Fréttablaðið - 01.05.2020, Qupperneq 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Sjúkraliðafélag Íslands hefur verið til í 54 ár og varð stéttarfélag árið 1991. Félagið
gætir að hagsmunum sjúkraliða í
hvívetna. Það hefur nýlokið við að
ganga frá kjarasamningum sem
marka tímamót í starfsumhverfi
sjúkraliða, en vinnutímastytting
fyrir sjúkraliða er mikilvæg leið
til að tryggja framtíð heilbrigðis
kerfisins. Það er þó enn mikið starf
fyrir höndum til að tryggja stétt
sjúkraliða sýnileika, endurnýjun
og viðurkenningu á sérþekkingu
sinni.
„Við erum fimm á skrifstofu
félagsins og við sinnum kjara
samningum og réttindamálum
sjúkraliða, gefum út tímarit, sjáum
um umsýslu menntasjóða og
höldum utan um orlofskosti,“ segir
Sandra B. Franks, sem er á öðru ári
sínu sem formaður félagsins. „Nú
erum við búin að ljúka nær öllum
samningum og þar náðum við
nokkrum árangri.“
Tímamótasamningar
„Kjarasamningarnir í ár marka
ákveðin tímamót varðandi vinnu
tíma sjúkraliða og bæta starfs
umhverfi þeirra verulega,“ segir
Sandra. „Um 90% allra sjúkraliða
eru í vaktavinnu, sem er ákveðinn
álagsþáttur, og vegna þess hvað
starfið reynir mikið á hefur fólk
ekki ráðið við að vera í fullu starfi,
heldur er það yfirleitt í 7580%
starfshlutfalli. Sjúkraliðar líta svo
á að 80% vinnuframlag á þessum
vöktum jafngildi 100% starfi og
þetta hefur verið helsta baráttu
mál stéttarinnar í mjög langan
tíma. Þetta var okkar meginkrafa
í kjarasamningum og með mikilli
samvinnu annarra stéttarfélaga
náðist hún í gegn. Þetta gerir það
að verkum að starfsumhverfi
sjúkraliða verður betra og segja má
að þetta sé ákveðinn áfangasigur
sem komi til með að skila miklu í
framtíðinni.
Launahækkun er í samræmi við
Lífskjarasamninginn og munu
mánaðarlaun hækka að meðal
tali um 90100 þúsund krónur
á samningstímanum,“ útskýrir
Sandra. „Þá kom inn í samningana
heimildarákvæði um viðbótar
laun vegna álags, sem er hægt að
grípa til þegar sjúkraliðar eru
undir mikilli pressu, eins og til
dæmis núna á tímum COVID19.
Þetta veitir heimild til að umbuna
sjúkraliðum fyrir að fara í gegnum
tímabundna álagspunkta.
Við gerðum bókun um við
bótarmenntun fyrir sjúkraliða,
sem er gríðarlega mikilvægt fyrir
þessa stétt, sem hefur metnað til
að bæta við sig þekkingu. Félag
ið hefur lengi barist fyrir þessu,“
segir Sandra. „Vonir standa til að
það verði hægt að hrinda þessari
námsleið í framkvæmd á háskóla
stigi og bjóða diplómanám fyrir
sjúkraliða svo þeir geti sérhæft sig
enn frekar.
Þetta er meginkjarninn í samn
ingunum og við teljum þá stéttinni
til framdráttar,“ útskýrir Sandra.
„Hins vegar er það aldrei svo að
allar kröfur náist í gegn. Ég lít svo á
að við náðum ekki lengra að þessu
sinni. En svo eru það lífeyrismálin
sem á sínum tíma voru tekin af
fólki í almannaþjónustu. Það á
eftir að bæta okkur þá skerðingu.“
Ósýnileg en mikilvæg stétt
„Sjúkraliðar gegna lykilstörfum í
heilbrigðiskerfinu,“ segir Sandra.
„Oft og tíðum áttar fólk sig ekki
á því hve mikilvægt faglegt starf
sjúkraliðar vinna öllu jöfnu á
sjúkrahúsum, heilbrigðisstofn
unum, heilsugæslum og í heima
hjúkrun, en fjölbreytileikinn er
mjög mikill. Sjúkraliðar hafa lengi
verið ósýnilega stéttin, en þeir
sinna þeim sem þurfa nærhjúkrun.
Það eru sjúkraliðar sem veita
sjúklingum viðeigandi aðstoð
við allar athafnir daglegs lífs.
Þeir sjá til þess að sjúklingurinn
nærist og fylgjast með útskilnaði,
hvíld, hreyfingu og meta ástand
hjá viðkomandi. Þeir aðstoða við
almennt hreinlæti, böðun, munn
hirðu og fylgjast með andlegri
og líkamlegri líðan. Sjúkraliðar
hjálpa þannig sjúklingum með
allar grunnþarfir sem þeir ráða
ekki við sjálfir, svo þeir eru í raun
augu og eyru sjúklinganna sem
þeir sinna.
Án sjúkraliða gæti heilbrigðis
kerfið ekki virkað,“ segir Sandra.
„Sjúkraliðar eru jafnan í mikilli
samvinnu og samskiptum við
hjúkrunarfræðinga og í raun er
hjúkrunarþjónusta tengd þessum
tveimur stéttum órjúfanlegum
böndum. Sjúkraliðar eru því alltaf
lykilhlekkur í teymi sem tryggir
öryggi og gæði hjúkrunar.
Ásamt því að sinna fólki við
allar athafnir daglegs lífs miðla
þeir þekkingu með því að gefa ráð
og leggja mat á heilsu og ástand
sjúklinga frá degi til dags. Við
metum þróunina og í samstarfi
við hjúkrunarfræðinga metum
við hvort gera þurfi breytingar á
hjúkrunaráætlun,“ segir Sandra.
„Þessi vinna er oft vanmetin og
margir átta sig ekki á mikilvægi
þessarar grundvallarþjónustu og
halda jafnvel að hjúkrunarfræð
ingar sinni verkefnum sjúkraliða.
Þess vegna þarf að árétta mikil
vægi okkar, bæði fyrir almenning
og ekki síður innan heilbrigðis
kerfisins.“
Verða að fá viðurkenningu
„Sjúkraliðar búa yfir mikilli
þekkingu eftir nám sitt. Námið
hefur þróast mikið frá því það var
fyrst sett á laggirnar og er nú mjög
hagnýtt. Fyrir vikið eru sjúkra
liðar mjög færir í ýmsum flóknum
hjúkrunarverkefnum og geta
sinnt mjög krefjandi hjúkrun,“
segir Sandra. „Sjúkraliðar búa líka
yfir yfirgripsmikilli þekkingu á
líkamsstarfsemi, en sumir innan
heilbrigðiskerfisins gera sér ekki
grein fyrir því hversu gríðar
lega þekkingu sjúkraliðar fá úr
náminu, því það hefur breyst svo
mikið.
Þegar nánustu samstarfsfélagar
gera sér ekki grein fyrir faglegri
hæfni sjúkraliða er hætta á að þeir
séu vanmetnir og þeim sé ekki
treyst,“ segir Sandra. „Það veldur
auknu álagi hjá þeim fagstéttum
sem vinna saman og getur leitt
til kulnunar. Því er mikilvægt að
almenn þekking á færni sjúkraliða
sé til staðar innan heilbrigðis
kerfisins og þeir séu metnir að
verðleikum og njóti viðurkenn
ingar.“
Góður tími til að vera með
„Það eru um 2.100 sjúkraliðar
starfandi á Íslandi um þessar
mundir og meðalaldur stéttarinn
ar er hár, 47 ár,“ segir Sandra. „Það
er skortur á þessu vinnuafli innan
kerfisins og því er mjög mikilvægt
að ráðast í markvissar aðgerðir til
að fjölga í stéttinni, hvort sem það
er með sértækum aðgerðum eða í
samvinnu við skóla og heilbrigðis
stofnanir.
Það eru um 4.400 manns sem
hafa lokið prófi og hafa gild leyfis
bréf sem sjúkraliðar, svo það er
um helmings brottfall,“ útskýrir
Sandra. „Við verðum að reyna að
halda betur utan um okkar fólk.
Þó að eitthvert brottfall sé eðli
legt er þetta of mikið. Ein leið til
þess er að bjóða sjúkraliðum upp
á viðbótarnám, en með því að
bjóða upp á slíka námsleið er hægt
að auka sérhæfingu sjúkraliða,
sem styrkir stöðu þeirra og eykur
líkur á að þeir haldist í stéttinni.
Þá fellur sú námsleið að áherslum
stjórnvalda, þar sem til stendur
að bjóða upp á námsleiðir sem
draga úr færnibili á vinnumarkaði
og mæta þörfum atvinnulífsins
fyrir menntað starfsfólk í undir
mönnuðum starfsgreinum, eins og
til dæmis með fagháskólanámi í
heilbrigðisgreinum.
Starf sjúkraliðans hefur ekki
þótt aðlaðandi, meðal annars
vegna vinnutímans, en núna erum
við að fá breytingu á honum og
almennt betra starfsumhverfi,
svo það hefur sjaldan verið betri
tími til að slást í hóp sjúkraliða,“
útskýrir Sandra. „Ég er bjartsýn
að eðlisfari og ég leyfi mér því að
segja að það séu bjartari tímar
fram undan hjá okkar stétt.“
Sandra segir að það hafi sjaldan verið betri tími til að slást í hóp sjúkraliða en nú, en nýju kjarasamningarnir koma til með að breyta vinnutímanum og
tryggja almennt betra starfsumhverfi til framtíðar. Hún telur að það séu bjartari tímar fram undan hjá stéttinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sjúkraliðar búa yfir mikilli þekkingu og eru mjög færir í ýmsum hjúkrunarverkefnum. Þeir búa líka yfir yfirgrips-
mikilli þekkingu á líkamsstarfsemi. Án þeirra gæti heilbrigðiskerfið ekki virkað.
Oft og tíðum áttar
fólk sig ekki á því
hve mikilvægt, faglegt
starf sjúkraliðar vinna
öllu jöfnu á sjúkra-
húsum, heilbrigðisstofn-
unum, heilsugæslum og í
heimahjúkrun.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . M A Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R