Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.05.2020, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 01.05.2020, Qupperneq 16
Nú keppast óvitrir framleið-endur/seljendur óbótaefna hver um annan þveran við að auglýsa og selja gagnslaus efni allt frá klóri til C-vítamíns sem varnir við kórónaveirunum. En ekki nóg með það: Á mánu- deginum 23. mars s.l. var langt við- tal í Morgunblaðinu við prófessor í augnlækningum, sem greinir frá því að hann og lyfjafræðiprófessor hafi sullað saman blöndu úr lýsi og óbundnum fitusýrum í 2% þéttni. Þetta samsull segir hann að eigi að setja snarlega á markað sem vörn gegn kórónaveirusmiti með því að skola munninn og kokið með þessu 2 - 4 sinnum á dag. Smit um nef og augu nefnir hann ekki. Þessu til stuðnings nefnir hann um 30 ára gamlar athuganir sem áttu að sýna fram á veiruhemjandi áhrif blöndu úr 0,5% fitusýrum í lýsi í tilraunaglösum. Auðvitað segja svona tilraunir ekkert um virkni blöndunnar í fólki. Engar athuganir hafa verið gerðar á áhrifum blönd- unnar á kórónaveirurnar og niður- stöður úr klínískum rannsóknum vantar alveg. Þess vegna er þetta bara ótínd snákaolía. Jafnvel þó þessi snákaolía hefði einhver veiruhemjandi áhrif gæti notkun hennar valdið fölsku öryggi þar sem hættan á smiti um nef og augu er eftir sem áður galopin. Einnig er ólíklegt að blandan haldist stund- inni lengur í munnholi og koki. Mér finnst það sorglegt að menn, sem kenna sig við vísindi og kenna lækna- og lyfjafræðinemum, skuli gera sig uppvísa að kukli á borð við þetta og ætla sér að notfæra sér það átakanlega ástand sem nú ríkir í þjóðfélaginu til að markaðssetja svona samsull til þess eins að græða á því. Prófessorar komnir í kuklið Reynir Eyjólfsson doktor í lyfja- fræði Sjaldan hefur ótti verið jafn útbreiddur um heimsbyggðina og undanfarnar vikur. Fólk ótt- ast að það sjálft eða ástvinir þess veikist og jafnvel deyi, við óttumst að við sjálf og aðrir getum verið smitberar, margir óttast atvinnu- leysi og fátækt og ekkert okkar veit hvernig samfélagið og heimurinn allur mun komast út úr þessum hremmingum. Þegar við erum ótta- slegin er okkur eiginlegt að leita öryggis í nánd annarrar manneskju en fjölmargir hafa verið sviptir þeirri hughreystingu því hún gæti reynst hættuleg. Mismunandi farrými Í þessari sérkennilegu óvissuferð má segja að við séum öll á sama báti, vegna þess að veiran fer ekki í manngreinarálit, en þegar kemur að aðstæðum til að takast á við hana erum við óneitanlega á ólíkum far- rýmum. Ekki er t.d. hægt að líkja hlutskipti heilbrigðisstarfsfólks við þá sem eyða deginum í hámhorf á Netflix. Þá njóta sumir þess að verja auknum tíma með fjölskyldunni í samgöngubanni og sóttkví en öðrum stafar hætta af sínum nán- ustu. Hinu verður ekki neitað að í samanburði við önnur lönd erum við Íslendingar á fyrsta farrými með ábyrgt fólk í brúnni sem tekur mark á vísindum og segir okkur satt. Þegar alvarlegir erfiðleikar dynja yfir er okkur tamt að tala um sam- takamátt þjóðarinnar og það er að mörgu leyti rétt. Í bráðafasa ham- fara höfum við margsinnis fundið og sýnt samkennd. Þegar mesta hættan er liðin hjá, daglegt líf tekur við og við horfum fram á breyttan veruleika mun hins vegar reyna á okkur á annan hátt. Við verðum öll orðin lúin og óþolinmóð, ferðafrelsi verður áfram skert og við vitum ekki hversu lengi við þurfum að sætta okkur við alls kyns hömlur. Sumir munu taka upp þráðinn þar sem frá var horfið en annarra bíða fyrst og fremst áhyggjur vegna atvinnumissis og tekjuleysis. Þegar fótunum er fyrirvaralaust kippt undan stórum hópum fólks þarf ekki að undra sterk viðbrögð. Til að bæta gráu ofan á svart getur áfall af þessum toga virkað eins og olía á eld gamalla áfalla sem tengjast því að vera vanmáttugur eða beittur órétti. Reiðin tranar sér fram Viðbrögð við svo erfiðum tilfinn- ing um eru af ýmsum toga en mis- jafn l ega gagnleg. Reiðin er dæmi um bjargráð sem oft er gripið til því hún hefur lag á að ýta erfiðari til- finningum til hliðar, eins og dapur- leika og vanmáttartilf inningu. Kona sem missti vinnuna orðaði þetta ágætlega í viðtali við Morgun- blað ið þegar hún sagði: „Ég held ég kjósi að vera frekar reið heldur en áhyggju full. Það gefur manni þó drif kraft.” Síðast þegar við urðum fyrir alvarlegu samfélagslegu áfalli varð reiðin áberandi en henni var að einhverju leyti beint í farveg með því að berja potta, grýta eggjum í Al þingis húsið og ákæra bankamenn. Að þessu sinni er sökudólgurinn ósýn ileg veira sem mun aldrei svara til saka eða gangast við ábyrgð sinni. Hvað gerist þegar reiðin hefur ekkert viðfang? Í stuttu máli búum við það til. Marg ir beina reiðinni að sér sjálfum; með niðurrifi, vanrækslu eigin þarfa eða hegðun sem veldur þeim van líð- an. Aðrir leita að sökudólgum og þá fjölg ar besservisserum. Kveikju- þráð ur f lestra verður styttri og það bitnar á fjölskyldu og vinum, allt frá hversdagslegum pirringi yf ir í alvarlegt of beldi. Við efnum til illinda út af stóru sem smáu og grípum hvert tækifæri til að hneyksl - ast, skammast, hnýta í og böl sótast. Síðast en ekki síst búum við til hópa af „okkur” og „hinum”, gjarn - an undir forystu þeirra sem sjá sér hag í sundrungu. „Við” höt umst út í „hina” sem geta verið sér fræð ingar, út lend ingar, opinberir starfs menn, lista menn, öryrkjar, atvinnu rek end- ur, stjórnmálamenn o.s.frv. Óbeisl- uð reiði veitir stundarfró en leysir ekki neitt. Þvert á móti eykur hún á van líðan og getur skapað hættulegt ást and á heimilum jafnt sem í sam- fél aginu. Hvers konar fyrirmyndir eru kjörnir fulltrúar? Hvernig er hægt að sjá við reiðinni og hafa á henni taumhald? Ég vísa til allra góðra ráða varðandi streitu- stjórnun, svefn, næringu, hreyfingu, slökun, hugleiðslu o.fl. Til viðbótar er mikilvægt að hver og einn líti í eigin barm og eigi samtöl við fólk sem kann að hlusta og horfa á bak við reiðina, hvort sem það eru vinir, Rauði krossinn, Geðhjálp, starfsfólk heilsugæslunnar eða annað fagfólk. Ég vil sérstaklega hvetja fólk sem kemur fram á opinberum vettvangi til að huga að eigin reiði og reyna að sjá við henni. Þar gegna kjörnir fulltrúar þjóðarinnar lykilhlutverki. Þeirra vandasama verk er að leiða okkur í gegnum hremmingarnar og gæta ólíkra hagsmuna en í þeirri vinnu skiptir gríðarlegu máli fyrir geðheilsu okkar sem fylgjumst með að við upplifum að reynt sé að vinna saman af skynsemi, sanngirni og gagnsæi. Fyrir viðkvæma ein- stakl inga jafnast það á við að búa í sundraðri fjölskyldu að horfa upp á framgöngu fulltrúa okkar á Alþingi og í borgarstjórn eins og hún var í kjölfar hrunsins. Vissulega eru stjórn málamenn undir miklu álagi en þeir mega ekki leyfa sér að nota ástandið sem farveg fyrir eigin reiði eða persónulegan metnað. Hversu ósammála sem þeir kunna að vera þurfa þeir að vanda sig í samskiptum og spara gífuryrðin. Nú sem aldrei fyrr þörfnumst við fyrirmynda sem sýna yfirvegun, heiðarleika og auðmýkt eins og fólkið í Skógarhlíðinni gerir alla daga, hvað sem á dynur.  Reiðin á tímum kórónaveirunnar Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir Fyrir viðkvæma einstakl- inga jafnast það á við að búa í sundraðri fjölskyldu að horfa upp á framgöngu fulltrúa okkar á Alþingi og í borgarstjórn eins og hún var í kjölfar hrunsins. Nú á dögum veirunnar er meira um göngu- og hjóla-ferð ir um nágrennið, en um ferð bíla hefur að sama skapi minnk að. Því vekur það sérstaka athygli að heyra hávært skrölt frá stórum hluta hinna fáu bíla sem eru á ferðinni – þeir eru enn á nagla dekkjum í blíðunni! Og í sum- ar þarf, svo sem endranær, að fara í millj ónatuga endurbætur á götum bæði í Reykjavík og Akureyri án þess að þeir sem valda skaðanum þurfi að borga krónu. Í Noregi hefur um árabil verið sett gjald á nagladekk til að bæta tjón af völdum nagla og minnka notkun þeirra. Þeir sem kjósa að aka um á nagladekkjum geta það án sérstaks gjald, en ef ekið er um stærri bæi eða borgir þarf að greiða. Í allri Mið- Evrópu eru nagladekk bönnuð vegna þess að þau eru talin valda meiri skaða en gagni. Þar er þó oft ísing á morgnana á sléttlendi og svo snjóar stundum mikið á fjallvegum. Sums staðar er það skylda að hafa keðjur meðferðis til fjalla. Ef ferðamaður vill leigja sér bíl í Austurríki til að aka á skíðasvæði fengi hann aldrei bílaleigubíl á nagladekkjum, það er einfaldlega ekki í boði. Nú myndi einhver spyrja hvað mið bæjar rotta úr Reykjavík sé að belgja sig, en þá er þess að geta að vinnu minnar vegna hef ég í gegnum árin farið margar ferð ir um landið að vetrarlagi á ónegld- um dekkjum og prófað nokkrar tegundir allt frá loftbólu-, harð- korna-, harð skelja dekkjum yfir í dekk með iðn að ar demöntum. Þau síðar nefndu slógu reyndar allt út, betri hemlun á hreinum klaka en með nagladekkjum. Jafnt í þéttbýli sem dreifbýli valda vatnsfylltar rásir af völdum naglanna einnig hættu. Alvarlegasta af leiðing óhóf legrar nagladekkjanotkunar er hins veg ar skerðing loftgæða. Árvisst hefur það gerst bæði á Akureyri og í Reykjavík að loftgæði fara langt yfir hættu- mörk. Er það ásættanlegt að loka þurfi leikskólabörn í Reykjavík og Akureyri inni á lognkyrrum dögum svo ekki sé minnst á fólk með vandamál tengd öndunarfæri? Naglalaus vetrardekk eru orðin það góð að þau duga í f lestum tilfellum. Svo er hægt að fá snjósokka eða léttar keðjur sem auðvelt er að setja á. Naglalaus vetrardekk má einnig nota allt árið sem getur verið kostur, t.d. við útleigu bíla til ferðamanna í ævintýrahug. Aðalatriðið er þó ávallt að haga akstri eftir aðstæðum, ekki síst að stilla ökuhraða í hóf, og þá má jafnvel spyrja hvort nagla dekk veiti í sumum tilvikum falskt öryggi. Maður sem býr uppi á brekkunni á Akureyri og hefur aldrei notað nagladekk, líkti þessu við að ganga dag lega í gúmmístígvélum ef skyldi rigna þann daginn. Við þetta má því bæta að eiginlega er það stílbrot að sjá smábíla í Reykjavík, ætlaða til innanbæjaraksturs, á svona bún aði. Er ekki löngu tímabært að endur skoða þetta mál með það fyrir augum að slá á notkun nagla í þéttbýli? Nagladekkjaóhóf Í baráttunni við COVID-19 hefur enginn skortur verið á hræðileg-um hugmyndum. Þar má nefna áætlanir Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, til að þvinga fanga til að framleiða sótt hreinsi spritt launa- laust. Lykla borðs kommúnistar þarlend is sögðu þetta lausnina sem markaðs hag kerf ið byði upp á. Menn þurfa hins vegar að vera djúpt sokknir í pólitískum kreddum til þess að halda að ríkisvald sem þvingar fólk í nauðungarvinnu fyrir skipu lagða fram leiðslu endurspegli markaðs hagkerfi. Verðfrysting á spritti og andlits- grímum hefur einnig borið á góma, jafnvel að ríkisstjórnir stilli verð niður í brotabrot af framleiðslukostn aði. Í fljótu bragði kann það að hljóma vel en það liggur í augum uppi að ef verði á vöru er haldið niðri með valdi hverfur hvati einstakra fyrir tækja til að breyta háttum og hefja framleiðslu á slíkum vörum. Með lágmarksverð og þ.a.l. lágmarksframleiðslu hvetja stjórn völd þá sem selja vörurnar til þess að sitja á þeim og framleiða ekkert og skapa þar með skortinn sem þau vildu forðast í upphafi. Vísast er að leyfa framleiðendum og kaupendum að ákveða verð og stilla framleiðslu í takt við það. Slíkt veitir samkeppnishæfustu aðil unum tækifæri til að framleiða það magn sem heilbrigðisstarfsfólk og aðrir þurfa til þess að takast á við faraldurinn. Nú þegar hafa verkstjórar í bavarískum bílaiðnaði og bandarískum málningar verk- smiðjum séð hag sinn í framleiðslu á öndunarvélum og spritti, án afskipta þarlendra yfirvalda. Ríkið þarf ekki að skikka máln- ing ar framleiðendur og bíla verk- smiðjur (eða þvinga fanga) til að breyta framleiðslulínum og búa til lífs nauðsynlegan hlífð ar búnað eins og grímur og spritt. Ríkið þarf heldur ekki að skipu leggja vöru dreif ingu og heimsendingu til tug þús unda manna á svipstundu. Við njótum öll góðs af því að fyrir nokkrum árum síðan sáu áhættu sæknir frumkvöðlar fyrir sér framtíð þar sem hver sem er gæti pantað hvað sem er (og sér í lagi mat) á Inter netinu og fengið það sent heim að dyrum. Allir sem hafa unnið með matvöru þekkja að það er hægara sagt en gert að koma henni frá býli til bæjar í góðu lagi og hvað þá lokametrana að matar- borð inu. Allir sem hafa unnið við vef for ritun þekkja líka að það tek ur marga forritara mörg ár með marg- ar milljónir að þróa hugbúnað sem uppfyllir kröfur almennings. Við still um gæðakröfurnar okkar við staf rænar vörur frá Facebook, Apple og Amazon með sína tugi þúsunda hug bún aðarverkfræðinga og hönn- uði. Lítill sproti þarf að keppa við það til að halda athyglinni okkar og viðskiptum. Það er þeirri vinnu að þakka að við getum núna tekist á við faraldurinn betur en ella. Ríkisstjórnir um allan heim þurftu að skipuleggja ýmislegt við upphaf árs til þess að búa sig und ir heimsfaraldurinn. Margar hefðu líka mátt huga að því betur á árunum í aðdraganda veirunnar, eins og að ganga úr skugga um nægar birgðir fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Blessunarlega hefur þó framtak fyrirtækja og einstaklinga dregið úr áhyggjum um matvælaöryggi og framleiðslu á lífsnauðsynlegum birgðum. Því hugviti og þeirri forsjálni megum við vera þakklát. Það sem ríkið þarf ekki að gera Kristófer Alex Guðmundsson Magnús Skúlason arkitekt Blessunarlega hefur þó framtak fyrirtækja og ein- staklinga dregið úr áhyggj- um um matvælaöryggi og framleiðslu á lífsnauðsyn- legum birgðum. Því hugviti og þeirri forsjálni megum við vera þakklát. 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.