Gríma - 15.09.1931, Page 6

Gríma - 15.09.1931, Page 6
4 SAGNIR UM HALL STERKA þeirra og olli meiðslum og kvillum á mönnum og skepnum. Um þetta leyti voru beitarhús frá Saurbæ á þeim stað, sem Varmhagi er kállaður; er hann upp við Djúpadalsá, vestan við háls þann, er Saurbær stend- ur undir. I beitarhúsum þessum hafði Saurbæjar- klerkurinn sauði sína á vetrum. Einn vetur fóru sauðirnir að drepast hver af öðrum og kvað svo rammt að þeim ófögnuði, að fáir einir lifðu eftir. Voru þeir reknir heim að Saurbæ og hjörðu af. Beit- arhúsin voru rifin um vorið og byggð á öðrum stað. Enginn vafi þótti á því leika, að Skotta hefði vald- ið sauðadauðanum. Var þá Hallur beðinn að skerast í leikinn og ráða bót á vandræðum þessum. Tók hann þeirri málaleitun fálega í fyrstu og hét engu um, en svo kom að lokum, fyrir þrábeiðni manna, að hann hét að gera allt hvað hann gæti til að fyrirkoma Skottu. Við Djúpadalsá er hvammur mikill á milli Valla og Strjúgsár; í honum er uppmjór klettastrók- ur, nálega fimm álna hár. Mælt er að Halli hafi tek- izt að binda Skottu við klettastrók þenna, en ekki vita menn, með hvaða hætti hann hefur gert það. Að vísu hefur Skotta einatt gert vart við sig á und- an Hleiðargarðsmönnum allt fram á þessa öld, en þess er ekki getið, að hún hafi grandað mönnum né skepnum eftir það er Hallur batt hana. — Hvamm- urinn heitir síðan Skottuhvammur. Þykir þar jafn- an óhreint og hafa oft heyrzt þaðan óhljóð og ömur- leg væl, sérstaklega þegar þoka er eða illviður í að- sigi. 2. Halli sendur drauzur- Einhverju sinni var Hallur í skreiðarferð vestur undir Jökli. Lenti hann þá í illdeilum við mann

x

Gríma

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.