Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 10
Það er alltaf stutt í þægilega bankaþjónustu Þjónustuverið er opið kl. 9 –17 alla virka daga í síma 444 7000. Ef erindið krefst afgreiðslu í útibúi þá bókum við fund og klárum málið í útibúi. arionbanki.is BYGGÐAMÁL Minna er um að fólk af landsbyggðinni f lytji á höfuðborg- arsvæðið, eða á mölina eins og það var kallað, nú en fyrir 30 árum. Fólk virðist sáttara í sinni heimabyggð, en þó er töluvert um fólksflutninga innan stórhöfuðborgarsvæðisins, það er frá höfuðborgarsvæðinu sjálfu til sveitarfélaga skammt frá. Til dæmis til Árborgar, Reykjanes- bæjar og Akraness. Þetta kemur fram í nýrri greiningu fræðimann- anna Ólafar Garðarsdóttur, Þór- odds Bjarnasonar, Stefáns Hrafns Jónssonar og Ians Shuttlesworth sem nær yfir árin 1986 til 2017. Ólöf, sem er prófessor í félagssögu við Háskóla Íslands, segir að hugs- anlega sé byggðastefnan að skila sér að einhverju leyti, einnig megi velta því fyrir sér hvort Akureyrar- svæðið trekki að í nærumhverfinu norðanlands. Þá sé ekki hægt að horfa fram hjá því að meðalaldur hér á landi hafi hækkað og að lækk- aða flutningstíðni megi að nokkru leyti skýra með breyttri aldurs- skiptingu þjóðarinnar. „Flutningur fólks af hinni raunverulegu lands- byggð til höfuðborgarsvæðisins er talsvert minni í dag miðað við það sem áður var,“ segir hún. Þetta sé mjög í samræmi við alþjóðlegar rannsóknir sem hafa sýnt að víða hefur dregið úr innan- landsf lutningum á undanförnum áratugum, fólk virðist almennt stöðugra. Á Norðurlöndunum sé hreyfanleikinn þó enn mikill og hér á landi meira en annars staðar á Norðurlöndum. Íslendingar eru þannig mun líklegri til að f lytjast milli landa og innanlandsflutning- ar eru hér talsvert meiri en annars staðar á Norðurlöndum. „Sögulega séð hafa Íslendingar verið mjög hreyfanlegir, árstíða- bundnir f lutningar úr sveitum á sjávarsíðuna og kaupavinna kaup- staðarfólks í sveit voru almennir langt inn á 20. öldina,“ segir Ólöf. „Svo höfum við haft þessa sérstöðu að hafa eina borg þar sem stór hluti þjónustunnar er. Þá er áhugavert að allt frá sam- dráttarskeiðinu í lok sjöunda ára- tugarins hafa Íslendingar verið fjórum til fimm sinnum líklegri til að f lytja til annarra landa en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Einnig er endurkomulhlutfall hátt og um 70 prósent koma til baka innan nokk- urra ára.“ Hagsveif lur undanfarinna ára- tuga hafa haft talsvert mikil áhrif á fólksflutninga hér á landi. „Í upp- sveif lunni í aðdraganda banka- hrunsins 2008 f luttist fólk frá höfuðborgarsvæðinu til nágranna- sveitarfélaganna en eftir hrunið, þegar húsnæðisverð lækkaði og eldsneytisverð hækkaði, lá straum- urinn um tíma í hina áttina,“ segir Ólöf. „Í uppsveif lu undanfarinna ára mátti aftur merkja flutninga frá höfuðborgarsvæðinu til nágranna- sveitarfélaganna. Það verður fróð- legt að fylgjast með hvað gerist nú þegar áhrif faraldursins koma í ljós.“ Þrátt fyrir að fólksflutningar séu að minnka frá landsbyggðinni séu enn svæði sem fólksfækkun hefur gengið mjög nærri, og eru þau skil- greind sem brothættar byggðir. Þar má nefna Raufarhöfn, Þingeyri og Borgarfjörð eystri. „Það er full ástæða til þess að styðja áfram við þessar byggðir þar sem fækkunin hefur verið mjög mikil í gegnum tíðina,“ segir Ólöf. Eftir banka- hrunið hafi þó ekki verið miklir f lutningar frá þessum brothættu byggðum sem bendi til þess að stórar efnahagssveiflur snerti þær minna. kristinnhaukur@frettabladid.is Færra landsbyggðarfólk flyst á mölina Búferlaflutningar af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins hafa farið minnkandi undanfarin 30 ár samkvæmt nýrri greiningu fjögurra fræðimanna. Íslendingar eru þó enn mjög hreyfanlegir eins og þeir hafa alltaf verið, bæði innanlands og milli landa. Á Raufarhöfn, sem er skilgreind sem brothætt byggð, bjuggu um 500 manns 1975 en um 180 nú. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sögulega séð hafa Íslendingar verið mjög hreyfanlegir. Ólöf Garðarsdóttir, prófessor í félagssögu Fjárhagsmál Seltjarnarness hafa mikið verið til umræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/FRIÐRIK SELTJARNARNES Minnihluti Sam- fylkingar, Viðreisnar og Neslista á Seltjarnarnesi telur að framúr- keyrslur bæjarins frá fjárhagsáætl- unum séu brot á sveitarstjórnarlög- um og lét bóka þar um í bæjarstjórn. Fréttablaðið fjallaði um fjárhags- vanda Seltjarnarness síðastliðinn miðvikudag en þar kom meðal annars fram að uppsafnaður halli A- og B-hluta frá árinu 2015 sé 630 milljónir króna. Áhrif eru þegar farin að bíta, en eins og greint var frá í mars hefur verið skorið niður í starfsemi félags- miðstöðvarinnar Selsins, sem ungt fólk og eldri borgarar nota. Þá var óháð úttekt gerð á rekstri bæjarins með 66 tillögum að hagræðingu. „Það hefur gerst 15 eða 16 sinnum á síðustu árum þar sem áætlun er breytt og ekki farið með það fyrir bæjarstjórn,“ segir Karl Pétur Jóns- son, oddviti Viðreisnar og Neslista. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri hafnar því hins vegar alfarið. „Það er ekki rétt,“ segir Ásgerður. „Það hafa engar fjárheimildir ekki verið samþykktar í bæjarstjórn.“ Í úttektinni, sem HLH ráðgjöf framkvæmdi, kom fram að viss annmarki gæti verið á skilningi. „Í viðræðum við stjórnendur sveitar- félagsins kom fram hjá sumum þeirra að þeir líta á fjárhagsáætlun sem áætlun og markmið um útgjöld frekar en fjárheimild. Ef þetta er rétt er um alvarlegan misskilning að ræða sem ber að leiðrétta,“ segir í úttektinni. Einnig að þeir viðaukar á fjárhagsáætlunum sem gerðir hafi verið frá árinu 2016 hafi ekki borist ráðuneyti og ekki verið samþykktir í samræmi við reglugerð. – khg Segja framúrkeyrslur bæjarins vera brot á sveitarstjórnarlögum Í viðræðum við stjórnendur sveitar- félagsins kom fram hjá sumum þeirra að þeir líta á fjárhagsáætlun sem áætlun og markmið um útgjöld frekar en fjárheimild. Úr úttekt HLH ráðgjafar 2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.