Fréttablaðið - 01.05.2020, Page 4
850
er fjöldi vinnustunda sem
Davíð Þór Björgvinsson
varði samkvæmt tíma-
skýrslu í gerðardómsstörfin.
LYFSALINN GLÆSIBÆ
Álfheimum 74 104 Reykjavík
Sími 517 5500
www.lyfsalinn.is
lyfsalinn@lyfsalinn.is
OPNUNARTÍMI
Mán.- fös. kl. 08:30-18:00
Laugardaga: Lokað
GLÆSIBÆ
Þú hringir í síma 517 5500
eða sendir póst á
lyfsalinn@lyfsalinn.is
Fáðu lyn send frítt heim
DÓMSTÓLAR Davíð Þór Björgvins
son landsréttardómari, sem sat
í gerðardómi í þremur málum
um sölu eignaumsýslufélagsins
ALMC á hugbúnaðarfyrirtækinu
LS Retail, viðraði hugmyndir við
deilendur í málunum um að hann
fengi greiddar allt að sextíu millj
ónir króna í þóknun fyrir störf sín
í dómnum. Þetta herma heimildir
Fréttablaðsins.
Þeim hugmyndum, sem voru
kynntar aðeins um tveimur vikum
áður en niðurstaða í málunum lá
fyrir, var hins vegar hafnað af máls
aðilum með harðorðu bréfi, að sögn
þeirra sem þekkja vel til málsins, en
þeir töldu tillögur gerðarmannsins
keyra fram úr hófi.
Eins og greint var frá í Frétta
blaðinu í síðustu viku fékk Davíð
Þór greiddar samanlagt tæpar þrjá
tíu milljónir króna fyrir störf sín í
gerðardómi í umræddum málum en
hann sinnti þeim að stórum hluta
samhliða embættisstörfum sínum
fyrir Landsrétt.
Ákvörðun í málunum þremur,
sem voru rekin fyrir gerðardómi í
einu lagi, var kveðin upp um miðj
an síðasta mánuð en Davíð Þór var
skipaður gerðarmaður til þess að
fara með málin af dómstjóra Hér
aðsdóms Reykjavíkur um mitt ár
2016. Þess má geta að um sex mán
uðir liðu frá því að munnlegum
málf lutningi í málunum lauk þar
til ákvörðunin lá fyrir.
Í kjölfar þess að tillögu Davíðs
Þórs um allt að sextíu milljóna
króna þóknun var hafnað lagði
hann til, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins, að þóknunin yrði
alls um fjörutíu milljónir króna
auk virðisaukaskatts. Þeirri tillögu
var jafnframt tekið fálega af máls
aðilum.
Hann lagði í kjölfarið fram tíma
skýrslu sem hann hafði tekið saman
vegna gerðardómsstarfanna undan
farin þrjú og hálft ár en þar sagðist
hann hafa varið samtals ríf lega
850 klukkustundum í málin. Til
lagan að tímagjaldi sem hann bar
þá undir málsaðila hljóðaði upp
á um 35 þúsund krónur án virðis
aukaskatts, eftir því sem heimildir
Fréttablaðsins herma, og var hún
samþykkt með semingi.
Auk áðurnefnds kostnaðar af
störfum gerðarmanns nam kostn
aður vegna tveggja matsgerða sem
unnar voru vegna málsins, undir
mats og yfirmats, samanlagt yfir
fjörutíu milljónum króna.
Samkvæmt reglum um aukastörf
dómara er dómurum að meginreglu
óheimilt að taka að sér önnur störf
samfara dómarastörfum. Frá því
getur þó nefnd um dómarastörf
veitt undanþágu, rétt eins og hún
gerði í tilfelli Davíðs Þórs, en í svari
nefndarinnar við fyrirspurn blaðs
ins í síðustu viku sagði að nefndin
hefði tekið upp þá vinnureglu við
gildistöku nýrra dómstólalaga nr.
50/2016 að heimila almennt nýjum
dómurum að ljúka þeim auka
störfum sem þeir hefðu haft á hendi
þegar þeir voru skipaðir.
Þeir lögmenn sem Fréttablaðið
ræddi við nefna að þó svo að það
hafi tíðkast í gegnum tíðina að dóm
arar tækju að sér ýmis aukastörf,
svo sem í gerðardómi, samhliða
hefðbundnum dómarastörfum, þá
þekkist það ekki að aukastörfin séu
það umfangsmikil og tímafrek að
endurgjald fyrir þau nemi á heild
ina litið tugum milljóna króna.
hordur@frettabladid.is
kristinningi@frettabladid.is
Höfnuðu hugmynd um allt að
sextíu milljóna króna þóknun
Deilendur í gerðarmáli um sölu ALMC á LS Retail höfnuðu hugmyndum gerðarmannsins Davíðs Þórs
Björgvinssonar landsréttardómara um allt að sextíu milljóna króna þóknun. Þrjátíu milljóna króna
þóknun var samþykkt með semingi. Kostnaður vegna matsgerða í málinu nam yfir fjörutíu milljónum.
F E R ÐAÞJ Ó N U S TA Heildar f jöldi
greiddra gistinátta var 55 pró
sentum færri í mars í ár en í fyrra.
Fækkunin kemur helst fram í gisti
nóttum sem bókaðar eru í Airbnb
eða álíka síðum, þar nemur hún 65
prósentum. Þá fækkaði gistinóttum
á hótelum um 54 prósent og á gisti
heimilum um 48 prósent. Þetta
kemur fram á vef Hagstofunnar.
Greiddar gistinætur í mars voru
um 322 þúsund en 711 þúsund
í fyrra. Flestir sem greiða fyrir
gistingu á landinu gista á hótelum
en þar voru greiddar gistinætur
175.400 í mars. Um 62 prósent voru
á höfuðborgarsvæðinu eða 108 þús
und sem er fækkum um 52 prósent.
Samdráttur í gistinóttum á hót
elum var mestur á Suðurnesjum,
62 prósent, en í öllum landshlutum
nema á Austurlandi fækkaði þeim
um meira en 50 prósent. Á Austur
landi fækkaði þeim um 29 prósent.
Á tólf mánaða tímabilinu frá apríl
2019 til mars 2020 fækkaði gisti
nóttum um þrjú prósent sé miðað
við sama tímabil ári áður. Heildar
fjöldi gistinátta á síðustu tólf mán
uðum var um 4.331.000. – bdj
Gistinóttum
fækkar mjög
Kostnaður af störfum Davíðs Þórs Björgvinssonar landsréttardómara í
gerðardómi nam um þrjátíu milljónum króna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 Vinnumálastofnun áætlar
að greiða út samtals tólf milljarða
króna vegna atvinnuleysistrygg
inga aprílmánaðar nú um mánaða
mót. Þetta kemur fram í svari Unnar
Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumála
stofnunar, við fyrirspurn Frétta
blaðsins.
Alls fá 18 þúsund einstaklingar
greiddar atvinnuleysistryggingar
samkvæmt almennum lögum á
næstu dögum, 30 prósent þeirra
eru sjálfstætt starfandi og 70 pró
sent eru launamenn. Af þeim tólf
milljörðum sem greiddir verða út
eru áætlaðir 7,7 milljarðar vegna
umsókna um minnkað starfshlut
fall eða vegna hlutabótaleiðarinnar
svokölluðu og 4,3 milljarðar vegna
almennra atvinnuleysistrygginga.
Í gær höfðu borist rúmlega 37
þúsund umsóknir um greiðslu
vegna minnkaðs starfshlutfalls og
segir Unnur ljóst að fækka muni í
þeim hópi á næstunni vegna þeirra
aðgerða sem stjórnvöld hafa gripið
til.
Meðal þess sem kynnt var í þriðja
aðgerðapakka stjórnvalda vegna
COVID19 síðastliðinn mánudag
var þátttaka ríkisins í greiðslu hluta
uppsagnarfrests fyrirtækja sem
misst hafa að lágmarki 75 prósent
af tekjum sínum vegna faraldursins.
Þá hefur 4.210 manns verið sagt
upp störfum í hópuppsögnum
nýlega, þar af um helmingur, eða
2.140 hjá Icelandair. Samanlagt hafa
51 fyrirtæki tilkynnt hópuppsagnir
til Vinnumálastofnunar.
Flest fyrirtækin sem tilkynnt
hafa um hópuppsagnir starfa í
ferðaþjónustu eða tengdum grein
um. En einnig fyrirtæki í öðrum
greinum, til dæmis Eimskip. – bdj
Greiða tólf milljarða í atvinnuleysisbætur
Unnur segir að fækka muni í hópi
þeirra sem eru í minnkuðu hlutfalli.
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra sagði óheppilegt
hve langan tíma hefði tekið að koma
veitingu brúarlána til fyrirtækja í
framkvæmd, í svari við fyrirspurn
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
formanns Miðflokksins.
Sex vikur eru liðnar síðan Alþingi
samþykkti frumvarp um brúarlán
og aðrar aðgerðir vegna heimsfarald
ursins og áhrifa hans á atvinnulífið.
Veiting lánanna er ekki ekki hafin
og laut fyrirspurn Sigmundar til
fjármálaráðherra að þessum töfum.
„Það er rétt sem háttvirtur þing
maður segir að það er nokkuð um
liðið síðan Alþingi afgreiddi lagaleg
an grundvöll þess úrræðis og það er
sömuleiðis talsvert síðan ég undir
ritaði samning við Seðlabankann
um framkvæmd þessa úrræðis. En
nú er sem sagt í lokafrágangi sam
komulag milli Seðlabankans og
fjármálafyrirtækjanna um þann
enda málsins og ég get svo sem sagt
fyrir mitt leyti að það er óheppilegt
að þetta hafi tekið þennan tíma en
þó ekki kannski orðið mikið tjón af
því,“ sagði fjármálaráðherra.
Samkomulag Seðlabankans við
viðskiptabankana lýtur til dæmis
að skilyrðum fyrir ríkisábyrgð,
undir hvaða kringumstæðum hún
geti fallið niður og hvernig ganga
eigi úr skugga um að skilyrði fyrir
lánunum og ríkisábyrgð séu upp
fyllt.
Ráðherra skipaði í gær þriggja
manna nefnd til að hafa eftirlit
með framkvæmd lánveitinga með
ríkisábyrgð til fyrirtækja. Nefndina
skipa Einar Páll Tamimi, formaður,
Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís
Óladóttir. – aá
Töf á afgreiðslu brúarlána óheppileg
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, telur ekki mikið tjón af töfinni.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
1 50 lík fundust í vörubíl í New York Útfararstjóri í Brooklyn
neyddist til að færa 50 lík í vörubíl
án kælingar vegna plássleysis.
Gangandi vegfarendur hringdu í
lögregluna vegna óþefs.
2 Finnur og Guðmundur láta af störfum hjá Högum
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
og Guðmundur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Bónuss, munu
láta af störfum hjá Högum.
3 Víðir hvetur samnings aðila SÍS og Eflingar til að semja
Víðir Reynis son hvatti samnings
aðila Eflingar og Sam band ís
lenskra sveitar fé laga til að leysa
deilu sína sem fyrst.
1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð