Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 55
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, Guðmundur Kolbeinn Vikar Finnbogason Heiðarbrún 7, Hveragerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 17. apríl. Útför fer fram í kyrrþey föstudaginn 8. maí. Streymt verður frá athöfninni. Upplýsingar veita aðstandendur. Guðný Elín Snorradóttir Finnbogi Vikar Guðmundsson Kolbrún Ósk Guðmundsdóttir Bryndís Malín Sigurðardóttir Árni Vikar Sigurðsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristjana Esther Jónsdóttir Sóltúni 2, lést að morgni miðvikudagsins 29. apríl. Útförin mun fara fram í kyrrþey. Einlægar þakkir til starfsfólks Sóltúns fyrir góða umönnun. Binna Hlöðversdóttir Torfi Haraldsson Erna Hlöðversdóttir Niels Chr. Nielsen Róbert Hlöðversson Ingibjörg Garðarsdóttir Valþór Hlöðversson Guðrún Gunnarsdóttir Jódís Hlöðversdóttir Gunnar Gunnarsson Bryndís Hlöðversdóttir Stefán Kalmansson Jón Hrafn Hlöðversson Elsa D. Gísladóttir Orri Vignir Hlöðversson Helga Dagný Árnadóttir Hlöðver Hlöðversson Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, Klara Jóhanna Ottósdóttir lést í faðmi fjölskyldunnar á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 28. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey sökum aðstæðna. Ólafur Þór Ottósson Helga Björg Sigurðardóttir Aðalheiður Björk Ottósdóttir Ása Hrund Ottósdóttir Sigurþór Ragnarsson Katrín Alexandra, Ottó Gauti, Birgitta Rún og Júlía Gurrý Elsku mamma mín og amma okkar, Sigurlaug Gísladóttir frá Þórisdal í Lóni, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 25. apríl sl. Útför fer fram í kyrrþey frá Neskirkju við Hagatorg þann 14. maí nk. Sigrún Halla Gísladóttir Sigurlaug Björg Stefánsdóttir Sverrir Örn Arnarson Sólveig Arnardóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorvaldur Jónsson skipamiðlari, lést á líknardeild Landspítalans, miðvikudaginn 29. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Áslaug Þorvaldsdóttir Guðrún Marta Þorvaldsdóttir Ómar Benediktsson Elsa Sigríður Þorvaldsdóttir Sveinbjörn Sigurðsson Anna Katrín Þorvaldsdóttir Þorvaldur Þór Þorvaldsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elísabet Ballington Vestursíðu 9, Akureyri, lést á Öldrunarheimilinu Lögmannshlíð 19. apríl. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu mun útförin fara fram í kyrrþey. Starfsfólki Bandagerðis, Lögmannshlíð, eru færðar hjartans þakkir. Margrét Þórisdóttir Olgeir Haraldsson Sigurlína Þórisdóttir Byron Jonathan Byron Þorgerður Þórisdóttir Þorvaldur Þórisson Líney Skarphéðinsdóttir Þórir Börkur Þórisson Erna Kristín Sigmundsdóttir Vaka Þórisdóttir Hörður Harðarson og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jónína Bryndís Jónsdóttir lést á dvalarheimilinu Höfða þriðjudaginn 28. apríl. Jarðsungið verður frá Akraneskirkju fimmtudaginn 7. maí kl. 13.00. Vegna sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu og fjöldatakmarkana verður streymt úr kirkjunni, sjá vefslóð: www.akraneskirkja.is Sérstakar þakkir fær starfsfólk Höfða fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalarheimilið Höfða. Guðjón Smári Agnarsson Guðfinna Björk Agnarsdóttir Sigurður Sævar Sigurðsson Ólöf Agnarsdóttir Sigurjón Skúlason Björg Agnarsdóttir Þór Arnar Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir minn og frændi okkar, Gísli Þór Þorgeirsson frá Patreksfirði, lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, þann 24. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 6. maí klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd athöfnina, en henni verður streymt úr kirkjunni á slóðinni akraneskirkja.is. Aðstandendur vilja þakka starfsfólkinu á Höfða fyrir kærleiksríka umönnun. Dagný Björk Þorgeirsdóttir Jósef Gunnar Sigþórsson Þórey Sigþórsdóttir Sólrún Guðjónsdóttir Svava Hrund Guðjónsdóttir Mjöll Guðjónsdóttir Guðmundur Ingþór Guðjónsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Snorri H Ó Aðalsteinsson Cheney WA USA, lést mánudaginn 6. apríl síðastliðinn. Sigrún S Bender Aðalsteinsson Ásgeir Aðalsteinsson Linda J Aðalsteinsson Agnar S Aðalsteinsson Cindy M Aðalsteinsson Axel Aðalsteinsson Snorri H Aðalsteinsson barnabörn, barnabarnabörn og systkini. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústa Ragnhildur Benediktsdóttir var jarðsungin frá Neskirkju 24. apríl og jarðsett á Ísafirði sama dag. Við þökkum allar samúðarkveðjurnar og þá væntumþykju sem okkur hefur verið sýnd. Sérstakar þakkir til sr. Skúla Ólafssonar og starfsfólks Neskirkju, starfsfólks Útfararstofu kirkjugarðanna og sr. Magnúsar Erlingssonar og Elvars Ingasonar fyrir ómetanlega aðstoð á erfiðum tímum. Minningarathöfn mun fara fram í Ísafjarðarkirkju þegar aðstæður leyfa. Bjarni Líndal Gestsson Kristján Þór Bjarnason Auður Bjarnadóttir Ingibjartur Ingason Jóna Símonía Bjarnadóttir Þorsteinn Traustason Guðný Kristín Bjarnadóttir Jónas Hallur Finnbogason barnabörn og langömmubörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýjar kveðjur vegna andláts ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Þorgerðar Kolbeinsdóttur frá Stóra-Ási. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Vitatorgs Hrafnistu í Reykjavík fyrir alúð og umhyggju síðustu ára. Guðrún Helga Andrésdóttir Gunnar Emilsson Heiðveig Andrésdóttir Pétur H. Guðmundsson Kristján Andrésson Rósa Marinósdóttir Kolbeinn Andrésson Snjólaug Arnardóttir Hallveig Andrésdóttir Einar Sigurmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Jónas Jónasson frá Hriflu lét þennan dag árið 1942 taka niður háðungar- sýningu á verkum íslenskra lista- manna, sem hann hafði sjálfur sett upp til að sýna hversu áttavilltir þeir væru og hættulegir íslenskri menn- ingu sannra Íslendinga. Þetta voru myndir „klessumálara“ eins og hann kallaði þá Gunnlaug Scheving, Jóhann Briem, Jón Engilberts, Jón Stefánsson og Þorvald Skúlason. Hann ritaði grein í Tímann þar sem hann úthúðaði list þessara myndgerðarmanna, eins og hann nefndi þá líka og sagði þar meðal annars. „Hér á að gera byltingu. Það á að troða undir fótum þá heilbrigðu og snjöllu listþróun sem hér hefur orðið frá aldamótum og þar til hug- sjónir klessugerðarinnar tóku að sýkja álfuna…“ Í fyrstu setti Jónas sýninguna upp í Alþingishúsinu en flutti hana svo seint í apríl í útstillingarglugga verslunarinnar Gefjunar í Austurstræti, þar sem hún hékk í nokkra daga, eða til 2. maí. Þá kom hann þar í staðinn fyrir verkum sem að hans mati voru eins og þau áttu að vera. Þau voru eftir Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Jóhannes Kjarval, Ríkarð Jónsson, Sigurð Guðmundsson og Þórarin B. Þorláksson. Einnig var þar málverk eftir Jón Stefánsson, hann átti myndir á báðum sýningunum. Upphaf þessara atburða er rakið til bréfs sem nokkrir íslenskir listamenn sendu Alþingi vegna kaupa íslenska ríkisins á listaverkum. Þótti þeim miður að ríkið legði áherslu á frásagnarlist með þjóðlegu myndefni en sneiddi hjá verkum samtímalistamanna. Þá hófst mikil deila milli listamannanna ungu og menntamálaráðs, undir forystu Jónasar. Heimild: Ísland í aldanna rás Þ E T TA G E R Ð I S T: 2 . M A Í 19 4 2 Háðungarsýning var tekin niður Margar myndir Gunnlaugs Scheving sýndu sjómenn að störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Jónas Jónasson frá Hriflu T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 2 . M A Í 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.