagsins undan­ farnar vikur meðan unnið er að fjár­ hags legri endur skipu lagningu þess og söfnun nýs hluta fjár. Að koma stjórn valda er háð því að full nægjandi árangur náist í fjár hags legri endur skipu lagningu félagsins. Stjórn Icelandair tilkynnti í gær um áform um að af la allt að 200 milljón Bandaríkjadala í nýju hlutafé, en það jafngildir tæplega 30 milljörðum króna. Hlutafjárút­ boð er fyrirhugað í næsta mánuði að fengnu samþykki hluthafafundar félagsins. – eþs Ríkis stjórnin til búin að ræða við Icelandair Það var vorlegt um að litast í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Kvöldsólin yljaði þar sólþyrstum borgarbúum í Hljómskálagarðinum, á Austurvelli og víðar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.