Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 56
„Þetta finnst mér gaman, eldspýtnaþraut!“ sagði Lísaloppa og ljómaði öll. Ekki var Kata jafn ánægð. „Þú og þínar eldspýtnaþrautir,“ sagði hún önug. „Þér finnst þær bara skemmtilegar af því að þú ert betri í þeim en við,“ bætti hún við. „Sko,“ sagði Lísaloppa. „Hérna eru þrír jafn stórir ferhyrningar, getur þú fært til aðeins tvær eldspýtur svo úr verði klukkan 30 mínútur yfir fjögur?“ Róbert horfði vantrúaður á eldspýtnaþrautina. „Það er ekkert hægt að leysa þessa þraut,“ sagði hann fúll. „Svona nú,“ sagði Lísaloppa. „Þið getið nú reynt að leysa þessa þraut.“ „Nei,“ sagði Kata önug. „Ég neita að leysa fleiri eldspýtnaþrautir.“ „Þér gekk nú ekkert svo illa með þá síðustu var það nokkuð?“ sagði Lísaloppa. Kata hugsaði sig um smá stund. „Allt í lagi,“ sagði hún stundarhátt og það mátti heyra að keppnisskapið var komið í hana. „Upp með ermarnar, við leysum þetta.“ Getur þú leyst þessa eldspýtnaþraut? Konráð á ferð og flugi og félagar 402 Það má aðeins færa tvær eldspý tur til að mynda k lukkuna 30 mínútur yfir fjögur. Ekki má brj óta né beygja neina eldspýtu. ? ? ? Lausn á gátunni Takið efstu eldspýtuna á fyrsta kassanum og færið hana fyrir neðan hægri eldspýtuna, þá eru þið komin með töluna fjóra. Færið svo eldspýtuna sem er vinstra megin í miðkassanum og setjið hana þvert inn í kassann, þá eru þið komin með töluna þrjá.? Listaverkið Karen Erla Stefánsdóttir bjó til þessa mynd af páfagauknum Bláum úr teiknimyndinni Rio. Máni og Róbert. „Við vorum að leika tröll og hlupum hratt en mamma náði okkur. Svo földum við okkur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Tveir drengir eru að leika sér á stórri grasflöt og þar eru greinar sem einhver hefur klippt af runn- um og trjám nýlega. Svo eru rólur og rennibraut þar líka og það er sól og vor og gott veður. Drengirnir hafa komið á hjólunum sínum og fara greinilega vel með þau. Þeir heita Róbert Aron og Adrian Máni og eru kallaðir Róbert og Máni. Róbert er fimm ára og Máni fjögurra. Eruð þið miklir vinir, strákar? Róbert: Við erum bræður og líka vinir. Sláist þið aldrei? Máni: Nei, við bara leikum. Róbert: Svo skoðum við alls konar í náttúrunni, skeljar og pöddur. Hafið þið séð eitthvað merkilegt nýlega? Róbert: Við sáum flugu í gær á svölunum okkar. Hún var stór. Máni: Já, það voru svona armar á henni (býr til V úr tveimur puttum). Ætlaði hún að stinga ykkur? Róbert: Nei, hún var reyndar úti og við vorum inni. Máni: Hún heyrði heldur ekk- ert. En við sáum aðra og hún var slösuð. Fóruð þið með hana á spítala? Róbert: Nei, ég veit ekki um neinn fluguspítala. Máni: Við þurfum að byggja flugu- spítala. En það eru drekaflugur á Kanarí. Þær eru flottar. Hafið þið eitthvað farið í göngu nýlega? Máni: Já, í Laugardalinn. Við vorum að leika tröll og hlupum hratt en mamma náði okkur. Svo földum við okkur. Róbert: Svo fórum við í fjöru í gær, nýja fjöru og við höfum líka farið upp á fjall sem er langt í burtu. (Meðan við spjöllum saman eru þeir bræður að leika sér með greinarnar og Máni fer ferð eftir ferð með fullt fang af þeim upp í turninn fyrir ofan rennibrautina.) Róbert snýr sér að bróður sínum: Má ég greyma prik í húsinu þínu, Máni? Já, svarar Máni og klifrar enn eina ferð upp í turninn. Allt í einu kallar hann: Hjálp, ég er í vandræðum. Ég er fastur. Við sem erum nærstödd veltum fyrir okkur hvort við verðum að panta þyrlu, Diddi ljósmyndari stingur upp á þyrlu Hvolpasveitar- innar. Róbert: Þegar ég verð stór ætla ég að læra að fljúga þyrlu. Máni: Ég ætla að verða ruslamaður og keyra ruslabíl. Þurfum að byggja fluguspítala ÞEGAR ÉG VERÐ STÓR ÆTLA ÉG AÐ LÆRA AÐ FLJÚGA ÞYRLU. Róbert ÉG ÆTLA AÐ VERÐA RUSLA- MAÐUR OG KEYRA RUSLABÍL. Máni 2 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.