Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 2

Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 2
SAMFÉLAG „Við höfum nú þegar sett heimsmet og bara spurning hversu hátt við náum, hversu stórt metið verður,“ segir Gunnar Helgason, rithöfundur og landsliðsþjálfari í lestri, í samtali við Fréttablaðið. En í gær var síðasti dagur lestrarátaks­ ins Tími til að lesa, sem staðið hefur yfir allan aprílmánuð. Markmið átaksins var að hvetja börn og fólk á öllum aldri til að lesa þrátt fyrir skert skólahald og samkomubann vegna kórónaveirufaraldursins og setja um leið heimsmet í lestri. „Við erum svo heppin á þessu landi að vera með menntamála­ ráðherra sem hefur ástríðu fyrir auknum lestri barna og betri les­ skilningi. Það var sem sagt Lilja Alfreðsdóttir sem bað mig að koma í hugmyndavinnu um þetta verkefni því hana langaði að gera eitthvað stórt fyrir börn þessa lands þegar ljóst var hvernig aprílmánuður yrði í þessu kórónaástandi,“ segir Gunnar. Í kjölfar hugmyndar Lilju var átakinu hrint í framkvæmd og var þátttakan gríðarleg. „Stóra mark­ miðið var að börnum færi ekki aftur á meðan skólarnir voru lokaðir til hálfs eða fulls og til að hvetja þau til að taka þátt var ákveðið að setja heimsmet. Krakkar elska heimsmet og við gáfum þeim tækifæri til að vera með í að setja algerlega glænýtt heimsmet,“ segir Gunnar. Í heimsmetinu felst að íslenska þjóðin lesi á einum mánuði í f leiri mínútur en nokkru sinni hefur verið gert áður. Gunnar segir að samkvæmt upplýsingum frá Guinness sé um nýja tegund heimsmets að ræða. „Það hefur hvergi áður í heiminum verið reynt við þetta þannig að við höfum svo sannarlega sett nýtt heimsmet. Sem við stefnum auðvitað á að kynna vel úti um heim allan og slá svo á næsta ári,“ segir hann. Þegar Fréttablaðið fór í prentun höfðu þátttakendur í átakinu lesið í samtals 7.868.196 mínútur, það eru 14 ár, ellefu mánuðir, 15 dagar, sautján klukkustundir og 6 mínút­ ur. Hafnfirðingar áttu flestar lesnar mínútur og fast á hæla þeim komu íbúar í póstnúmeri 105. Þá höfðu íbúar í Reykhólahreppi vinninginn í lestri á hvern einstakling. Gunnar segir mikilvægt fyrir fólk á öllum aldri að lesa en sérstaklega sé mikilvægt að hvetja börn til lestrar. „Ef börn lesa mikið gengur þeim betur í skóla, vinnu, hjóna­ bandi og foreldrahlutverki. Það er einfaldlega búið að kanna þetta og sanna. Svo við tölum nú ekki um framtíð íslenskunnar. Viljum við halda henni? Þá verðum við að gera eitthvað í því og partur af því er að lesa meira.“ birnadrofn@frettabladid.is Stóra markmiðið var að börnum færi ekki aftur á meðan skól- arnir voru lokaðir til hálfs eða fulls. Gunnar Helgason, rithöfundur og landsliðsþjálfari í lestri Veður Norðaustan 5-10 í dag og él um norðanvert landið, en víða bjart- viðri sunnan til. Þykknar upp með slydduéljum eða skúrum suðaust- anlands síðdegis. Hiti 4 til 9 stig að deginum, en kringum frostmark norðan- og austan til. SJÁ SÍÐU 24 Lokað fyrir umferð í Gróttu Frá og með deginum í dag og til 15. júlí er umferð í friðlandi Gróttu bönnuð fólki vegna varptíma fugla. Eftir 15. júlí er gangandi fólki heimilt að fara eftir fjörum eða öðrum opnum gönguleiðum á svæðinu. Óheimilt er að fara með hunda um svæðið og kattaeigendur hvattir til að setja bjöllu á kettina sína. Einnig eru sjóíþróttir við Seltjörn bannaðar til 1. ágúst. Mikil umferð og ásókn fólks hefur verið á svæðinu nýlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Gunnar Helgason segir afar mikilvægt fyrir alla að lesa sem mest, sér í lagi fyrir börn. Lesturinn skili miklum ávinningi fyrir alla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Íslenskir lestrarhestar slógu heimsmet í lestri Íslenska þjóðin hefur slegið heimsmet í lestri eftir að hafa lesið í milljónir mínútna í apríl. Heimsmetið var unnið með lestrarátakinu Tími til að lesa sem sett var á til að hvetja til lestrar í skertu skólahaldi og samkomubanni. Sæktu Fréttablaðsappið frítt! BYRJAÐU DAGINN MEÐ FRÉTTABLAÐINU Lestu Fréttablað dagsins í snjalltækinu þínu, hvar og hvenær sem er! IÐNAÐUR Árni Sigurjónsson, yfir­ lögfræðingur Marel, var í gær kjör­ inn nýr formaður Samtaka iðnað­ arins. Tekur hann við af Guðrúnu Hafsteinsdóttur, markaðsstjóra Kjöríss. Árni var kjörinn með rúm­ lega 71 prósenti atkvæða og hafði betur gegn Guðlaugu Kristbjörgu Kristinsdóttur, stjórnarformanni Límtrés Vírnets og Securitas. Árni segir að hann taki við góðu búi og að stefna samtakanna, meðal annars í nýsköpunarmálum, inn­ viðauppbyggingu og málefnum byggingariðnaðarins, muni ekki breytast. „Það er áskorun að koma inn á þessum tíma. Verkefnin fram undan eru ærin og staðan er snúin, því skal ekki neitað. Margir af okkar félagsmönnum finna fyrir miklum samdrætti vegna þess ástands sem nú ríkir,“ segir Árni. „Við erum með ótrúlega góðan hóp starfsmanna og stjórnenda sem hafa einhent sér í að þoka þessum málum í rétta átt og vinna þétt með stjórnvöldum og öðrum samtökum í Húsi atvinnulífsins. Ég leyfi mér að vera bjartsýnn og vonandi fer land að rísa áður en langt um líður.“ Samhliða formannskosningu fór fram kosning til stjórnar samtak­ anna. Kosningu hlutu Arna Arnar­ dóttir, Egill Jónsson, Margrét Orms­ lev Ásgeirsdóttir, Valgerður Hrund Skúladóttir og Vignir Steinþór Hall­ dórsson. Fyrir í stjórninni eru Ágúst Þór Pétursson, Guðrún Halla Finns­ dóttir, Magnús Hilmar Helgason og Sigurður R. Ragnarsson. – ab Árni er nýr formaður SI Árni fékk 71 prósent atkvæða. A L Þ I N G I A lþi ng i st a r f a r t i l 25. júní samkvæmt ákvörðun for­ sætisnefndar fyrr í vikunni. Starfs­ áætlun þingsins var kippt úr sam­ bandi 19.  mars vegna COVID­19. Nýsamþykkt starfsáætlun fyrir maí og júní gerir ráð fyrir að við áður­ gildandi áætlun bætist tvær vikur. Samkvæmt áætluninni á að verja tólf dögum í starf fastanefnda, utan hefðbundinna fundartíma nefnda. Þingfundir verða á 22 dögum. Gert er einnig ráð fyrir sérstökum þingfundi fyrir árlega skýrslu utan­ ríkisráðherra. Samkvæmt starfs­ áætluninni verða eldhúsdagsum­ ræður 23. júní en þingheimur gerir jafnan upp starf liðins vetrar á eld­ húsdegi. – aá Þing fram á mitt sumar Starfs áætlun þingsins var kippt úr sambandi 19. mars vegna COVID-19. 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.