Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 24
Það getur verið fallegt og nytsam­ legt að búa til hátt borð við eða í kringum grillið þar sem pláss er fyrir mat og drykki. Til dæmis er hægt að hlaða það úr gömlum hell­ um og hafa pláss fyrir allt sem við kem ur grillinu eða jafnvel drykkja­ stöð þegar heitt er í veðri. Við það mætti bæta smá leikeldhúsi fyrir börn þar sem þau geta sullað aðeins og leikið sér. Ef þú ert með lítil börn gæti sandkassi á hjólum verið skemmtilegur. Viðarhúsgögn þarf að verja með fúavörn hvort sem þau eru í lit eða ekki. En nú er til mikið af hús gögnum úr steypu, plasti eða pólý húð uðu járni sem krefjast lít­ ils viðhalds. En allur textíll getur upp litast af sólinni og fer ekki vel í brjáluðu veðri svo það þarf að vera hægt að kippa honum inn eða breiða yfir hann. Einnig gæti sól­ tjald eða segl sem strekkt er yfir pall inn verið góð vörn gegn sól og regni því oft er sólin mjög sterk hér á landi. Emilía segir mottur geta hentað á grófara undirlag og eins til að brjóta upp rýmið ef um samlitan við er að ræða í palli eða húsgögnum. „Þá geta þær komið með ferskari blæ og varnað því að húsgögnin renni sam­ an við pallinn. Það er orðið mikið úrval af ofnum plastmottum sem eru mjög fallegar og þola nánast allt.“ Vandað val og viðhald Emilía segir helsta sparnaðarráðið í þessum efnum vera að vanda valið og hugsa vel um húsgögnin. „Eins er hægt að nýta svo margt eins og vörubretti, sem er mjög vinsælt að setja pullur á. Það er til mikið af ódýrum húsgögnum sem eru mjög fín með öðru. Eins þegar pallar eru byggðir að smíða úr pallaefninu bekk hvort heldur sem er með hallandi baki eða ekki, og jafnvel bæta við geymslu þar undir fyrir pullurnar. Galdurinn er að reyna að auðvelda sér vinnuna þannig að þegar það kemur sólarglæta að maður geti hent sér út í 15 mínútur en þurf i ekki hálftíma til að undirbúa það.“ Emilía Borgþórsdóttir iðnhönnuður heldur námskeið við Endur­m e n n t u n H á s k ó l a Íslands þann 25. maí næst komandi fyrir þá sem vilja auka færni sína í að fegra útisvæði og leituðum við til Emilíu um nokkur góð ráð. „Þegar velja á útihúsgögn er mik­ ilvægt að íhuga hvað getur staðið úti í íslenskri veðráttu,“ segir Emilía. „Ef ég væri að velja mér hús gögn myndi ég byrja á að fá mér sófa því þeir nýtast betur en stólar og borð, enda geturðu lagst í sófann og sleikt sólina eða setið uppi og drukk ið kaffið. Ég myndi velja hús gögn með þunnum textíl sem er þó gerður fyrir að vera úti og þolir smá vætu. Til eru geymslukistur fyrir pullur og púða sem er mjög sniðugt ef pláss er fyrir slíkt eða jafnvel hafa það inn­ byggt í pallinn undir bekk. Vasar, pottar og púðar Varðandi smáhluti segir Emilía best að velja hluti sem ýta undir að við njótum veru okkar á pallinum þó fáir þeirra fái að dvelja úti allt sum­ ar ið. „Mikið af smáhlutunum fer inn og út eftir þörfum eins og bakki með drykkjum, kerti og þess háttar. Það er sniðugt að nota púða og lítil borð til að fá liti á pallinn og gaman að fá samtal með litum við sumar­ blómin eða litina í garðinum. Eins lífga vasar eða pottar með afskorn­ um blómum eða greinum úr garð­ inum mikið upp á. Ég er mikið fyrir að hafa krydd­ og matjurtir og maður þarf ekki stóran pall til að rækta smá,“ segir Emilía sem hefur lært að það sé um að gera að nýta alla mold sem til er og planta megi grænkáli og öðrum mat jurt um með sumarblómunum. „Ég hef séð fólk rækta kartöf lur í síld ar tunnu og eins eru lóðréttir garðar eða gróðurveggir snilld.“ Lýsingin skiptir miklu Emilía segir lýsingu geta skipt miklu, sérlega sitt í hvorum enda sumarsins og á veturna. „Ef þú ert með heitan pott skiptir máli að hafa þá leið sem farin er út í pott upp­ lýsta til að lágmarka slysahættu. Annars er mjög fallegt að lýsa upp tré og almennan gróður. Eins eru til sólarrafhlöðuljós sem stinga má í ker og beð og geta komið vel út sem og gamla góða serían yfir pall­ inum. Það má hafa mismunandi lýsingu og gæta þess að hafa hana í mismunandi hæð svo falleg birta komi á svæðið því það getur verið þreytandi að hafa lýsinguna alla í sömu hæð eða á einu plani. Margnota húsgögn Ég er alltaf hrifnust af húsgögnum eða hlutum sem nýta má á margvís­ legan hátt. Það er hægt að verða sér úti um drumba sem þola að vera úti og mega veðrast og þá er hægt að nota sem borð eða kolla. Bekki má nýta sem borð líka. Ef smíða eða steypa á þrep, getur verið sniðugt að hafa þau nógu stór svo hægt sé að nýta sem sæti. Það er gott að hafa formin eða strúktúrinn þannig að hægt sé að tylla sér hér og þar og ekki þurfi of mikið af húsgögnum. Framlenging á stofunni Með hækkandi sól og aukinni heimaveru færast vorverkin ofar á lista. Pallurinn er svæði sem alltaf er hægt að breyta og bæta og þjónar oft sem stækkun á stofunni. Emilía Borgþórsdóttir heldur námskeið við Endurmenntun Háskóla Íslands sem nefnist Aðkoman og útisvæðið. Lýsing framkallar stemninguna og getur skipt sköpum, eins er dásamlegt að nota kertaljós eða eldstæði þar sem því verður komið við. MYND/GETTY Það er fátt betra en að njóta matar og drykkjar úti við þegar vel viðrar. MYND/AÐSEND Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is 2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.