Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 01.05.2020, Síða 8
Fyrsta skrefið er auðvitað að verja afkomu fólks í þessum aðstæðum og síðan getum við séð hvar sóknarfærin eru. Við vitum ekki enn hvert raunverulegt atvinnuleysi er, en það er svakalegt. Drífa Snædal, forseti ASÍ Þetta þýðir líka að álagið á stéttar- félögin er búið að vera gríðarlega mikið. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR „Við sjáum að fólk um allan heim er að sækja í skjól verkalýðsfélaga um styrk og stuðning. Þannig að verkalýðsbaráttan hefur í rauninni aldrei verið mikilvægari en nú. En svo sjáum við líka stöðu einyrkja og þeirra sem eru í ótryggum ráðn- ingarsamböndum. Það er fólkið sem er að fara verst út úr þessu. Þörfin fyrir kjarasamninga og góð vinnu- skilyrði hefur þess vegna eiginlega aldrei verið sýnilegri en núna,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ. Vegna samkomubanns verður ekki hefðbundin 1. maí dagskrá og er það í fyrsta sinn síðan 1923 að launafólk á Íslandi getur ekki komið saman til að berjast fyrir kröfum sínum. Þess í stað verður haldin sér- stök skemmti- og baráttusamkoma í Hörpu sem verður sjónvarpað á RÚV klukkan 19.40 í kvöld. „Við ákváðum að það væri mikil- vægt að bjóða upp á einhvern létt- leika á þessum erfiðu tímum í bland við barátturæður og framtíðarsýn.“ Baráttudagur verkalýðsins fer nú fram í skugga sívaxandi atvinnu- leysis og fjölda hópuppsagna. „Þetta eru ein viðbjóðslegustu mánaðamót sem við höfum upp- lifað. Við eigum hins vegar svolítið erfitt á þessum tímapunkti með að meta hina raunverulegu stöðu. Við vitum ekki enn hvert raunverulegt atvinnuleysi er en það er svakalegt.“ Þar vísar Drífa meðal annars til þess að ekki liggi endanlega fyrir hversu margir sem misst hafi vinnuna á síðustu dögum hafi verið á hlutabótaleiðinni. Þá eigi eftir að koma í ljós hvaða fyrirtæki muni fara í gang með starfsemi sína nú í maí sem hafi ekki getað starfað vegna samkomubanns. Verið sé að greiða himinháar upphæðir úr ríkissjóði til að styðja við atvinnu- lífið. Það þurfi að vera alveg skýrt að í þeim tilvikum sem ríkið borgar hluta launa á uppsagnarfresti komi fólk aftur inn í fyrirtækin á sömu kjörum þegar staðan verður betri. „Þetta ástand má ekki verða til þess að lækka laun fólks til fram- búðar. Ef það verður ekki haldið rétt á spilunum gætum við verið að tala um einhverjar mestu launa- lækkanir sem um getur,“ segir Drífa. Þá bendir hún á að samkvæmt greiningum ASÍ sé helsta ógnin sem heimilin standi frammi fyrir tekjufall. Útgjöld séu ekki endilega að hækka eða aukast. „Það styður mjög við þá kröfu okkar að lengja tímann sem fólk getur verið á tekjutengdum bótum. En það þarf líka að hækka grunn- atvinnuleysisbæturnar.“ sighvatur@frettabladid.is Baráttan aldrei mikilvægari Hátíðahöld vegna baráttudags verkalýðsins verða með öðru sniði í ár en venjulega vegna samkomu­ banns. Forseti ASÍ segir verkalýðsbaráttuna aldrei mikilvægari en nú á tímum gríðarlegs atvinnuleysis. „Við getum ekki komið saman og sýnt í verki samtakamátt og samstöðu hreyfingarinnar að þessu sinni. Við verðum að nota aðrar leiðir til þess,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. „En þetta eru ógnvænlegir tímar. Við höfum í sjálfu sér aldrei upplifað aðra eins daga eins og þá allra síðustu, aldrei séð annað eins atvinnuleysi. Þetta þýðir líka að álagið á stéttarfélögin er búið að vera gríðarlega mikið.“ Ragnar segir að áskorunin sem verkalýðshreyfingin standi nú frammi fyrir sé án fordæma. „Hvern- ig tryggjum við afkomu og uppbygg- ingu samfélagsins á þeim gildum og forsendum sem við erum að setja sem verkalýðshreyfing? Það verður heljarinnar verkefni en ég er í sjálfu sér ekkert hræddur við það.“ Ástandið þýði einfaldlega að ráðast þurfi í heildarendurskoðun á grunnkerfum á borð við lífeyrissjóði og almannatryggingar. „Við þurfum að hugsa hvernig við ætlum að takast á við það að hér tapist mögulega þúsundir starfa sem munu ekki endilega koma til baka. Þá þurfum við að endurskoða hvernig þessi grunnframfærslukerfi vinna saman og eru byggð upp.“ Láglaunakona á lífeyri fái nú 56 prósent af launum sem hún hafi aldrei getað lifað á. Bankastjórinn fái hins vegar 56 prósent af ofurlaunum. „Þarna þurfum við að hugsa hvort við þurfum að endurskoða lífeyriskerfið frá grunni svo fólk geti lifað á grunnframfærslu.“ Auk þess að horfa til framtíðar þurfi að slökkva elda. Lykilverk efnið nú sé að verja heimilin. Þar vill Ragn- ar Þór sjá þak á vísi tölu eða hún verði fryst með ein hverjum hætti svo leiga og lán hækki ekki með verðbólgu. „Nú koma sérfræðingar fram og segja að það sé ekkert í pípunum að verðbólga fari af stað. Þess þá heldur ætti að vera minna mál að veita fólki þessa tryggingu.“ Þá segist hann hafa áhyggjur af stöðu lífskjarasamnings enda stjórn- völd enn ekki staðið við gefin loforð í tengslum við hlutdeildarlán og afnám verðtryggingar. Ragnar segir einnig að tryggja þurfi hlut almennings í þeim kostnaðarsömu úrræðum sem stjórnvöld séu að fara í, upp á 300 milljarða. „Þetta er reikningur sem skatt- greið endur munu þurfa að standa skil á. Mikið af þeim úrræðum sem við erum að berjast fyrir kosta ríkið sama og ekki neitt. Við þurfum að tryggja að fólkið verði ekki skilið eftir eins og eftir hrun. Það mun ekki gerast á okkar vakt og við erum tilbúin að beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir það.“ – sar Ástandið kalli á heildarendurskoðun á grunnkerfum „Þetta verður vissulega erfitt næstu mánuði en það eru líka tækifæri í stöðunni. Ég held við förum ekki aftur í sama samfélagið sem var. Þess vegna er yfirskrift dagsins „Byggjum réttlátt þjóðfélag“, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Hún segir að þótt það hafi verið tiltölulega mikill jöfnuður á Íslandi miðað við önnur lönd sé enn verk að vinna. „Fyrsta skref ið er auðvitað að verja af komu fólks í þessum aðstæðum og síðan getum við séð hvar sóknarfærin eru. Við teljum mjög mikilvægt að byggja upp fleiri undirstöðuatvinnugreinar en við erum með núna, þannig að hægt sé að stuðla að meira jafnvægi.“ Góðu fréttirnar séu þær að Ísland virðist vera að koma nokk uð vel út úr faraldrinum með till iti til heilsu- fars og vonandi verði ekki bakslag í því. „Á móti er nið ur sveiflan dýpri en við von uð umst til í upphafi og verður líklega lang vinnari. Áskoranirnar verða því stærri en maður var að vona,“ segir Sonja Ýr. Hún segir að helstu áhyggjurnar séu kannski af fólki sem falli milli skips og bryggju í úrræðum stjórn- valda. „Það er til dæmis þónokkur hópur sem hefur verið í sjálfskipaðri sóttkví og er þá tekjulaus á meðan. Sama gildir um foreldra sem hafa verið heima en ekki getað unnið vegna skerðingar á skólastarfi. Við höfum lagt mikla áherslu á að þessir hópar fái stuðning eins og aðrir.“ Sonja Ýr var kjörin formaður BSRB haustið 2018 en í fyrra var hún meðal ræðumanna á baráttufundi á Ingólfstorgi. Nú hefur ávarp hennar verið tekið upp og verður sýnt á net- inu en þar að auki mun hún flytja stutt ávarp á skemmti- og baráttu- fundinum í kvöld. „Við erum með átak á samfélags- miðlum þar sem fólk getur búið til kröfuspjöld. Þannig geta allir sett fram sín skilaboð um hvað þeir vilji sjá í nýju og réttlátu þjóðfélagi. Sam- kenndin út af aðstæðunum gefur manni von fyrir framtíðina. Það er svona breytt forgangsröðun og við erum að endurhugsa hlutina.“ – sar Förum ekki aftur í sama samfélagið Drífa Snædal segir fólk nú sækja styrk og stuðning til verkalýðsfélaga. Ávarp Sonju verður sýnt á netinu. 1. MAÍ Baráttudagur í skugga uppsagna Hátíðahöld vegna baráttudags verkalýðsins taka í ár mið af samkomubanni og hvorki skrúðgöngur né fjöldafundir munu fara fram. ASÍ, BHM. BSRB og KÍ standa hins vegar fyrir skemmti- og baráttusamkomu í Hörpu í kvöld sem verður send út í sjónvarpi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.