Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 8
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 2. júní kl. 16:00 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá fundarins •  Venjuleg ársfundarstörf, dagskrárliðir skv. grein 6.6 í samþykktum sjóðsins. •  Kynning tryggingastærðfræðings, tryggingafræðileg staða LV og áhrif hækkandi lífaldurs. • Önnur mál. Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 30. apríl 2020 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur 2020 Lífeyrissjóður verzlunarmanna — live.is Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum. AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI • AKUREYR VESTMANNAEYJUM Verkefnið Götubiti á hjólum hófst fyrir nokkrum vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SAMFÉLAG „Þetta er rúmur mán­ uður sem við höfum verið að þessu og viðbrögðin hafa farið langt fram úr okkar væntingum,“ segir Róbert Aron Magnússon, eigandi Reykjavik Street Food, spurður út í verkefnið Götubiti á hjólum sem hefur verið í gangi undanfarnar vikur. Þá tóku eigendur nokkurra matar­ vagna sig saman og voru með við­ burði um helgar til að létta undir með veitingastöðum og landsmönn­ um sem vildu næla sér í góðan bita í samkomubanninu. „Þegar það var ákveðið að loka veitingastöðunum kom þessi hug­ mynd upp, af hverju förum við ekki með matinn inn í hverfin? Upp­ haflega voru þetta þrír vagnar en þegar við fengum þessar móttökur ákváðum við að fjölga kvöldunum og bílunum. Í dag erum við með skipulagða dagskrá eins og hljóm­ sveitirnar og átta bíla sem eru að allar helgar.“ Skipuleggjendur fá reglulega beiðnir um að koma í ný hverfi og er því nóg að gera við að skipuleggja næstu áfangastaði. „Við fáum margar fyrirspurnir um að koma og standa fyrir viðburðum. Við erum að vinna í dagskrá alveg út ágúst þessa dagana.“ Róbert segir stefnt að því að fara með bílana út á land og voru vagn­ arnir í Keflavík í gær. „Okkur langar að fara aðeins út fyrir bæinn og taka túr. Það gæti komið með smá útihátíðarstemm­ ingu á þessum tímum en það verður auðvitað farið eftir reglunum hverju sinni.“ Á þessum tímum er gerð krafa um að halda fjarlægð frá næsta manni og eru skipuleggjendur með nokkra starfsmenn til að passa upp á fjar­ lægð á milli gesta. „Í byrjun var oft skítaveður svo að fólk var mikið inni í bílunum og þetta varð í raun að lúguþjónustu. Þegar fólk fór að koma úr bílunum pössuðum við mjög vandlega upp á að halda tveggja metra fjarlægð. Hugmyndin er að þú sért að koma og sækja mat en með hækkandi sól er hætta á því fólk vilji koma saman og borða á staðnum,“ segir Róbert og heldur áfram: „Þegar kórónaveirufaraldurinn er yfirstaðinn viljum við reyna að gera dag úr þessu eftir reglum hverju sinni. Þangað til erum við með fyrirtæki í gæslu hjá okkur ásamt tveimur starfsmönnum okkar sem gæta upp á að fólk haldi réttri fjar­ lægð,“ segir Róbert, spurður út í öryggisgæsluna á svæðinu þegar kemur að tveggja metra reglunni og bætir við að fólk sýni því góðan skilning og hrósar Íslendingum fyrir þolinmæði. – kpt Fóru með matarvagnana í hverfin og vilja lengra Í byrjun var oft skítaveður svo að fólk var mikið inni í bíl- unum og þetta varð í raun að lúguþjónustu. Róbert Aron Magnússon, eigandi Reykjavik Street Food COVID -19 Pólsk stjórnvöld hafa vegna heimsfaraldursins stutt við átak er kallast #Polonia4Neigh­ bors. Snýst það um að styðja við hjálparaðgerðir Pólverja um allan heim. Um 14 milljónir Pólverja búa erlendis, þar af um 20 þúsund hér á Íslandi. Átakið er unnið í gegnum sendiráðin og hafa verið send mat­ væli, grímur, sótthreinsivörur og fleira til framlínustarfsfólks. Einnig snýst átakið um upplýsingagjöf og stuðning af ýmsum toga. „Margir Pólverjar starfa í fram­ línustörfum, til dæmis í heilbrigðis­ kerfinu og í velferðarkerfinu. Við hvetjum alla til þess að fylgjast með og fylgja fyrirmælum sótt­ varnayfirvalda á þessum sorglegu tímum,“ segir Gerard Pokruzynski, sendiherra Póllands á Íslandi. Bréf var sent á alla Pólverja búsetta hér á landi. Þá hafa pólskar nunnur beðið fyrir þeim sem hafa sýkst af veirunni og eru veikir. „Við lítum á það sem skyldu okkar, sem þátttakendur í þjóð­ félögum erlendis, að hjálpa til,“ segir Gerard. „Pólskir læknar hafa líka farið utan til þess að takast á við faraldurinn, til dæmis til Bandaríkj­ anna, Ítalíu, Slóveníu og Kirgistan.“ Pólska sendiráðið hér kom á fót fjarfundaráðstefnu um aðgerðir meðal pólskra, íslenskra, sænskra, finnskra, litháískra og eistneskra lækna. Gerard segir að fjölmargir Pól­ verjar, búsettir hér, leiti nú til sendi­ ráðsins á hverjum degi, enda hafi fjölmargir misst vinnuna. Til dæmis í hópuppsögnum Icelandair og hjá Bláa lóninu. „Þeir koma og biðja um hjálp en hafa engar leiðir til þess að komast heim. Pólsk stjórn­ völd skipulögðu flugferðir í mars og apríl en nú bíðum við eftir að fleiri ferðir verði skipulagðar. Ég sendi fyrirspurn til pólsku stjórnarinnar nýlega og hef ekki enn fengið svör.“ Segir Gerard að um 60 manns séu á lista sendiráðsins og bíði eftir að komast heim en lang flestir Pólverj­ ar hafi ákveðið að vera hér áfram, enda búnir að festa rætur og vilji deila örlögum með Íslendingum. „Íslendingar geta treyst á Pólverja þegar kemur að því að endurreisa efnahaginn,“ segir hann. kristinnhaukur@frettabladid.is Margir Pólverjar leita til sendiráðsins Margir Pólverjar, sem misst hafa vinnuna, komast ekki til heimalandsins en beðið er eftir að flug verði skipulagt. Pólsk stjórnvöld styðja við átak brottfluttra Pólverja um allan heim til að kljást við COVID-19 faraldurinn, með birgðasendingum og stuðningi. Íslendingar geta treyst á Pólverja þegar kemur að því að endurreisa efnahaginn. Gerard Pokruzynski, sendirherra Póllands á Íslandi Gerard hefur umsjón með hjálparátaki Pólverja. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.