Fréttablaðið - 02.05.2020, Blaðsíða 36
Barnaverndarstofa
Barnaverndarstofa hefur í rúma tvo áratugi verið leiðandi
í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og
innleiðingu gagnreyndra aðferða. Stofnunin leitar
nú að þremur öflugum sérfræðingum til starfa.
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Tvær stöður sérfræðinga
í PMTO foreldrafærni
Sérfræðingarnir heyra undir sviðsstjóra ráðgjafar- og
fræðslusviðs. Um 100% stöður er að ræða sem fela m.a. í sér:
• Samvinnu við sveitarfélög vegna innleiðingar og viðhalds
PMTO svæða.
• Aðkomu að skipulagi og framkvæmd menntunar
PMTO meðferðaraðila.
• Umsjón með handleiðslu og fræðslu fyrir PMTO
sérfræðinga.
• Aðkomu að rannsóknum á vegum Barnaverndarstofu sem
tengjast PMTO.
• Utanumhald og þátttöku í FIMP teymi.
• Stuðning við SMT þjónustusvæði.
• Aðkomu að innleiðingu annarra gagnreyndra aðferða og
verklags þegar við á.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis-
eða félagsvísindasviði.
• Krafa um menntun og reynslu í PMTO meðferð.
• Krafa um þekkingu á notkun mats- og skimunarlista.
• Menntun í PTC hópmeðferð æskileg.
• Þekking og reynsla af FIMP skorun og handleiðslu fyrir
PMTO handleiðara æskileg.
• Þekking á SMT skólafærni æskileg.
• Þekking á innleiðingu gagnreyndra aðferða eða verkfæra
æskileg.
Staða sérfræðings
í vinnslu tölfræðiupplýsinga
Sérfræðingurinn heyrir undir fjármála- og mannauðsstjóra.
Um 100% stöðu er að ræða sem felur m.a. í sér:
• Umsjón með söfnun, skráningu, úrvinnslu og framsetningu
tölfræðiupplýsinga Barnaverndar-stofu og barna-
verndarnefnda og gera þær aðgengilegar t.d. á heimsíðu
stofunnar.
• Samstarf og samskipti við aðila sem búa yfir upplýsingum
um ofbeldi gegn börnum .
• Söfnun og samræming upplýsinga um ofbeldi og barna-
vernd .
• Umsjón með árangursmælingum meðferðarúrræða á
vegum Barnaverndarstofu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Krafa um meistarapróf í sálfræði, félagsfræði eða aðra
háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Krafa um þekkingu á lýsandi tölfræði, ályktunartölfræði,
réttmæti mælinga og kunnáttu við að koma tölfræðiupp-
lýsingum til skila á myndrænan hátt.
• Krafa um þekkingu á SPSS, R eða öðrum sambærilegum
forritum og tölfræðiúrvinnslu.
• Reynsla af meðhöndlun ganga og söfnun upplýsinga
æskileg.
Fyrir auglýstar stöður gildir:
• Mikilvægt er að búa yfir góðri samskiptafærni, sveigjan-
leika og jákvæðu viðhorfi.
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega,
markmiðatengt og lausnamiðað.
• Krafa um góða íslenskukunnáttu og færni í framsetningu
ritaðs máls.
• Krafa um enskukunnáttu.
• Kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg.
• Þekking á barnavernd er æskileg.
Starfsstöðin er í Borgartúni 21, Reykjavík.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við
úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á
hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er
mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á
stofuna.
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur,
fjármála- og mannauðsstjóra Barnaverndarstofu, í síma 530-
2600 eða gudruns@bvs.is. Umsóknir skulu berast á netfangið
bvs@bvs.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem gerðar
eru. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði
frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
kopavogur.is
Aðstoðarleikskólastjóri
í heilsuleikskólann Fífusali
Heilsuleikskólinn Fífusalir starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Mikið er lagt upp úr hreyfingu og
listsköpun innan leikskólans. Unnið er eftir lýðræðislegum kennsluaðferðum og uppgötvunarnámi.
Einkunnarorð Fífusala eru: Virðing - Uppgötvun – samvinna.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi með afburðahæfni í mannlegum samskiptum sem er tilbúinn til
að taka þátt í að stjórna og leiða faglegt starf í lýðræðislegu skólaumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Framhaldsnám í stjórnun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi æskileg
· Reynsla af starfi og stjórnun leikskóla
· Sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun
· Frumkvæði, forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
· Gott vald á íslenskri tungu
· Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2020.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2020.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is.
Verkefnastjóri á grunnskólahluta fagskrifstofu
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu verkefnastjóra á grunnskólahluta fagskrifstofu.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur grunnskóla, leikskóla, frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur,
skólasafnamiðstöð og skólahljómsveitir.
Hlutverk grunnskólahluta fagskrifstofu er að hafa forystu í fagmálum grunnskóla, þróun starfshátta og skólastarfs á grunni
grunnskólalaga, aðalnámskrár grunnskóla og skóla- og frístundastefnu Reykjavíkurborgar. Í öllu starfi skóla- og frístunda-
sviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka
barna, aukið samstarf og fagmennska.
Verkefnastjóri kemur að mati á skólastarfi og eftirfylgni, stuðningi og ráðgjöf við skólastjórnendur auk þátttöku í þróun fag-
legra starfshátta og símenntun kennara. Verkefnastjóri tekur þátt í starfshópum og vinnur náið með öðrum deildum sviðsins.
Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þátttaka í stefnumótun.
• Ráðgjöf við stjórnendur í grunnskólum Reykjavíkurborgar.
• Þátttaka í mati á skólastarfi og eftirfylgni með mati.
• Stuðningur og ráðgjöf við kennara varðandi skólaþróun,
þ.m.t. leiðsagnarnám.
• Öflun upplýsinga fyrir skóla- og frístundaráð.
• Þátttaka í starfshópum á vegum sviðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi og kennslureynsla
á grunnskólastigi.
• Stjórnunarreynsla æskileg.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða
framsækna skólaþróun.
• Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð
vinnubrögð.
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Enskukunnátta og kunnátta í Norðurlandamálum kostur.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf kennara og stuttur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Starfið er laust frá 1. júní 2020. Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2020.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, sími 411-1111.
Netfang: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is.
Erum við
að leita að þér?